Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.1983, Page 11

Víkurfréttir - 30.03.1983, Page 11
VÍKUR-fréttir Miðvikudagur 30. marz 1983 11 líklegast ekki aðalatriðið að við séum síknt og heilagt með þeim, fremur hvernig við verjum þessum dýr- mætu og fáu stundum. Við þurfum öll á ást, blíðu og virðingu að halda - ekki síst þau. Reynum að muna eftir þvi að láta þau vita, að okkur þyki vænt um þau, verum félagar þeirra, virð- um skoðanir þeirra og hlust um á þau. Krefjumst sömu virðingar af okkur sjálfum, ein og við krefjumst af þeim. Við getum orðað það svo: Það skiptir mestu máli hvað við gerum, ekki ein- göngu það, sem viðsegjum. Ennfremur að segja það, sem við meinum og meina það sem við segjum. Flókið? En getur líka ver- ið ákaflega einfalt. Kveð ykkur með brosi, og munið að kyssa barnið ykk- ar á morgun. Gleðilega hátíð. Ykkar einlæg, KLEÓ SKÍÐAFÉLAG SUÐURNESJA Símsvari 1111 Opið hús 31. marz (skírdag). Fyrirlestur: Vatnalíffræði. - Myndasýning. Stangaveiðifélag Keflavíkur „Það er greinilegt, aðfólk er búið að fá nóg af hinum harða vetri hér á landi, því stór hópur er nú að fara i páskaferð til Benedorm í 15 daga ferð, og í síðustu viku fór stór hópur aldraðra á sama stað í 28 daga ferð, en það er sérstök ferð því að- eins er greitt fyrir 21 dag,“ sagði Bjarni Valtýsson, um- boðsmaður Ferðamiðstöðv arinnar hér í Keflavík, er blaðamaður Víkur-frétta ræddi við hann á ferða- Húsvirkni í Garði Jón Sigurðsson, Ottó Ei- ríksson og Einar Bjarna- son, allir í Garði, hafa sett á stofn sameignarfélag undir nafninu Húsvirkni sf. Tilgangur félagsins er húsbyggingar, verktaka- starfsemi o.fl. þess háttar. epj. kynningu Ferðamiðstöðv- arinnar fyrir stuttu. Að sögn Bjarna hefur verið mikið um hugleiðing- ar í fólki og margir ætla að skella sér i páskaferð til London og Amsterdam, enda er mikið um að vera á þessum stöðum núna, bæði fótbolti og útsölur. Ferðir á vörusýningar og kaupstefn- ur hefur verið fastur liður hjá Ferðamiðstöðinni, enda hefur því verið mjög vel tekið af kaupmönnum. ,,Ég er viss um að hvergi hafa Suðurnesjamenn verið í eins miklum mæli og á Benidorm. Það verður auð- vitað boðið upp á ferðir þangað í sumar og verður hægt að fara í gegnum Luxemburg og London fyrir þá sem vilja. Beint flug til Lux og svo bíll um alla Evrópu, Ameríkuflug og auðvitað það nýjasta í dag, ferð með m.s. Eddu með og án bíls, - allt eru þetta ferðir sem verður boðið upp á í sumar ásamt ýmsu fleiru," sagði Bjarni að lokum. pket. PHIL og STEVE MAHRE nota aðeins það besta, SMITH - skíðagleraugu. smiTH Einkaumboð á íslandi: Gleraugnaverslun Keflavíkur Hafnargötu 27 - Sími 3811 Um allt og ekki neitt Kysstu barnið þitt á morgun Heil og sæl, elskurnar mínar, þökk fyrir síðast. Ég vona að ökuferðir ykkar sl. hálfan mánuð hafi verið ánægjulegar, sérstaklega hjá „back seat drivers". Satt að segja brá mér í brún er ég áttaði mig á þvi, hve síðasta grein mín var löng. Svei mér þá, þetta var eins og smásaga og tel ég mig nú ekki til smásagna- höfunda. í dag ætla ég að vera ósköp prúð og stutt- orð. Sá grunur læðist þó að mér, að hann pabbi trúi þessu ekki, hann kallar mig nefnilega jöfnum höndum „Talínu" og „Símalínu" og áfram nú . . . Undanfarnar vikur hefur þætti nokkrum í útvarpinu lokið með þessum orðum: „Kysstu barnið þitt á morgun.“ Ég get verið nokkuð viðkvæm stundum „Benidorm-ferðirnar mjög vinsælar“ - segir Bjarni Valtýsson og þessi setning festi svo sannarlega rætur í mér. Nú á dögum býður þjóð- félag okkar upp á m.a. eilíft flakk barna okkar milli heimilis, skóla og dagvist- unarstofnana. Foreldrar margir hverjir vinna utan heimilis og eins og gefur að skilja gefst einatt lítill tími til að sinna þessum blessuð- um afkvæmum okkar. Þau fá á sig aukna ábyrgð, sem aldur þeirra og þroski fær ekki til hlítar skilið. Oft verða þau óörugg og undr- andi á þessu umhverfi, fara jafnvel á mis við ástúð, snertingu og bros, sem er þeim svo mikils virði. En hvað getum við gert? Það er FERMINGARMYNDATÖKUR Pantið tíma. nymgnD Hafnargötu 26 - Keflavik Sfml1016 Inngangur frá bílastæöi.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.