Víkurfréttir - 17.04.1986, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 17. apríl 1986
VÍKUR-fréttir
MlKUtÍ
juitít
Útgefandi: Víkur-fréttir hf.
Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar:
Vallargötu 14, II. hæð - Sími 4717 - Box 125 - 230 Keflavík
Ritstjórar:
Emil Páll Jónsson
heimasími 2677
Páll Ketilsson,
heimasími 3707
Fréttastjóri:
Emil Páll Jónsson
Auglýsingastjóri:
Páll Ketilsson
Upplag: 4500 eintök, sem dreift er ókeypis
um öll Suðurnes hvern fimmtudag.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað
er óheimilt nema heimildar sé getið.
Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK:
Góð 3ja herb. íbúð við Nónvörðu í fjórbýlishúsi,
sér inngangur.............'.................... 2.400.000
2ja herb. neðri hæð við Faxabraut, sér inngangur 1.050.000
Efri hæð við Faxabraut, 3ja herb. íbúð......... 1.500.000
Góð 3jaherb. neðri hæðvið Hringbraut, sér inng. 1.700.000
Raðhús við Mávabraut ca. 95ferm., í góðu standi 2.100.000
Einbýlishús (Selfosshús) við Freyjuvelli ...... 2.700.000
138 ferm. raðhús með bílskúr við Greniteig,
skipti möguieg ................................ 2.900.000
Raðhús við Miðgarð með bílskúr. Góður staöur,
laust strax, skipti möguleg á minni íbúð ...... 3.200.000
100 ferm. parhús við Heiðarholt með bílskúr.
skipti möguleg ................................ 2.800.000
170ferm. einbýlishús með bílskúr við Suðurvelli Tilboð
2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðirvið Fífumóaog Hjalla-
veg. Verð frá.................................. 1.250.000
Gott einbýlishús við Holtsgötu 2 með bílskúr . 5.500.000
Einbýlishús ígóðu ástandi með bilskúrvið Njarð-
víkurbraut. Skipti möguleg á íbúð i Keflavik eða
Njarðvík. Góðir greiðsluskilmálar ............. Tilboð
GRINDAVÍK:
Heiöarhraun 18:
Glæsilegt einbýlishús með
bílskúr. Nánari upplýsingar
á skrifstofunni.
4ra herb. íbúð við Víkurbraut 52 á neðri hæö,
með bílskúr .................................. 1.900.000
Ca. 120ferm. gott raðhús með bílskúrvið Heiðar-
hraun ........................................ 2.700.000
Viðlagasjóðshús við Suðurvör og Staðarvör.
Verð frá 2.200.000
Austurvegur 45, góð efri hæð, mikið endurbætt.
Greiðsluskilmálar ............................... Tilboð
Höfum úrval annarra eigna á skrá. Nánari upplýsingar
á skrifstofunni.
Húsgrunnur viö Bragavelli tii sölu. Skemmtilegar teikn-
ingar. Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
lönaöarhúsnæöi við Iðavelli i Keflavík. Allar nánari uppl.
um kjör og fleira fást á skrifstofunni.
Fasteignaþjónusta Suðurnesja
Hafnargötu 31, II. hæö - Keflavfk - Símar: 3441, 3722
ÚTBOÐ
Njarðvíkurbær óskar eftir tilboðum í slátt
og umhirðu á grassvæðum bæjarins,
sumarið 1986.
Útboðsgögn eru afhent hjá bæjarverk-
stjóra.
Frestur til að skila tilboðum er til 30. apríl.
Bæjarverkstjóri
Starfsfólk og eigendur Þvottahússins við nýju vélina. F.v. Gunnar Jónsson, Hrefna Sigurðar
dóttir og Hrólfur Gunnarsson.
Þvottahúsið í nýtt húsnæði:
„Vélakosturinn sá full-
komnasti sem til þekkist“
- segja þau Hrefna Sigurðardóttir og Gunnar Jónsson,
eigendur Þvottahúss Keflavíkur
Nú um sautján ára skeið
hafa þau hjónin Hrefna
Sigurðardóttir og Gunnar
Jónsson rekið Þvottahús
Keflavíkur. Keyptu þau
fyrirtækið 1969 af Sveini
Sigurjónssyni, en þá var
það rekið í bakhúsi við
Suðurgötuna í Keflavík og
ráku þau það áfram í sama
húsnæði næstu 10 árin. Þá
fluttu þau það í bílskúr við
hús sitt í Vallartúni.
Og nú hafa þau enn á ný
flutt fyrirtækið eða úr þess-
um 50 ferm. bílskúr í 100
ferm. húsnæði að Grófinni
17a í Keflavík. En þarstarf-
ar auk þeirra hjóna, sonur
þeirra, Hrólfur.
Vegna þessara tímamóta
spjölluðu Víkur-fréttir við
þau nýlega. Sögðu þau að á
Vallartúninu hefði vinnu-
aðstaðan verið mjög farin
að há þeim vegna þrengsla,
en nú með bættri aðstöðu
hafa þau fjölgað vélakosti
og tekið í notkun eina þá
fullkomnustu vél sinnar
tegundar sem væri á mark-
aðinum í dag. Væri þessi vél
mun fljótvirkari og af-
kastameiri en hinar sem
fyrir væru.
Sögðu þau að aðal uppi-
staðan í viðskiptum þeirra
væri við Sjúkrahúsið en
einnig væri KK-húsið stór
viðskiptaaðili. Einnig hafa
viðskipti einstaklinga
aukist og með bættri að-
stöðu ættu þau enn eftir að
aukast, „enda getum við
boðið upp á það, að ekki
borgi sig að þvo stórþvott
heima“ sagði Gunnar, „og
ef eitthvað bráðnauðsyn-
legt kemur upp á, getum við
bjargað þvotti með eins til
tveggja sólarhringa fyrir-
vara“ bætti Hrefna við.
Þá hafa þau tekið upp
nýja þjónustu, sem er dúka-
leiga og hafa þau ekki ann-
að eftirspurninni, en á því
verður að þeirra sögn gerð
bót fljótlega. En auk
venjulegs þvotts taka þau
að sér þvott á öllum gervi-
efnum, gardínum og að
sjálfsögðu stífingu á dúk-
um o.fl.
En gefum Hrefnu loka-
orðin: „Við þessa breytingu
sem er samfara stærra og
betra húsnæði, munum við
sem áður bjóða upp á eins
góða þjónustu og hægt er
og er það von okkaraðfólk
nýti sér hana.“ -epj.
Bakað í búðinni
Það er ekki ofsagt að
„kaffikonditorið“ hans
Ragnars í Ragnarsbakaríi
sé bjart yfirlitum og vist-
legt í alla staði. Hafa breyt-
ingarnar tekist í alla staði
mjög vel.
Auk þess sem rekið er
þarna nokkurs konar kaffi-
hús.þáeráboðstólum mik-
ið úrval af brauðum og kök-
um, og-jxá.m. kökur sem
bakaðar eru í búðinni, og
gefst viðskiptavinum því
kostur á að snæða þær heit-
ar. - epj.
Um afgreiðsluna sjá þær Ásta Guðmundsdóttir (t.h.) og Steina Þórey Ragnarsdóttir, og sjást þær hér
bak við afgreiðsluborðið.