Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.1983, Page 10

Víkurfréttir - 30.03.1983, Page 10
10 Miðvikudagur 30. marz 1983 VÍKUR-fréttir vmmr © 2211 © Leigubilar - Sendlbflar Tj>\IJSTUUTIA4' lOVIISTAKSiaill KtíMir %ii ara Sinfóníuhljómsveit íslands, undir stjórn Páls P. Pálssonar, í íþróttahúsi Keflavíkur, fimmtudaginn 7. apríl n.k. kl. 20.30. Einleikari: Unnur Pálsdóttir, fiðluleikari. Einsöngvari: Sieglinde Kahmann. Forsala aðgöngumiða verður í Fataval, þriðjudaginn 5. apríl frá kl. 14-17. Gluggaviðgerðir Tökum að okkur allt sem því viðkemur, smíðum opnanleg fög, útvegum allt efni, þar með talið gler. Föst tilboð. Greiðsluskilmálar: 1/3 við pöntun, rest á allt að 6 mánuðum, eða 10% staðgreiðslu- afsláttur. Höfum umboð fyrir Glerskálann hf. 5 ára ábyrgð á gleri. - Leitið tilboða. Brynjar, sími 3338. - Sigurður, sími 3432 Breytt símanúmer Eftirtaldar breytingar hafa verið gerðar á símanúmerum embættisins að Vatnsnes- vegi 33, Keflavík: Þinglýsingar ............. sími 1922 Tollverðir ............... sími 1922 Tryggingaumboð ........... sími 1922 Beint samband við allar deildir embættis- ins verður í síma 1922. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík Sýslumaður Gullbringusýslu FERMINGIN Fermingarbörn spurð spjörunum úr Eins og flestum er án efa kunnugt fer nú í hönd tími ferminga og þess tilstands sem að þeim snýr. Að venju er það mikill og fríður hópur sem fermist á Suðurnesjum eða í kringum 200 börn. Fyrsta ferming var nú sl. sunnudag, síðan verður fermt næstu vikurnar í öllum kirkjum á Suðurnesj- um. Til að heyra hljóðið í ferm ingarkrökkunum sjálfum fengu Víkur-fréttir til máls við sig fjóra krakka sem fermast nú í vor, og voru lagðar fyrir þau eftirtaldar spurningar: 1. Hvers vegna lætur þú ferma þig? 2. Verður haldln mlkil veisla hjá þér? 3. Ertu trúuð(aður) og ferðu oft i kirkju? 4. Veistu hvað þú átt að fá (hvað fékkstu) I fermingar- gjöf? 5. Finnst þér of mikið um- stang f kringum ferming- una? Fyrstan spurðum við Eln- ar G. Einarsson. Hann fermdist 27. marz sl. 1. Ég fermdist til að taka kristna trú og ganga í full- orðinna manna tölu, nei, gjafirnar voru ekki aðal- atriöiö. 2. Nei, hún var ekki stór i sniöum. Það er búið að halda fermingarveislu núna þrjú ár i röð heima og mamma er orðin hálf þreytt á þessu. 3. Já, maður fer svona annað slagið í kirkju, og ég trúi alveg á það sem prest- urinn segir. 4. Ég fékk rúm, stól og borð frá mömmu og pabba. 5. Nei, nei, maðurfórbara í undirbúning frá því í nóv- ember, einu sinni í viku. Næstan spurðum við Halldór Guðmundsson, en hann fermist 17. apríl n.k. 1. Til að ganga í kristinna manna tölu. 2. Já, hún verður frekar mikil, það koma ca. 50 manns. 3. Nei, ég fer ekkert sér- staklega oft í kirkju, ég mætti þó í allar þær messur sem við áttum að mæta í. Ég fer áreiðanlega oftar í kirkju eftir fermingu en áður. 4. Nei, ég hef ekki hug- mynd um hvað ég fæ. Nei, það er ekkert sérstakt á óskalista. 5. Nei, maður mætir bara einu sinni í viku í undirbún- ing. Helga Jóhanna Vilbergs- dóttir varð næst fyrir svör- um, en hún fermdist sl. sunnudag. 1. Ég fermdist til að ganga í kristinna manna tölu. Nei, ég fermdist ekki fyrir gjaf- irnar, þó svo að ég hafi að sjálfsögðu hugsað út í þær, en það held ég að allir geri. 2. Ja, svona ekkert ofboðslega, það komu í kringum 50 manns. 3. Já, ég er trúuð þó svo að ég fari ekki of oft í kirkju. Ég mætti í allar skyldumæt- ingar. 4. Ég fékk kassettutæki frá pabba og mömmu. 5. Já, það er allt of mikið umstang í kringum þetta, það er svo mikið sem þarf að gera í sambandi við veislurnar. Síðastur fyrir svörum varö Garðar S. Jónasson. Hann fermist 10. apríl. 1. Til að staðfesta skírn- ina og ganga inn í kristinna og fulloröinna manna tölu. Ekki fyrir gjafirnar, þó svo að þær spili náttúrlega inn i eins og alltaf gerir. 2. Nei, það verður ekki mikil veisla, eitthvað í kring- um 30 manns. 3. Já, ég er mjög trúaður, þó svo að ég fari ekki oft í kirkju. Mér finnst þessar messur ekki nógu upplífg- andi. 4. Já, ég fæ 10 gíra DBS- hjól og rúm. 5. Nei, nei, það er ekkert of mikið umstang, það er bara pantaður matur, komið með hann og búið. Víkur-fréttir þakka þeim Einari, Halldóri, Helgu og Garðari fyrir skýr og grein- argóð svör og óskum þeim jafnframt til hamingju með ferminguna. - gæi. . . . aö fara saman og kaupa Ijós í HÁBÆ STEINSTEYPUSÖGUN Sögum m.a. gluggagöt, stigaop og huröagöt. - Sögum einnig í gólf og innkeyrslur. - Gerum föst verötilboö. Upplýsingar í símum 3894 og 3680. Hljóðlátt ■ Ryklaust - Fljótvirkt TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI KRISTJÁNS OG MARGEIRS SF.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.