Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.09.1984, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 27.09.1984, Blaðsíða 3
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 27. september 1984 3 Séó yfir nýjustu brautir Hólmsvallar i Leiru. Nýja klubbhúsiö var ekki alveg fokhelt þegar þessi mynd var tekin, fyrr i sumar, það er til vinstri á myndinni. GOLF: Lúðvík bestur á afmælismótinu ÚTSALAN Sandgerði Opið til kl. 23.30 alla daga. Golfarar fjölmenntu á af- mælismót G.S. í Leirunni sl. laugardag, enda veður með afbrigðum gott. Jafnhliða mótinu var „reisugilli" nýju skálabyggingarinnar og var gestum sýnt húsið sem er mjög glæsilegt. Fulltrúar bæjar- og sveit- arstjórnanna á Suðurnesj- um voru meðal gesta, og af- henti Tómas Tómasson f.h. Keflavikurbæjar, klúbbn- um 50.000 kr. í tilefni af þessum merka áfanga á 20 ára sfmæli golfklúbbsins. Bárust honum fleiri gjafir, m.a. gaf Ásta Pálsdóttir list- málari málverk. Var það veitt þeim leikmanni sem sló kúlu sinni næst holu á6. braut, ,,Stínu", í afmælis- mótinu. Sá heppni varð Sig- urður Sigurðsson. Hann sló kúlu sína2.53 m frá holunni. Úrslit í afmælismótinu urðu þessi: punktar 1. Lúðvík Gunnarsson 40 2. Ögmundur Ögm. . 38 3. Jack Cristwell .... 38 Fleiri aukaverðlaun voru veitt af ýmsum aðilum. Jón Ólafur Jónsson sló kúlu sína 4.67 m frá Bergvíkur- holunni og fékk að launum eitt dúsín frá Austurbakka hf. Bill Cane var næstur holu á Jóel, 140cmfrá holu, og fékk mat fyrir 2 á Glóð- inni. Lúðvík Gunnarsson fékk regnhlíf frá Austur- bakka hf. fyrir að vera næst- ur holu á 15. braut. Golfvertíð er nú senn að Ijúka og fá mót eftir. Grind- víkingar verða með opið mót á laugardag á Tófta- velli og eru glæsileg verð- laun i boði. Leiknar verða 18 holur með Stableford-fyrir- komulagi. - pket. Söluferðir Grindavíkurbáta Síðustu vikur hafa nokkr- ir Grindavíkurbátar siglt með aflann á erlendan markað. Hrungnir fór aðra sölu- ferðina og seldi í Bremen- haven í Þýskalandi 7. ágúst rúmlega 87 tonn. Uppistaða aflans var grálúða og sölu- verðið 1.355.000, eða 15,60 kr. pr. kg. Hann er nú á veið- um fyrir þriðju söluferðina. Höfrungur seldi 29. ágúst í Hull tæplega 60 tonn fyrir 1.598.795, eða tæplega 27 kr. pr. kg. Hafbergið seldi 29. ágúsí í Mallig í Skotlandi 51 tonn fyrir samtals 1.176.411, eða 23,40 kr. pr. kg. Albert seldi í Grimsby 3. sept. 98,6 tonn fyrir 2.651.354, eða 26,89 kr. pr. kg- Sama dag seldi Sighvatur í Hull 65.844 kg, þar af var um 30 tonn grálúða. Sölu- verð var 1.471.000 eða 22,70 kr. pr. kg. Hópsnesið seldi í Grims- by 13. september 49 tonn fyrir 1.552.528 eða tæplega 32,00 kr. pr. kg. Auk þessa hefur einherju magni af fiski verið landað í gáma og siðan sent á sölu- markaði erlendis. - kg. Tveir Grindavikurbátar Eignamiðlun Suðurnesja Hafnargötu 57 - Keflavik - Sfmi 1700, 3868 KEFLAVÍK: Hugguleg 2ja herb. ibúð við Hring- braut. 880.000. Nýleg hugguleg 2ja herb. íbúð við Birkiteig, ætluð eldra fólki. 1.250.000. Huggulegar 3ja herb. íbúðir við Heið- arhvamm og Heiðarból. 1.400.000-1.500.000. Góð 3ja herb. risíbúð við Vatnsnes- veg, lausfljótlega. 950.000. Góð 3ja herb. íbúð við Brekkubraut ásamt bílskúr. Sér inngangur. 1.550.000. Hugguleg 160 ferm. íbúð ásamt 60 ferm. bílskúr við Háaleiti. 2.300.000. 118 ferm. endaraðhús við Kirkjuveg, laust strax. 2.400.000. Nýlegt 138 ferm. einbýlishús við Heiðarbakka, ásamt tvöföldum bíl- skúr, ekki fullgert. 2.750.000. Gott 140 ferm. raðhús við Greniteig, hugguleg eign. 2.500.000. NJARÐVÍK: Sérlega glæsileg 3ja herb. íbúð við Fífumóa. Allt sérsmíðað inn í íbúð- ina. ' 1.500.000. Góðar 3ja herb. íbúðir við Hjallaveg og Fífumóa. 1.300.000-1.350.000. Góð 4ra herb. íbúð við Hólagötu. Sér inngangur. 1.400.000. SANDGERÐI: Glæsilegt 137 ferm. raðhús við Ása- braut. Vönduðeign. 2.600.000. Fallegt 96 ferm. raðhús viö Ásabraut, fullgert. 1.750.000. Eignamiðlun Suðurnesja Fasteignaviðskipti: Hannes Arnar Ragnarsson Sölustjóri: Siguröur Vignir Ragnarsson Reykjanesvegur 56, Njarðvik: 3ja herb. íbúð á neðri hæð, ásamt bil- skúr. Ýmisleg skipti möguleg. Laus strax. 850.000. Brekkustígur 17, efri hæð, Njarðvík: Hugguleg 140 ferm. 5 herb. íbúð. Á- kveðin sala. 1.580.000. Hliðarvegur 74, Njarðvik: Huggulegt 134 ferm. raðhús ásamt bílskúr. Góðurstaður. 2.600.000. Sunnubraut 17, Garöi: 110 ferm. einbýlishús ásamt tvöföld- um bílskúr. Skipti á ódýrara í Kefla- vík möguleg. 1.800.000. Faxabraut 33B, Keflavík: Hugguleg 5 herb. íbúð, skipti á ódýr- ari möguleg. 1.650.000. ATH: Opið alla laugardaga frá kl. 10:00 - 15:00. Ásabraut 5, neðri hæð, Keflavík: Rúmgóð 2ja herb. íbúð, mikiðendur- nýjuð. Sér inng. 950.000.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.