Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Fallegu hörðu og mjúku pakkarnir eru í Höllinni IITTALA ULTIMA THULE Kertastjakar, 65 mm glær / frost 2.890 / 4.890 kr. stk. IITTALA FESTIVO Kertastjakar 120 mm / 180 mm 5.890 / 7.290 kr. IVV AVENUE Krukka, glær með loki Hæð: 20,5 cm 9.990 kr. IVV SPECIAL glas / kanna 30 cl / 1,4 l 2.790 / 7.490 kr. IVV MAGIC STAR Kertastjaki Hæð: 17 cm 3.990 kr. IITTALA ESSENCE hvít- eða rauðvínsglös 2 stk saman í pakka 4.790 kr. 2 stk. 1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m Á N U d A G U r22 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð Spurður hvernig hann fékk starfið sem yfirhönnuður JÖR segist Jóhann Kristófer Stefánsson hafa þekkt Guð- mund Jörundsson, eiganda JÖR, í langan tíma og unnið með honum í gegnum tíðina. „Ég er búinn að þekkja Gumma lengi, frá því að við vorum í barnaskóla. Svo sátum við Logi Pedro og Sigbjartur Sturla fyrir hjá honum þegar hann var að vinna í Kormáki og Skildi. Við vorum þá í fermingarbæklingnum, þegar við vorum sem sagt árinu eldri en ferm- ingarbörn eru. Svo kom ég inn í JÖR sem fyrirsæta árið 2013 og gekk þá tískupallinn á RFF,“ útskýrir Jóhann sem er nýútskrifaður frá Listaháskóla Íslands af sviðshöfundarbraut. „En það er ekki fyrr en í vor sem við byrjum þetta samtal um að ég kæmi inn í fyrirtækið. Hann bar þá þessa hugmynd undir mig, að ég kæmi inn á einhverjum „creative“- forsendum og mér leist bara vel á það. Svo byrjaði ég að funda með honum í sumar til að ræða fram- haldið,“ segir Jóhann sem er spennt- ur fyrir komandi tímum. Hans fyrsta verkefni verður að koma nýrri verslun á Skólavörðustíg á koppinn. „Já, svo er planið líka að opna nýja búð á Geirsgötu, í húsa- kynnum sem Faxaflóahafnir eiga. Svo er stefnan fyrir vorið að hanna nýja línu ásamt Steinunni Eyju og Gumma.“ Er að vinna með Írafár-tískuna Jóhann sér fram á að með tilkomu hans inn í fyrirtækið muni mark- hópur verslunarinnar breikka. „Við munum leggja nýjar áherslur en þó halda í stílinn sem hefur alltaf ein- kennt JÖR. Við sjáum fram á að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi hjá JÖR og sömuleiðis eitt- hvað fyrir hvaða tilefni sem er. JÖR byrjaði sem svona jakkafata-dæmi en hefur síðan þá fært út kvíarnar. Ég hef fulla trú á að JÖR geti verið í forystu í öllu því sem er að gerast í tísku hverju sinni.“ Jóhann er sjálfur afar hrifinn af vinnufatnaði og „street-wear“. „Ég er ekkert mikið í jakkafötum sko, þó að mér finnist alveg gaman að fara í jakkaföt endrum og eins. Ég er meiri svona hettupeysugaur sko,“ segir Jóhann klæddur í rifnar galla- buxur og hettupeysu. „Stíllinn minn núna er bara þannig að mig langar að vera ógeðslegur. Mig langar bara að vera í ljótum fötum og ég hef mikið verið að reyna að líta út eins og 2007-hnakki. Ég myndi segja að mig langar að „lúkka“ eins og ég sé í Írafár árið 2007.“ Finnur ekki fyrir stressi Eins og áður sagði er Jóhann útskrif- aður sviðshöfundur frá LHÍ. Hann segir það nám nýtast sér á öllum skapandi sviðum. „Það nám kenndi mér að skilgreina mína listrænu sýn og hún nær einhvern veginn yfir allar skapandi greinar. Mín listræna sýn er alveg óháð einhverju einu fagi,“ segir Jóhann sem sá þó ekki í upphafi fyrir sér að fara út í fatahönnun. „Nei, en áhugi minn á fatnaði hefur verið að aukast með árunum og ég hef verið að vinna að fleiri verkefnum sem tengjast fatnaði, þannig að mér finnst þetta alveg rökrétt þróun.“ „Nei, ekki neitt sko,“ svarar Jóhann spurður hvort hann finni fyrir einhverju stressi í tengslum við nýja starfið. „Ég reyni að taka sjálfan mig ekki of alvarlega. Þá þýðir ekkert að vera stressaður.“ gudnyhronn@365.is Langar að líta út eins og 2007-hnakki Jóhann Kristófer Stefánsson tók nýverið við sem yfirhönnuður hjá fatamerkinu JÖR ásamt fatahönnuðinum Steinunni Eyju Halldórs- dóttur. Jóhann er þó ekki menntaður fataönnuður heldur er hann sviðshöfundur sem er góður grunnur fyrir alla sköpun að hans mati. Jóhann Kristófer Stefánsson er kominn í JÖR-teymið. MyND/EGILL ÁSTRÁÐSSON  Mig Langar bara að vera í LjótuM fötuM og ég hef Mikið verið að reyna að Líta út eins og 2007-hnakki. uM jör l Guðmundur Jörundsson út- skrifaðist sem fatahönnuður frá LHÍ árið 2011, í kjölfarið stofnaði hann fatavörumerkið JÖR. l Fyrsta herralínan frá JÖR leit dagsins ljós í október árið 2012. l Verslun JÖR á Laugavegi 89 var lokað nýlega en ný JÖR-verslun verður opnuð á horni Skóla- vörðustígs og Týs götu innan skamms. l JÖR og 66°Norður unnu saman að verkefni árið 2015, útkoman var úlpan Jöræfi sem sló í gegn. l Frægar Hollywood-stjörnur á borð við Justin Bieber og Kourtney Kar- dashian hafa klæðst hönnun JÖR. 1 2 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B A 2 -9 B B 0 1 B A 2 -9 A 7 4 1 B A 2 -9 9 3 8 1 B A 2 -9 7 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.