Fréttablaðið - 12.12.2016, Blaðsíða 8
Audi Q7 e-tron var valinn jeppi ársins 2017
af bílablaðamönnum á Íslandi. Hann er
fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll sem sameinar
krafta rafmagnsmótors og dísilvélar.
Q7 e-tron quattro er sparneytinn, umhverfismildur og eldsneytis-
notkunin er aðeins 1,9 lítrar á hverja 100 km. Mættu nýrri árstíð
með grænni samvisku og allt að 56 km drægni á rafmagni.
Komdu við og upplifðu Q7 e-tron quattro í hversdagslífinu.
Íþróttir „Ég hef það ágætt. Það
suðar reyndar enn töluvert í eyr-
anu en annars er ég ágætur,“ segir
Bjarki Bóasson handboltadómari
en þrumuskot Adams Baumruk,
í viðureign Hauka og Akureyrar í
Olís-deild karla um helgina, small
í stönginni og fór þaðan í höfuð
Bjarka. Var gert hlé á leiknum
meðan dómarinn jafnaði sig. Hann
náði að klára leikinn og var lítið
skammaður af þjálfurum og leik-
mönnum fyrir sína frammistöðu.
Leikurinn fór fram þann 10.
desember en á þeim degi á síðasta
ári fékk félagi hans, Gunnar Óli
Gústafsson, þrumuskot Geirs Guð-
mundssonar í hausinn. Geir þrum-
aði þá í stöngina, í viðureign Vals
og FH og fór boltinn beint í höfuð
Gunnars sem fékk heilahristing
og var frá dómgæslu í tvo mánuði
í kjölfarið. Bjarki dæmdi einn síns
liðs síðari hálfleikinn.
Dómaraparið er eitt af efnileg-
ustu handboltadómurum Evrópu
og hefur ferðast um víða veröld til
að dæma. Bjarki segir að þessi dag-
setning, 10. desember, sé langt í frá
besti vinur þeirra félaga og trúlega
muni flautan vera upp í hillu verði
spilað á þessum degi á næsta ári.
„Hlynur Leifsson verður að
minnsta kosti ekki eftirlitsmaður
hjá okkur verði spilað á þessum
degi á næsta ári,“ segir hann léttur.
Hlynur var einmitt eftirlitsmaður í
leik Vals og FH í fyrra þegar Gunnar
fékk boltann í höfuðið sællar minn-
ingar og aftur nú þegar Bjarki fékk
boltann í höfuðið. „Þetta getur ekki
verið tilviljun,“ segir hann og hlær.
Þrátt fyrir að vera léttur yfir atvik-
inu er Bjarki með suð og hellu fyrir
fyrir öðru eyranu. Hann fann ekki
fyrir neinum svima eða öðru eftir
að leik lauk og skellti sér á tónleika
um kvöldið með engum öðrum en
Björgvini Halldórssyni. „Ég þóttist
bara skemmta mér vel en ég heyrði
í raun varla neitt,“ segir Bjarki.
benediktboas@365.is
Ætla aldrei
aftur að dæma
10. desember
Handboltadómararnir Bjarki Bóasson og Gunnar
Óli Gústafsson hafa báðir fengið bylmingsskot í höf-
uðið þann 10 desember. Þeir ætla ekki að taka upp
flautuna verði spilað á þessum degi á næsta ári.
Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson eru léttir þrátt fyrir höfuðhögg á sama degi með árs millibili. FréttaBlaðið/SteFán
10. desember
l 344. dagur ársins
l Rauði kross Íslands var stofnaður
í Reykjavík
l Halldór Laxness veitti viðtöku
Nóbelsverðlaunum sínum í
Stokkhólmi.
l Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sigr-
aði í keppninni Ungfrú heimur
Þetta getur ekki
verið tilviljun
Bjarki Bóasson, handboltadómari 40%
íþróttamanna hafa fengið
höfuðhögg sem leiddi til ein-
kenna heilahristings, sam-
kvæmt rannsókn frá 2014.
1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m Á N U d A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
1
2
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
2
-A
F
7
0
1
B
A
2
-A
E
3
4
1
B
A
2
-A
C
F
8
1
B
A
2
-A
B
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K