Víkurfréttir - 27.06.1985, Qupperneq 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 27. júní 1985 13
Margeir Ásgeirsson. „Þetta er fallegur fiskur.“
Kosturinn um borð.
V^ÐCjp CREAM PO^
Grindvíkingar!
vinsælu
snyrtivörurnar
'™ "Z&fcr
fást nú í Apótekinu.
„Lakari gæði - skreiðarfískur-
inn fer nú allur í salt“
Rætt við fiskmatsmann
Fiskveiðar og fiskvinnsla
er mál málanna í Grinda-
vík, aðalatvinna flestra
vinnufærra manna og það
sem tilvera bæjarins byggir
á. Menn voru önnum
kafnir við að ganga frá og
pakka saltfiski í Gjögri og
þar hitti ég fyrir Margeir
Ásgeirsson fiskmatsmann.
Margeir var að meta
saltfiskinn frá Gjögri og ég
spurði hann álits á stöðu
saltfiskverkunar á Islandi.
„Það sem er að gerast
núna í saltfiskframleiðslu
miðað við það sem verið
hefur er það að allur verri
fiskur sem fór áður í skreið
fer nú í salt. Þar af leiðandi
er mikið meira magn í verri
gæðaflokkum upp úr salti
heldur en var áður. Það er
það sem gerist þegar
skreiðarmarkaðurinn er
enginn.
Að öðru leyti er þetta
eins og allir vita góður
fiskur þegar vel gefur og
slæmur þegar gæftir eru
slæmar, eða þegar fiskur
liggur í æti. Hráefnið
skiptir öllu máli“, sagði
Margeir.
En ertu ánægður með
gæðin hér í dag, nú ertu
búinn að meta heilmikið
magn fyrir útflutning?
„JÚ, maður getur sagt,
að maður sé nokkuð
ánægður með gæðin, en það
sem er mest um vert er að
þessir verri gæðaflokkar
eru meira áberandi“.
Hvert er þessi farmur að
fara?
„Þetta fer til Portúgal og
er að langmestu leyti
þorskur, örlítið af löngu
og þ.h. Eg gæti trúað að
þetta séu svona 350-400
tonn sem fer með þessu
skipi núna“, sagði Margeir
að lokum. - ehe.
Apótek Grindavíkur
Víkurbraut 62 - Sími 92-8770
GRINDVÍKINGAR
SRtnyiHHU
JsOUUBOÐ.
Einfættur á útkíkki.
Pása til að svæla.
LÍSU kex 33,40
BURBON kex 31,90
JUVEL hveiti 35,50
ZCO-OP spaghetti, 400 gr. ... 27,90 z!
CO-OP spaghetti, 1 kg 59,70
JUVEL makkarónur 34,90
BULGAR jarðarber, 1/1 ds. .. 72,10
LIBBY’S tómatsósa 24,95
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA GRINDAVfK