Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.06.1986, Síða 5

Víkurfréttir - 19.06.1986, Síða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 19. júní 1986 5 NJARÐVÍKURBÆR: Gagngerar breytingar á bæjarskrifstofu og áhaldahúsi Undanfarna mánuði hafa staðið vfir breytingar á skrifstofum og ahaldahúsi Njarðvíkurbæjar á Fitjum. Þeim er nú lokið og hefur bærinn aukið skrifstofu- rými sitt um 40%. en á síðustu árum hefur mjög þrengt að og orðið aðkall- andi að stækka. Njarðvíkur bær flutti í núverandi hús- næði að Fitjum árið 1966 og hefur nánast ekkaert verið breytt síðan. Núna eftir brevtingarnar er afgreiðsla innheimta, launabókhald og félagsmálafulltrúi á neðri hæð sem áður var skrifstofa rafveitunnar auk þess sem áhaldahús bæjar- ins hafði aðsetur fyrir skrif- stofu verkstjóra svo og kaffistofu. Aðstaða áhalda- húss hefur verið færð innar í húsinu og betrum bætt, ný kaffistofa, snyrting og skrif stofa. A efri hæð verður áfram aðsetur bæjarstjóra, bygg- ingafulltrúa og bæjarritara svo og fundarsalur. Inn- réttingar á neðri hæðinni eru allar hinar smekkleg- ustu, og ætti ekki að væsa um bæjarbúa þegar þeir koma að greiða gjöldin sín í vistlegri afgreiðslunni. Yfirumsjón með breyt- ingunum var í höndum Verkfræðistofu Njarðvík- ur. Smiðir voru Jón og Gunnar, pípulagning: Jónas Guðmundsson, raf- virkjun: Asmundur Jóns- son, málning: Aki Granz, innréttingar: Héðinn Skarphéðinsson og Ragnar Halldórsson, múrun: Olaf- ur Arthúrsson. Einnig tóku starfsmenn áhaldahúss þátt í vinnunni við breytingarn- ar. Sl. föstudag var starfs- mönnum, bæjarfulltrúum og ýmsum gestum boðið í hið nýja og endurbætta húsnæði. Við það tækifæri flutti Albert K. Sanders stutta tölu og sagði jafn- framt að öllum líkindum yrði þetta sitt síðasta embættisverk fyrir bæinn en hann hverfur nú frá störf" um sem bæjarstjóri. Voru meðfylgjandi myndir teknar við þetta tækifæri. pket. Drengirnir í 6. flokki Víðis í Garði hlupu nýlega „áheita- hlaup“ vegna keppnisferðalags þeirra til Vestmannaeyja. Þay keppa þeir í Tommamótinu ásamt liðum frá öllum landshornum. A myndinni hér að ofan sjást tveir peyjar ásamt Mark Duffield skokka eftir Garðveginum. I baksýn sést rútan þar sem afgangurinn af liðinu hélt sig. Ljósm.: GVK. Bæjarstjórinn fráfarandi, Albert K. Sanders, ásamt starfsstúlkum á skrifstofu Njarðvíkurbæjar. Ljósm.: GVK JÁRN & SKIP Víkurbraut 15 Sími 1505 PINOTEX STRUKTUR kallar fram náttúrulegt útllt viöarins Struktur er olíuefni sem er framúrskarandi yfirborðsviðarvörn. Einnig frábaert til „andlitslyftingar" á þrýstivörðu tré. Gegnsætt og fáanlegt í öllum Sadolin litunum. PIONOTEX EXTRA Hálfþekjandi vlöarvörn meö miklu þurrefnisinni- haldl. Lyktarlaust og slettist ekki. Endist árum saman. Æðar viðarins njóta sín. PINOTEX SUPERDEC Þekjandi viöarvörn þegar breyta á um lit. Þekjandi viðarvörn úr acryl olíuefnum. Olían síast í viöinn og acrylefnið myndar yfirborðshimnu. Hámarksveðrunarþol, lyktarlaust og slettist ekki. PINOTEX NATUR er eina glœra viðar- vörnin sem tryggir aö viðurinn gráni ekki. Natur inniheldur Ijóssíur sem verja viðinn fyrir áhrif- um útfjólublárra sólargeisla. Munið að glæra viöarvörn, að undanskildu Pinotex Natur, má aldrei nota eina sem lokameðferð á tréverkinu, því það eru litarefnin í öörum tegundum sem verja viðinn gegn sólargeislunum. GORI - FÚAVÖRN GORI 22 er grunnur og djúpvörn. GORI 44 er viðarfrískandi yfirborðsvörn. GORI 55 er lekafrítt, varanlegtyfirborösefni. (t.d. þar sem gróður er) GORI 88 er þekjandi lekafrítt varanlegt yfir- borösefni. Slettist hvorki né lekur. GORI tréolfa til viöhalds á þrýsti- vörðum viði. GORI INTERIÖR er yfirborðshúð á innan- hússviö, GORI Alge fjerne er til eyðingar á sveppum og mosa á trjám.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.