Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 16
Jón Guðmundsson Lögg. fasteignasali jon@fastmark.is Guðmundur Th. Jónsson Lögg. fasteignasali gtj@fastmark.is Gísli Rafn Guðfinnsson Aðstoðarmaður fasteignasala gisli@fastmark.is Elín D. Wyszomirski Lögg. fasteignasali elin@fastmark.is Magnús Axelsson Lögg. fasteignasali magnus@fastmark.is Hallveig Guðnadóttir Skrifstofustjóri hallveig@fastmark.is Heimir Fannar Hallgrímsson hdl. og lögg. fasteignasali heimir@fastmark.isÓðinsgötu 4, Sími 570 4500, opið virka daga kl 9 – 17. Netfang: fastmark@fastmark.is – www.fastmark.is Í TRAUSTUM HÖNDUM Í ÁRATUGI Vegna mjög mikillar sölu vantar okkur 2ja – 4ra herbergja íbúðir í póstnúmerum 101, 104, 105, 107, 108, 200, 201 og 210. Skoðum og verðmetum samdægurs Glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem er sex hæðir auk kjallara samtals 4.788,3 fermetrar að stærð. Efsta hæðin er inndregin og með glæsi- legum 300 fermetra þaksvölum. Eignin afhendist tilbúin til innréttinga eða lengra komin samkvæmt nánara samkomulagi við seljanda. Tvær efstu hæðirnar eru fullkláraðar. Húsið afhendist fullbúið að utan og með frágenginni lóð. Frábær staðsetning miðsvæðis á útsýnisstað á höfuðborgarsvæðinu. Urðarhvarf 14 – Kópavogi - Heil húseign - til sölu eða leigu Glæsilegt 1.932,1 fermetra verslunar-, skrifstofu og lagerhúsnæði á tveimur hæðum. Eignin er í góðu ásigkomulagi að innan og utan. Lagerrýmið er með fjórum innkeyrsludyrum og með allt að 11,0 metra lofthæð. Húsið er stálgrindarhús, klætt með yleiningum og báruáli. Lóðin er fullfrágengin og malbikuð með góðri aðkomu athafnasvæði og bílastæðum. Eignin er nánast öll í útleigu til eins trausts leigutaka. Lausir eru tæplega 400 fermetrar á tveimur hæðum í austurenda eignarinnar. Bæjarflöt 1-3. Heil húseign. Vel staðsett 269,8 fm. einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 47,4 fm. bílskúr. Tvennar svalir sem snúa annars vegar í suður og hins vegar til suðausturs. Garðurinn er ræktaður og mætir óspilltu mosavöxnu og grónu hrauninu til norðurs. Stórar stofur með arni. Þrjú rúmgóð herbergi. Sjónvarpsrými. Tvö baðherbergi. Íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Húsið er mikið endurnýjað. Verð 77,9 millj. Sævangur – Hafnarfirði. Til leigu glæsileg 332,4 fm. mjög vönduð og mikið endurnýjuð skrifstofuhæð auk rishæðar, sem nýtt er sem geymsla. Á hæðinni eru tvö stór opin rými, fundarherbergi og 10 afstúkaðar skrifstofur. Sameign er öll til fyrirmyndar. Hluti húsgagna og annars búnaðar getur fylgt með eigninni. Síðumúli 27 - Skrifstofuhæð til leigu. Vel skipulagt um 450 fm. einbýlishús með auka 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð hússins. Húsið stendur á frábærum útsýnisstað við Elliðaárdalinn. Þrjár samliggjandi stofur með mikilli lofthæð. Fallegur arinn er í arinstofu. Eldhús með nýlegum innréttingum. Stórt fjölskyldurými. Auðvelt er að sameina aukaíbúðina húsinu ef vill. Tvöfaldur bílskúr. Lóðin er 850,0 fm að stærð með steyptum bomanite veröndum. Verð 95,0 millj. Rituhólar – frábær útsýnisstaður. Fallegt 150,5 fm. einbýlishús sem er hæð og ris auk séríbúðar í kjallara. Húsið er byggt árið 1882 og stendur á 498,0 fm. eignarlóð. Upprunlegir bitar í loftum og fallegar innihurðir. Gluggasetning, loft- listar og panel klæddir veggir gefa húsinu mikinn sjarma. Tvær rúmgóðar stofur með gluggum til suðurs og er möguleiki að nýta aðra sem þriðja svefnherbergið. Frábær staðseting miðsvæðis í borginni. Verð 69,9 millj. Vesturgata. Einstaklega fallegt og vandað 313,2 fm. ein- býlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 40,9 fm. bílskúr á Flúðum, Hrunamannahreppi. Húsið er afar vel skipulagt. Arkitekt hússins er Guð- mundur Kr. Guðmundsson. Lýsing er hönnuð af Helga Eiríkssyni hjá Lúmex. Hönnuður lóðar er Ragnhildur Skarphéðinsdóttir landslagsarkitekt hjá Hornsteinum. Eignin er mjög vel staðsett, með víðáttumiklu útsýni og við enda lokaðrar götu og þaðan er stutt í villta náttúru. Lóðin er 2.000 fm. að stærð, skjólgóð leigulóð, ræktuð háum trjám og runnum. Bílaplan og stétt heim að húsi er hellulögð og upphituð. Eignin verður til sýnis þriðjudag frá kl. 17.15 – 17.45 Falleg 120,7 fm. 6 herbergja sérhæð auk 22,0 fm. bílskúrs m.m. samtals 173,0 fm. á þessum frá- bæra stað í Þingholtunum. Eignin hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina. Búið er að endurnýja m.a. baðherbergi og þak. Þrennar svalir, þar af einar um 35 fm. sem eru ofan á bílskúr og útgengt er á úr hjónaherbergi. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Verð 67,9 millj Góð 93,3 fm. íbúð á 2. hæð að meðt. sér geymslu í Seljahverfinu. Rúmgóð stofa með útgengi á suðursvalir. Tvö herbergi, bæði með skápum. Snyrtileg sameign. Eignin er vel staðsett í rólegri botnlangagötu og í göngufæri við skóla, íþróttasvæði og ýmsa þjónustu. Verð 31,9 millj. Falleg og vel skipulögð 87,5 fm. risíbúð með svölum til suðausturs í fjórbýlishúsi. Rúmgóðar og bjartar skiptanlegar stofur. Tvö herbergi. Eldhús með hvítum viðarinnréttingum. Í ár var skipt um stærstan hluta glers og gluggar málaðir. Raflagnir og tafla fyrir íbúð eru nýleg. Frábær staðsetning, stutt í skóla, íþróttasvæði KR og aðra þjónustu. Verð 42,9 millj Vel skipulögð 91,2 fm. íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi sem hannað var af Einari Sveinssyni arkitekt. Góðar svalir til suðurs með miklu útsýni yfir Reykjavík og úr eldhúsi og svefnherbergi er útsýni til norðurs yfir sundin, að Esjunni og víðar. Tvö herbergi með stórum gluggum. Rúmgóð og björt stofa. Sér geymsla í kjallara. Verð 35,9 millj. Glæsilegt einbýlishús á Flúðum. Fjólugata 21. Sérhæð – þrennar svalir. Teigasel. Suðursvalir. Melhagi. Risíbúð- frábær staðsetning. Kleppsvegur. Laus til afhendingar strax. Fjárfestar athugið ! Fjárfestingartækifæri – traustur langtímaleigusamningur. Heil húseign, nýbygging, sem er tæplega 3.000 fermetrar að stærð, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Eignin afhendist fullkláruð með leigusamningi við traustan leigutaka sem gildir til 15 ára. Um er að ræða skrifstofu- og atvinnuhúsnæði á þremur hæðum með bílakjallara undir með fjölda bílastæða og einnig eru næg bíla- stæði á lóð. Mikils útsýnis nýtur frá eignninni og aðkoma er góð. Byggingaverktakar – áhugavert byggingarverkefni. Mjög vel staðsett byggingarlóð undir atvinnuhúsnæði við fjölfarna umferðaræð á höfuðborgarsvæðinu. Lóðin afhendist með samþykktum byggingarnefndarteikningum og undirrituðum langtímaleigusamningi með traustum leigutaka. Gatnagerðagjöld eru greidd. Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Fannar Hallgrímsson hdl. og lögg. fasteignasali, netfang: heimir@fastmark.is LUNDUR 5 – KÓPAVOGI NÝTT OG GLÆSILEGT FJÖLBÝLISHÚS Glæsilegt 11 hæða fjölbýlishús við Lund nr. 5 í Kópavogi. Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja frá 120,5 fer- metrum upp í 194,4 fermetra og verða afhendar með vönduðum innréttingum frá Brúnás og vönduðum AEG eldhústækjum. Íbúðirnar verða ýmist með svölum eða veröndum. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum. Afhending íbúðanna er í maí / júní 2017. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum. Byggingaraðili er: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Hagamelur 43. 3ja herbergja með aukaherbergi í risi. Eignin verður til sýnis í dag frá kl. 17.15 – 17.45 Björt og vel skipulögð 75,1 fm. íbúð á 3. hæð auk um 5,0 fm. sér geymslu í kjallara og um 10,0 fm. sér herbergis í risi, sem er með aðgengi að salerni og auk tveggja lítilla geymslna í risi. Fallegar upprunalegar sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi. Sam- liggjandi rúmgóðar stofur með útgengi á svalir til suðausturs. Um er að ræða eign á eftirsóttum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Góð aðkoma er að húsinu með fjöldi bílastæða er á lóðinni. Verð 39,9 millj. Brekkustígur 14. 4ra herbergja íbúð. Eignin verður til sýnis þriðjudag frá kl. 17.15 – 17.45 Mjög góð 108,5 fm. íbúð á 2. hæð. Íbúðin er með vestursvölum í endurnýjuðu litlu fjölbýlishúsi við Brekkustíg. Íbúðin hefur verið mjög mikið endurnýjuð hið innra á sl. árum, m.a. er nýtt parket í allri íbúðinni, baðherbergi hefur verið endurnýjað, ný eldhúsinnrétting og tæki o.fl. Þrjú svefnherbergi. Lóðin sem er vestan við húsið er hellulögð, tyrfð og afgirt. Opið svæði / leiksvæði er á bakvið húsið. Verð 52,5 millj. Fiskislóð 45. Glæsilegt loft /vinnustofa - endabil. Eignin verður til sýnis fimmtudag frá kl. 17.15 – 17.45 Glæsilegt 86,2 fm. vinnustofu / loft á 2. hæð auk um 20,5 fm. millilofts, sem ekki er getið hjá Fasteignaskrá Íslands, samtals er eignarhlutinn því um 106,7 fm. að stærð. Eignin er innréttuð á afar vandaðan og smekklegan hátt. Öll gólf eru flotuð og lökkuð og gólfhitalagnir eru á aðalhæð. Mjög mikil lofthæð er í eignarhlutanum eða um 5,0 metrar og eru öll loft hvítmáluð. Gluggar eru í tvær áttir þar sem um endabil er að ræða. Verð 46,9 millj. Fálkagata 14. 2ja herbergja íbúð- sérinngangur. Eignin verður til sýnis í dag frá kl. 17.15 – 17.45 Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 60,4 fm. að meðtalinni sér geymslu, suðursvölum og útsýni á 3. hæð í fjölbýlishúsi við Fálka- götu. Sérinngangur er af svölum og sér bílastæði á lóð hússins fylgir íbúðinni. Ný eldhúsinnrétting og tæki eru í íbúðinni og raflagnir og rafmagnstafla hafa verið endurnýjuð. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. Verð 31,9 millj HAGAMELUR 43 BREKKUSTÍGUR 14 FISKISLÓÐ 45 FÁLKAGATA 14 OP IÐ HÚ S Í D AG OP IÐ HÚ S ÞR IÐJ UD AG OP IÐ HÚ S Í D AG OP IÐ HÚ S FIM MT UD AG Glæsileg húseign í hjarta miðborgarinnar Höfum fengið til sölumeðferðar mjög glæsilega heila húseign á þrem- ur hæðum á afar eftirsóttum stað við Reykjavíkurtjörn. Eignin, sem er um 400,0 fermetrar að stærð, er upphaflega teiknuð sem einbýlishús en var öll endurnýjuð að innan og utan árið 2006 og á þeim tíma inn- réttuð á afar vandaðan og smekklegan máta, sem skrifstofuhúsnæði. Tiltölulega auðvelt væri að breyta eigninni aftur í íbúðarhúsnæði. Lóðin er virkilega glæsileg með veggjum úr hoggnu grjóti, tyrfðum flötum, harðviðarverönd, fallegri lýsingu og tveimur sér bílastæðum. OP IÐ HÚ S ÞR IÐJ UD AG 1 2 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K _ N Ý. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 2 -B E 4 0 1 B A 2 -B D 0 4 1 B A 2 -B B C 8 1 B A 2 -B A 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.