Fréttabréf - 01.08.1989, Síða 6

Fréttabréf - 01.08.1989, Síða 6
Alþjóðlegur Kvennabanki er til - en erum við íslenskar konur til ? Ég var beðin um að endursegja í stuttu máli frá hugmyndinni um Kvennabanka, sem er spjallaði um hér í Laugardagskaffi hjá Kvennalistanum laugard. 2. des. sl. og geri ég það hér með, með glöðu geði. Ja hvað segir kvenpeningurinn í þessu landi um að gerast aðili að efnahagslegu kerft byggt á forsendum kvenna, sem hefur það að leiðarljósi að gera konur í heiminum efnaðri ? Ekki veitir af! Alþjóðlegi Kvennabankinn (Womens World Bank) var stofnaður árið 1980 og ástæðan fyrir því að nokkrar konur frá ýmsum löndum hófu þessa starfsemi voru þær dapurlegu niðurstöður sem kynntar vom í upphafi Kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna: “Konur ynntu af hendi 65% allra starfa sem unnin vom í heiminum, fyrir það framlag þáðu þær 10% af öllum greiddum launum en vom eigendur að aðeins 1% allra eigna í heiminum”. Safnast þegar saman kemur Allar viljum við bæta hag kvenna og oft hefur það hvarflað að manni þegar maður hefur horft upp á hver fjármálamistökin á eftir öðmm hér á landi, reyndar keyrir nú um þverbak þegar afleiðingar vitleysunnar blasa við okkur, þá hefur maður oft hugleitt hvort konur gætu ekki sameinast um Kvenna- banka því enda þótt við höfum ekki mikið fjármagn milli handanna þá sa- fnast þegar saman kemur. Einnig hefur verið dapurlegt að horfa upp á hvemig bankakerfmu hér er stýrt af körlum, fyrir karla og konur þykja vart lánshæfar. Það fer það orð af okkur konum að við séum eyðslusamar, höfum ekki vit á peningum né fjármálum enda þótt þetta séu að verða hin mestu öfugmæli. Já einhvetja von verðum við að eygja og þá horfum við ekki til karlanna - það er löngu ljóst og þess vegna hef ég séð Kvennabanka fyrir mér í hillingum í nokkur ár. B^P.W. konur á íslandi Hér á landi er starfandi alþjóðlegur félagsskapur kvenna sem heitir B.P.W. og stendur fyrir Bissness and Professional Women. Hann hefur verið starfandi í 60 ár úti í hinum stóra heimi en á 10 ára afmæli hér heim um þessar mundir (Nafngiftin inniber ekki eingöngu konur í viðskiptum heldur eru konur “bara” á vinnumarkaðnum fjölmennari.) B.P.W. konur hittast annað hvert ár og halda alþjóðlegan fund í einu hinna 76 þjóðlanda sem hann er starfandi í og alls eru meðlimir um 250.000 konur. í október var XIX alþjóðlegi fundurinn haldinn á Bahama-eyjum og þar var boðið upp á “Work-shop” eða vin- nufund með forseta Alþjóðlega Kvenna- bankans, Michaelu Walsh. Ég var fljót að láta skrá mig á alþjóðaþingið en ég er í forsvari fyrir félagsskapinn hér á ísland um þessar mundir (við erum um 60 B.P.W félagskonur á íslandi). Hjól í staö pýramída Fundurinn með Michaela Walsh var mjög áhugaverður og alger uppljómun á margan máta. Þama var upplýst að Alþjóðlegur Kvennabanki er viðurkenndur nú þegar í 41 landi og alls eru 91 hópar starfandi sem vinna eftir 6

x

Fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.