Fréttabréf - 01.08.1989, Page 11

Fréttabréf - 01.08.1989, Page 11
Barneignabylgjan og baráttan um FHR í Reykjavík Fæðingum hefur fjölgað, rúmum hefur fækkað, Fæðingarheimilið hefur verið lokað lungann úr sumrinu. Allt hefur verið fullt út úr dyrum á Landspítalanum og Fæðingarheimilinu og á sama tíma samþykkir meirihlutinn í borgarstjóm að leigja “einkalæknum” 1. og 2,hæð FHR. Þetta er í stuttu máli staðan. Fulltrúi Kvennalistans í borgarstjóm rak um ramavein, mótmælti, var auk heldur uppi með kjaft við karlmann í útvarpi og fjölmargar konur brugðu við ótt og títt. Haldinn var mörg hunduð manna borgarafundur á Hótel Borg sem 16 fjölmenn samtök og félög kvenna stóðu að. Stórkostlegt að sjá báða salina fyllast af ungum konum með komaböm, kasóléttum konum, óóléttum konum á ýmsum aldri auk karla. Samþykkt var áskomn á borgarstjóm að ganga ekki til samninga við læknana og þess krafist að 2 hæð FHR, með 18 rúmum verði tafar- laust tekin í notkun og þannig brugðist við bameignabylgjunni á jákvæðan hátt. (Ályktunin er birt í heild sinni hér á eftir). Stórkostlegt og við töldum að nú væri lag, meirihlutinn tæki tillit til þessa og félli frá áformum um leiguna. Auk þess var vitað að allt fagfólkið á LSP og FHR er á móti þessari ráðstöfun. EN ekki varð okkur að ósk okkar - ekki enn. Á borgarstjómarfundi 7.des. samþykkti meirihlutinn þrátt fyrir allt, í trássi við allt og alla, gegn öllum rökum og skynsemi að ganga til samninga um leiguna til “einkalæknanna”. Eg segi - ekki enn því átakshópurinn sem undirbjó “Bameignabylgjufundinn” ætlar ekki að gefast upp. FHR skal ekki úr höndum kvenna - í hendur einkavæðingar fyrr en í fulla hnefana ! Það er til fullt af öðmm húsum sem þeir eiga í að venda - við höfum bara þetta enn sem komið er. Ég segi - enn sem komið er - hver veit nema við setjum okkareigið fæðingarheimili á laggir, með tilstyrk kvenna um allt land. Hvemig væri það ? Alla vega er ekki bitið úr þessari nál. Heilbrigðisráðherra á t.d. eftir að veita starfsleyfi, við gmnum hann um stuðning við okkur. Allt starfsfólkið á kvennadeild LSP og FHR styður okkur og landlæknir lýsti stuðningi á fundinum á Borginni. Við emm ekki fáar konur og fáliðaðar og alls ekki einar í þessu stríði um bættan hag kvenna og bama. Það á ýmislegt eftir að ganga á áður en af þessu verður skaltu vita borgarstjóri, Davíð og þið hin sem samþykktuð! Bókun minnihlutans í borgarstjórn Á fundi borgarstjómar 7.desember sl. flutti Elín G. Ólafsdóttir eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihlutans í borgarstjóm. “Sjálfstæðismenn í meirihluta borgarstjómar hafa nú samþykkt leigu á n

x

Fréttabréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.