Víkurfréttir - 27.06.1985, Síða 8
8
Fimmtudagur 27. júní 1985
VÍKUR-fréttir
czzrAð vera bryggjusópari:
Þessa Grindavíkurpeyja hittum við niðri á bryggju bar sem þeir
voru í óða önn að sópa og hreinsa bryggjuna. Það kom á daginn að
þetta er aðcins einn þáttur i starfi krakkanna i bæjarvinnunni, að
halda bryggjunum sæmilega hreinum. Þeir heita f.v. Agnar, Heiðar
og Gunnar. Við spurðum hvort þeir ætluðu að verða bryggjusóparar
þegar þeir væru orðnir stórir, og þeir héldu ekki. Frekar vörubíl-
stjóri, skipstjóri og fuglafræðingur. Okkur leist líka betur á það.
ehe./pket.
Bækur - Ritföng
Leikföng
Gjafavörur
Bókabúð "\/l\
Grindavíkur
Sími 8787
Það borgar sig að líta við í
RÚN
SUMARFÖT
á börnin
í miklu úrvali.
Einnig ný efni daglega.
Opið 10-12 og 14-18
Lokað laugardaga.
Verslunin RÚN
Víkurbraut 31 - Grindavík - Sími 8580
Amma Dalton
Verslunin Bláfell - Grindavík:
„ Við erum alltaf jafn
yfirgengilega bjartsýnir44
- annars værum við ekki í þessu
- sagði Atli Hermanns-
son, verslunarstjóri Blá-
fells, aðspurður um horf-
urnar í versluninni.
„Við erum með alhliða
bygginga- og útgerðarþjón-
ustu, þ.e.a.s. alla smávöru
sem tengist þessu tvennu.
Alla málningu,járnfittings,
handverkfæri, rafmagns-
verkfæri og smávörurnar
sem fylgja útgerð, eiginlega
allt nema toghlera o.þ.h.
Mjög margir vöruflokkar
en í litlu magni. Allir vita
hvernig ástatt er í útgerð-
inni, þar eru litlar fram-
kvæmdir og núna er þar af
leiðandi lægð í bygginga-
iðnaði. Hérna hefur lítið
verið byggt undanfarin ár
og þetta kemur svo niður á
öllum hliðum mannlífsins
má segja. En það þýðir því
ekkert annað en að vera
bjartsýnn", sagði Atli.
Verslunin Bláfell er
hlutafélag og er aðaleigandi
Róbert Sigurjónsson. Fyr-
irtækið er 12 ára gamalt, en
Róbert kom inn í það 1976
og Atli fyrir þremur árum
eða síðan verslunin flutti í
núverandi húsnæði að
Hafnargötu 7a.
„Það er ekkert óeðlilegt
þótt menn haldi að sér
höndum núna. Það eru allir
að bíða eftir stóru spreng-
ingunni, fiskeldinu, sem á
að bjarga málunum. Ég
heid raunar að fiskeldið
geri aldrei meira en að vega
aðeins upp á móti þeim gíf-
urlega samdrætti sem hefur
orðið í útgerð. Það þarf að
vera andskoti mikið til að
vega það upp“, sagði Atli
að lokum. - ehe.
Grindvíkingar - Suðurnesjamenn
öl,- Sælgæti - Pylsur
Samlokur - Blöð - Tímarit
. . . og ís - sá besti. Komið
bara og sannfærist.
MYNDBANDALEIGA
OPIÐ SÍMI
9.30-23.30 - ~ Mynd-sel = 8449
Framkvæmdir á vegum
____________Grindavíkurbæjar__________________
Þessi holræsagerð mun koma fiskverkunarhúsahverFinu og ibúða-
hverfinu í austurhluta bæjarins í tengsl við aðalholræsakerfið og er
það mjög til bóta. Einnig stendur til að Ijúka byggingu íþrótta-húss
og viðbyggingar við grunnskólann á árinu. Þá verða Grindvíkingar
á grænni grein í þessum efnum. - ehe.