Fréttabréf - 01.08.1989, Síða 4
þingkonuna og aflað upplýsinga. Látið
endilega heyra frá ykkur síminn er 91-
11560 á Alþingi og 91-13725 á
Laugavegi 17.
EFTA og EB
Það hafa verið töluverðar umræður í
þinginu um viðræður EFTA og
Evrópubandalagsins. Kvennalistakonur
hafa varað mjög við vinnubrögðum
utanríkisráðherra í þessu máli og þeirri
glígju sem virðist blinda marga sem um
þessi mál fjalla. Fram hefur komið á
Alþingi að Kvennalistinn telur að leita
beri beinna samninga um samskipti
okkar við bandalagið um útvíkkun á
viðskiptasamningi með sjávarafurðir.
milljónir, sem er jafnmikið og áætlað er
að eitt starf í nýju álveri muni kosta.
Ennfremur leggjum við til að framlag til
Byggðastofnunar verði aukið um 20
milljónir svo hægt verði að gera sérstakt
átak í atvinnumálum kvenna á
landsbyggðinni. Við leggjum einnig til
að rúmum þrem milljónum verði veitt
til UNIFEM, (hjálparstarf fyrirkonur í
þróunarlöndum), að framlag til kven-
naathvarfsins í Reykjavík verði tæpar
ellefu milljónir og að Samtök kvenna
gegn kynferðislegu ofbeldi fái ellefu
milljónir í stað tveggja eins og lagt er til
í frumvarpinu. Loks leggjum við til að
veitt verði rúmum sex milljónum til
kynfræðslu. '
200 milljónir í til aö efla
atvinnulíf kvenna
Fjárlög þarf að afgreiða fyrir áramót
. Málmfríður er fulltrúi okkar í
fjárveitinganefnd og er desember mikill
annatími hjá henni. Ekki liggur fyrir nú
hversu mikill hallinn verður á
Ijárlögunum að þcssu sinni
Ijánnálaráðherra segir 3 milljarðar en
aðrir telja að 6 - 7 milljarðar séu nærri
lagi. Málmfríður hefur gagnrýnl ýmsa
þætti frumvarpsins og hefur m.a. bent á
að þær forsendur sem fjármálaráðherra
gefur sér muni ekki standast. Þingkonur
Kvennalistans fluttu breytingartillögur
við aðra umræðu um fjárlagafrumvarpið
þar skal fyrst nefna tvær tillögur sem
tengjast beint atinnvumálum kvenna
annars vegar að settur verði nýr liður á
fjárlög sem nefnist “átak í
atvinnumálum kvenna” og fari í það 200
Af öörum málum
Kvennalistakonur gera fleira á
Alþingi en að flytja sín eigin mál, þær
taka að sjálfsögðu þátt í umræðum um
hin ýmsu mál sem koma fram í þinginu.
Kvennalistinn flutti vantrauststillögu á
ríkisstjómina ásamt Sjálfstæðisflokki og
Frjálslyndum hægrimönnum. Tillagan
var ekki samþykkt eins og flestum er
eflaust kunnugt.
Virðisaukaskatturinn hefur komið
nokkuð til umræðu á liðnum vikum, nú
er ríkisstjómin búin að ákveða prósen-
tuna 24,5% á allt og þar með talið
matvæli. Kvennalistakonur hafa ekki
farið í grafgötur með þá skoðun sína að
best væri að fresta gildistöku laga um
“vaskinn” til eilífðar.
Það mætti vissulega minnast á fleiri
mál hér, en við segjum þetta nóg í bili.
Sigrún Jónsdóttir
4