Víkurfréttir - 17.04.1986, Síða 9
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 17. apríl 1986 9
muR
futUt
STERKUR
AUGLÝSINGA-
MIÐILL
Vímuefnalaus æska
Almennur fundur um
fíkniefnavandamálið verð-
ur haldinn í Félagsbíói,
Keflavík, laugardaginn 19.
apríl n.k. kl. 14.
Fundurinn er opinn öllu
áhugafólki um varnir gegn
notkun flkniefna og er
ungu fólki sérstaklega boð-
ið að koma á fundinn.
Nemendur Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja leggja
baráttu þessari mikið og
gott lið og eru nemendur
FS, Holtaskóla og annarra
skóla á Suðurnesjum
hvattir til að koma á fund-
inn ásamt foreldrum og
öllu áhugafólki um þessi
mál.
Fundarstjóri verður
Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir, nemi við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
Dagskrá fundarins verð-
ur þessi:
Kvikmynd um afleiðing-
ar fíkniefnaneyslu (30 mín).
Ávörp og ræður flytja:
Birgir Þórarinsson, nemi
við Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, Garðar Vilhjálmsson,
nemi í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, Arnar Jensson,
yfirmaður fíkniefnalög-
reglu ríkisins, Óttar Guð-
mundsson, yfirlæknir
sjúkrastöðvar SÁÁ, Vogi,
Ómar Ægisson, fræðslu-
fulltrúi SAÁ.
Að loknum framsögu-
ræðum munu frummælend-
ur svara fyrirspurnum
fundarmanna.
Fundurinn er haldinn að
frumkvæði Lionsklúbbs
Keflayíkur, Lionsklúbbs-
ins Óðins og Lionessu-
klúbbs Keflavíkur. Eigend-
um Félagsbíós eru færðar
þakkir fyrir að leggja fram
húsið endurgjaldslaust.
Keflvikingar og Suður-
nesjamenn eru hvattir til að
fjölmenna á fundinn.
í LANDSBANKANUM FÆRÐU
DOLLARA, PUND, MÖRK,
FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR,
ESCUDOS OG LÍRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM
g þá er ekki allt upp talið. 1 öllum afgreiðslum Landsbankans geta
ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda
okkar vísum.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávalll fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
Góða ferð.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Keflavíkurflugvelli, sími 2170
Grindavík, sími 8179
Sandgerði, sími 7686
vimu
efni, nei takk!
FoIIqw the n«west
cat-ancfcreature
gameasptayed
through
■ mm m% vsrs mwaw mmi ims wocos
mmm wm&m««avts?» tmí
NÝTT
EFNI!