Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.06.1986, Síða 2

Víkurfréttir - 19.06.1986, Síða 2
2 Fimmtudagur 19. júní 1986 VÍKUR-fréttir V VÍKUR Útgefandi: Víkur-fréttir hf. Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 14, II. hæð - Sími 4717 - Box 125 - 230 Keflavík Ritstjórar: Emil Páll Jónsson, heimasími 2677 Páll Ketilsson, Auglýsingastjóri: heimasími 3707 Páll Ketilsson Fréttastjóri: Emil Páll Jónsson Upplag: 4500 eintök, sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes hvern fimmtudag. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavík Fasteignaþjónusta Suðurnesja Noröurvellir 54, Keflavik: Nýlegt 140 ferm. parhús með bílskúr ... 3.850.000 Hólagata 33, Njarövík: Einbýlishús m/4 herbergj- um ásamt bílskúr. Nónvaröa 10B, Keflavík: 3ja herb. neðri hæð í fjór- býli ........... 2.250.000 KEFLAVÍK: 3ja herb. risíbúðvið Hátún. Útborgun aðeins45% á árinu ..................................... 1.200.000 3jaherb. neðri hæöviö Hringbraut, lausfljótlega 1.700.000 2ja herb. neðri hæð við Faxabraut, laus strax . 1.050.000 4ra herb. góö neðri hæð við Hringbraut ...... 2.050.000 4ra herb. neðri hæð m/bílskúr við Hringbraut, laus strax .................................. 2.100.000 4ra-5 herb. íbúð m/bílskúr við Hringbraut 136. Skipti möguleg á ódýrari eign ............... 2.050.000 Raðhús við Greniteig, Mávabraut, Miðgarð og víðar. Verð frá ............................. 2.150.000 Parhús með 60 ferm. bílskúr við Hátún ....... 2.700.000 150 ferm. einbýlishús við Grænagarð m/bílskúr 4.000.000 NJARÐVÍK: 2ja herb. ibúð viö Þórustíg ............. 1.000.000 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir við Fífumóa og Hjallaveg. Nán- ari upplýsingar á skrifstofunni. Til sölu er gott einbýlishús ásamt bílskúr viö Njarövíkur- braut í l-Njarövik á kr. 3.300.000. Góöir greiðsluskilmálar. Einnig er möguleiki á skiptum á íbúö i Keflavik eöa Njarövik. Frágengiö nýlegt einbýlishús (timburhús) viö Bragavelli ásamt 50 ferm. bilskúr. Teikningar og allar aörar upplýsingar s.s. um verö o.fl. fást á skrifstofunni. SANDGERÐI: Góð 4ra herb. efri hæð með bílskúr við Suður- götu .................................... 1.700.000 Fasteignaþjónusta Suðurnesja Hafnargötu 31, II. hæö - Keflavik - Simar: 3441, 3722 ATVINNA Starfskraftur óskast allan daginn í afleys- ingar, ekki yngri en 25 ára. Reynsla æski- leg. HANNYRÐAVERLSUNIN ÞYRI Hafnargötu 6 - Keflavík - Sími 1223 Magnús H. Guðjónsson, heilbrigðisfulltrúi og dýralceknir: „Tvö til þrjúhundruð bílhræ á skaganum“ Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur nú nýlega hafið herferð hér á svæðinu sem fyrst og fremst beinist að brottflutningi bílhræja. Heilbrigðis- nefnd Suðurnesja hefur á sínum snærum tvo heil- brigðisfulltrúa þá Magnús H. Guðjónsson og Jóhann Sveinsson. Það er þeirra hlutverk að ganga eftir því að fyrirskipanir heilbrigðiseftir- litsins séu framkvæmdar. Til að forvitnast nánar um herferð þessa og umhverfis-heilbrigðismál á Suðurnesjum almennt var Magnús tekinn tali. Víðtæk völd „Hlutverk heilbrigðis- nefnda og heilbrigðisfull- trúa er að starfa að heil- brigðismálum almennt. Við vinnum eftir nýlegum lögum sem fjalla um „Holl- ustuhætti og heilbrigðis- eftirlit." Þessi lög marka rammann um okkar starfs- svið. Þau eru merkileg fyrir þær sakir að þau legja mikla aherslu á umhverfi og mengun, miklu meiri en gömlu lögin gerðu. í þess- um lögum segir m.a. í yrstu grein að lögum óessum sé ætlað að tryggja andsmönnum svo heilnæm ífsskilyrði sem á hverjum tíma eru tök á að veita. I annari grein segir ennfrem- ur að með markvissum að- gerðum skuli vinna að þessu m.a. með því að tryggja sem best eftirlit með umhverfi, húsnæði og öðrum vistarverum, al- mennri hollustu matvæla og annara neysluvara og vernda þau lífsskilyrði sem felast í ómenguðu umhverfi hreinu lofti, úti og inni, og ómenguðu vatni. Semsagt okkur er |ert að tryggja heilnæm lifsskil- yrði m.a. með eftirliti með umhverfi, enda er drasl og óþrifnaður í umhverfinu mengun, s.k. sjónmengun. Með stoð í þessum lögum eru svo settar heilbrigðisreglugerðir þar sem heilbrigðisnefndum eru gefin mjög víðtæk völd. Heilbrigðisfulltríuar sjá svo aftur um framkvæmd starfa fyrir nefndirnar. I þeim völdum sem heil- brigðisnefndirnar hafa felst meðal annars leyfi til þess að láta hreinsa lóðir einka- aðila og bæjarfélaga á kostnað eigenda ef þeir skirrast við að verða við fyrirmælum heilbriðisfull- trúa.“ upp á síðkastið og orðið mikil breyting til batnaðar. Þrátt fyrir þetta tel ég að við stöndum ennþá nokkuð illa að vígi miðað við önnur sveitarfélög. Það er meira drasl hérna hjá okkur, en jað hefur orðið hugarfars- íreyting og fólk hérna vill lafa hreint í kringum sig.“ Er mikið um kvartanir til ykkar vegna umhverfis- mála? „Það er nú kannski ekki mikið kvartað til okkar þó það sé nokkuð. A þessum árstíma eru flestar þessar kvartanir vegna umhverfis- mála. Fólk er kannski að snyrta eigin garða og í kringum sig en svo er næsti garður allur í rusli og kannski fjórum bíilhræjum staflað upp við húsvegg. Þetta angrar eðlilega rólk því það vill ekki svona umgengni. Tvö til þrjúhundruð bílhræ Er eitthvað á döfinni hjá eftirlitinu í þessum málumf „Já við erum að fara af stað með herferð, þar sem númerslausir bílar verða teknir og dregnir í burtu hvar sem til þeirra næst. þá gildir einu hvort bílarnir eru á einkalóð eða opinberri lóð. Við límum á bílana miða, þar sem eigandanum er gefinn viku frestur til að fjarlægja hann og þá þýðir ekkert að draga hann inn á einkalóð því lögin gera engan greinar- mun á því hvort um einka- eða opinbera lóð er að ræða.“ Er mikið af númerslaus- um bílum hér á svxðinuf „Já ég reikna með því að það séu á milli tvö og þrjúhundruð bílhræ á öllum skaganum og stafar af þeim mikil óprýði.“ Magnús H. Guðjónsson Hvernig verður staðið að þessari hreinsunf „Við erum að semja við aðila sem hefur kranabíla til þess að fjarlægja hræin og ef eigendurnir vilja leysa þau út, þá verða þeir að borga áfallinn kostnað. Ef bíll verður ekki sóttur, þá er ætlunin að selja hann upp í áfallinn kostnað." Hnökralaust samstarf. Verða bílarnir þá farlxgðir á kostnað eig- enda? Það er heimild fyrir því í lögunum og það gildir um alla lóðahreinsun en sem betur fer þarf heilbrigðis- eftirlitið sjaldan að grípa til slíkra aðgerða. Eg vil ítreka það að samstarfið við einstaklinga og eigendur fyrirtækja hefur yfirleitt verið hnökralaust.“ Eitthvað að lokum, sem þú vilt koma aðf „Þegar heilbrigðiseftir- litið fer af stað með slíka herferð þá verður henni fylgt eftir og engar undan- tekningar gerðar nema eitthvað sérstakt komi til, s.s. ef númer eru lögð inn einhvern hluta ársins. Svo vil ég skora á alla Suðurnesjamenn að fegra umhverfi sitt og halda áfram þeirri þróun sem nú á sér stað í þessum málum. Með sama áframhaldi getum við gert öll þvingun- arákvæði heilbrigðislag- anna óþörf og því hljótum við að stefna að,“ sagði Magnús H. Guðjónsson að lokum. -gæi Hugarfarsbreyting Hver er staða heilbrigðis- mála á Suðurnesjum í dag? „Það er ljóst að umhverf- ismál á Suðurnesjum hafa tekið stakkaskiptum núna VIKUR- FRÉTTIR VIKULEGA

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.