Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.1985, Page 5

Víkurfréttir - 27.06.1985, Page 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 27. júní 1985 5 6. fl. ÍBK ásamt Jóhanni liðsstjóra og Frey þjálfara. 6. flokkur ÍBK: Sigraði í Tommaham- ÚTBOÐ Óskað er eftir tilboðum í að mála blokk í Njarðvík. Upplýsingar í síma 1432. Fimmtudagur 27/6: Opið frá kl. 21 - 01. Föstudags- og laugardagskvöld: Opið frá kl. 22-03. Pónik og Einar leika fyrir dansi í síðasta sinn í bili. 6. fl. Víðis - prúðasta liðið á lcikvelli og í matsal. 6. fl. Reynis - stóð sig með stakri prýði. Ósmekklegar aðfarir trillukarla - skutu fugla á Hólmsbergi Síðdegis á mánudag urðu menn á golfvellinum í Leiru varir við skothvelli er bárust frá Hólmsberginu. Er menn gættu að betur, kom í ljós að þarna voru að verki trillukarlar er voru mjög skotglaðir í varplandi sjófuglanna og skutu upp í bjargið frá sjó. Létu viðkomandi sjónar- varpi í vottar blaðamann vita um atburðinn og eftir að hafa fengið lýsingu á bátnum fór hann niður á bryggju er trillan kom að og mikið rétt, um borð í trillunni lágu nokkrir dauðir fuglar. Þó lögin banni ekki veiðar á svartbaki, er það þó mjög ósmekklegt meðan á varptímanum stendur. Það ættu skotglaðir byssu- menn að hafa í huga. - epj. Tomma-borgarar héldu knattspyrnumót í Vest- mannaeyjum um síðustu helgi. Þar kepptu lið frá öllu landinu í utanhúss- knattspyrnu, innanhúss- knattspyrnu og ýmsum knattþrautum. 6. 0. ÍBK sigraði í mótinu, sem ein- ungis var fyrir 6. flokk hinna ýmsu félaga, og sigruðu þeir Breiðablik í úr- slitaleik með 2 mörkum gegn 1. Það var Snorri Jónsson sem skoraði bæði mörk okkar manna. 6. fl. Víðis í Garði fékk verðlaun fyrir prúðustu framkomuna á mótinu svo og verðlaun fyrir að vera prúðasta liðið í matsal. Víðismenn fengu þessi verðlaun einnig í fyrra svo segja má að þeir séu ósigr- andi í prúðmennsku. Reynir Sandgerði fékk einnig verðlaun en það voru tveir einstaklingar verð- launaðir fyrir góðan árangur í knattþrautum. Sverrir „Maradonna“ Auðunsson í IBK var kos- inn besti maður mótsins og má segja að Suðurnesja- liðin hafi svo sannarlega staðið sig vel. - kmár. borgaramótinu í Eyjum

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.