Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 30
Þau helgina áttu Bryndís Rún Hansen Sundkona úr Óðni og með háskóla- liði University of Hawaii. Bryndís Rún Hansen setti sitt annað Íslandsmet á HM í 25 metra laug og varð um leið fyrst til að synda 100 metra flugsund á undir einni mínútu um helgina þegar hún synti á 59,95 sekúndum og náði 27. sæti. Gamla metið greininni átti Bryndís sjálf, en það er 1:00,25 mín. og var sett í Bergen árið 2011. Bryndís hafði áður sett Íslandmet í 50 metra flugsundi á mótinu þar sem hún náði 16. sæti. Bryndís Rún hefur flutti sig frá Flórída til Havaí. Hún var tvö ár í Nova Southeastern Uni- versity í Fort Lauderdale en flutti sig yfir í Univer- sity of Hawaii í Manoa í vetur. Þessi skipti hafa greinilega hjálpað henni því hún er að ná sínum besta árangri á stórmóti á HM í Windsor. Ómar Ingi Magnússon Handboltamaður hjá danska liðinu Århus Håndbold Hinn stórefnilegi handboltamaður Ómar Ingi Magnússon er kominn á skrið í dönsku úrvalsdeildinni en hann hefur verið markahæstur í tveimur síðustu leikjum liðsins Århus Håndbold. Ómar Ingi var með 6 mörk og 6 stoðsend- ingar á móti TTH Holstebro um helgina og 8 mörk og 3 stoðsendingar á móti Skjern í síðustu viku. Ómar Ingi var með 7,0 mörk og 4,5 stoðsendingar í þessum tveimur leikjum sem er mun hærra en meðaltal hans. Hann er nú markahæsti Íslendingurinn í dönsku deildinni og inni á topp tuttugu í mörkum (20. sæti) og inn á topp tíu í stoðsendingum (9. sæti). Ómar Ingi verður væntanlega með Íslandi á sínu fyrsta stórmóti á HM í Frakklandi. Adam Haukur Baumruk Handboltamaður í Haukum Adam Haukur átti frábæran leik þegar Haukar unnu tíu marka sigur á Akureyri, 29-19, í lokaleik fimmtándu umferðar Olís-deildar karla. Adam skoraði níu mörk fyrir sína menn, flest með þrumu- skotum. Adam Haukur hefur ekki verið inni í myndinni hjá landsliðsþjálf- aranum Geir Sveinssyni en hann hefur minnt á sig að undan- förnu. Þessi öfluga skytta og sterki varnarmaður hefur skorað 49 mörk í átta leikja sigurgöngu Haukanna. Thelma Dís Ágústsdóttir (t.v.) og Emelía Ósk Gunnarsdóttir tóku 27 fráköst saman í sigrinum á Njarðvík. FréTTablaðið/EyþÓr Allt í jólapakkann FÖNDURFRÆSARI 3000MD 3 Star Kit 7.995kr. Almennt verð: 9.995 kr. 74780311 NOKKRAR HUGMYNDIR 25% AFSLÁTTUR AF MATAR- OG KAFFISTELLUM HEIL SETT MATVINNSLUVÉL 800W. 13.995kr. Almennt verð: 17.995 kr. 65742022BLUETOOTH HÁTALARI í sturtuna, baðið eða pottinn. 13.995kr. 15326268 byko.is Auðvelt að versla á byko.is SKREYTUM SAMAN Ö ll v er ð er u bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r o g/ eð a m yn da br en gl . T Ilb oð gi ld a t il 1 8. de se m be r. Lifandi jólatré Sérvalinn normannsþinur, íslensk fura og blágreni. Einnig mikið úrval af gervijólatrjám og skrauti. TIMBURVERSLUN BREIDD MÁN-MIÐ 8-18 FIM-FÖS 8-20 LAU 10-20 SUN 11-20 SELFOSS MÁN-FÖS 10-18 LAU 10-18 SUN 12-16 Sölustaðir SKOÐAÐU JÓLAGJAFAHANDBÓKINA Á BYKO.IS Skotnýting mótherja Keflavíkur í síðustu fimm leikjum er aðeins 30,7 prósent og Keflavík hefur unnið þá með samtals 96 stigum eða 19 stigum í leik. Körfubolti Kvennalið Keflavíkur er komið með fjögurra stiga forskot á toppi Domino´s deildar kvenna í körfubolta eftir tuttugu stiga sigur á nágrönnunum úr Njarðvík um helg- ina. Þetta var fimmti sigur Keflavík- urliðsins í röð og þessa fimm sigra hafa Keflavíkurstelpurnar unnið alla með þrettán stigum eða meira. Það eru bæði gömul sannindi og ný að titlar vinnist á góðum varnar- leik og þessi margsannaða bolta- speki ætti að ýta undir væntingar Keflvíkinga til kvennaliðsins síns það sem eftir lifir vetrar. Keflavíkurliðið er kornungt og reynslulítið en þær lærðu að elska að spila vörn í yngri flokkunum og eru heldur ekki að tapa mikið á því að vera þjálfaðar af tvöföldum varn- armanni ársins í Sverri Þór Sverris- syni. Undir stjórn Sverris eiga öll lið í erfiðleikum með að skora hjá þeim. Meðaldur leikmanna Keflavíkur- liðsins í dag, sem spila meira en tíu mínútur að meðaltali í leik, er aðeins 19,8 ár. Það er því fróðlegt að skoða varnartölfræði liðsins upp á síðkastið. Mýtan að ungir leikmenn séu ekki eins góðir varnarmenn á alls ekki við hjá þessu liði. Keflavíkurkonur eru nefnilega búnar að halda mótherjum sínum undir 40 prósenta skotnýtingu og undir 70 stigum í fimm leikjum í röð. Liðið hefur unnið alla fimm leikina sannfærandi og er nú öruggt með að vera á toppnum yfir jólin. Snæfell er að fá á sig fæst stig í leik en stigaskorið snýst líka um tempó í leikjunum og Keflavíkur- liðið keyrir upp hraðann í sínum leikjum. Það að mótherjar liðsins klikki á næstum því 7 af hverjum 10 skotum sínum er mögnuð töl- fræði fyrir hvaða lið sem er hvað þá lið sem ætti að vera miklu blautara á bak við eyrun. - óój Litlu slátrarnir landa sigrum í vörninni 1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m Á N u d A G u r14 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 1 2 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B A 2 -9 1 D 0 1 B A 2 -9 0 9 4 1 B A 2 -8 F 5 8 1 B A 2 -8 E 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.