Morgunblaðið - 17.11.2015, Síða 1

Morgunblaðið - 17.11.2015, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  270. tölublað  103. árgangur  GETUR VARLA BEÐIÐ EFTIR ÓLYMPÍULEIKUNUM MÖRG NÝ BIFHJÓL FRUMSÝND TUNGUMÁLIÐ ER SÍLIFANDI HREYFIAFL EICMA BÍLAR DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU 31HRAFNHILDUR LÚTHERSDÓTTIR ÍÞRÓTTIR Baldur Arnarson baldura@mbl.is Félög Rauða krossins á Norður- löndum búast við frekari straumi flóttamanna og horfa þar meðal ann- ars til vaxandi átaka í Afganistan. Stríð í Sýrlandi, Erítreu og árásir Ríkis íslams í Írak eru einnig taldar munu leiða til áframhaldandi flótta- mannastraums til Evrópu. Þetta sagði Áshildur Linnet, verk- efnastjóri hjá Rauða krossinum, að loknum fundi félaga Rauða krossins á Norðurlöndum, sem fram fór í Kaupmannahöfn í gær. Áshildur segir að þótt hægt geti á straumi flóttamanna til Evrópu yfir hávetur- inn sé búist við að straumurinn auk- ist á ný með vorinu. „Við vorum að stilla saman strengi. Við þurfum að fara að hugsa lengra fram í tímann og umfram þau neyðarviðbrögð sem hafa verið um alla álfuna. Það er ljóst að með aukn- um fjölda hælisleitenda mun aukinn fjöldi hælisleitenda fá vernd.“ Stuðli að aðlögun fólksins Áshildur segir að huga þurfi að næstu skrefum. „Það þarf að tryggja að þetta fólk fái tækifæri í sam- félögum okkar og fari í verkefni sem stuðla að aðlögun. Það er auðvitað langt ferli. Rauði krossinn er að skoða hvernig hann getur fundið sjálfboðaliða til þess að styðja fólk til lengri tíma,“ segir Áshildur. Fái hælisleitandi vernd fær hann að setjast að í viðkomandi samfélagi. Margt er í undirbúningi vegna straums hælisleitenda til Íslands. Búast við frekari straumi flóttamanna  Félög Rauða krossins funda í Kaupmannahöfn  Spá því að fólk muni flýja stríð og fara til Evrópu Koma í desember » Áshildur segir unnið að því að 55 kvótaflóttamenn komi til Íslands í desember. » Nú sé miðað við að fólkið komi allt í einu lagi. Börn eru í meirihluta í þessum hópi. MAuka þjónustu … »6  Lögregla og Rannsóknarnefnd samgönguslysa taka nú við Perlu til rannsóknar en skipið náðist á flot í gærkvöldi eftir mikla aðgerð í Gömlu höfninni í Reykjavík. Leitað verður að orsökum óhappsins þegar skipið sökk í byrj- un mánaðarins. Tryggingafélag skipsins tekur síðan ákvörðun um framtíð skipsins. »2 Leitað að ástæðum þess að Perla sökk Dæling Skrokkur Perlu kemur í ljós.  Allt bendir til að næsti heims- forseti Lions komi frá Íslandi, og verði að auki fyrsta konan til að gegna því embætti í 100 ára sögu hreyfing- arinnar. Guðrún Björt Yngvadótt- ir, Lionskl. Eik, er í framboði ásamt 13 öðrum en hefur fengið opinbera stuðnings- yfirlýsingu m.a. frá alþjóðastjórn Lions og núverandi forsetateymi. Kjörið fer fram í júní nk. »14 Næsti heimsforseti Lions frá Íslandi? Guðrún Björt Yngvadóttir Hagaskóli bar sigur úr býtum í Skrekk, hæfi- leikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, en lokakvöldið var haldið með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu í gær. „Þetta var öflugt atriði með sterkri vísun í kvennabaráttuna og femín- isma,“ segir Héðinn Sveinbjörnsson, verkefna- stjóri keppninnar, en stelpurnar hafi lagt allt sitt í atriðið. Árbæjarskóli hreppti annað sætið og Seljaskóli hið þriðja. Unglingarnir létu sér fátt óviðkomandi í listrænni sköpun sinni en mikil fagnaðarlæti brutust út jafnt hjá keppendum og áhorfendum þegar úrslitin voru gerð ljós. Morgunblaðið/Golli Sigurvegarar Skrekks leyfðu gleðinni að taka völdin Hagaskóli vann hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík  Viðræður um möguleg kaup ís- lenskra lífeyris- sjóða á allt að 83% hlut slitabús Kaupþings í Ar- ion banka hófust í gær. Efnt var til þeirra í kjölfar þess að þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins sammæltust um að hafa forgöngu um viðræður við núver- andi eigendur. Engin niðurstaða varð af fyrsta fundi en búist er við að boðað verði til annars fundar strax í næstu viku. »15 Viðræður um sölu Arion eru hafnar Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Hryðjuverk munu aldrei tortíma lýð- veldinu, því lýðveldið tortímir hryðju- verkasamtökum,“ sagði Francois Hollande, forseti Frakklands, þegar hann ávarpaði þingið í Versölum í gær í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París á föstudag. Lýsti hann yfir stríði og sagði að ráðist hefði verið að landinu því Frakkland væri land frelsis og mannréttinda. „Frakkland mun tortíma Ríki ísl- ams,“ sagði Hollande í ávarpi sínu og hyggst funda með leiðtogum Banda- ríkjanna og Rússlands til að ræða leiðir að því markmiði. „Lýðræðisrík- ið okkar hefur sigrað andstæðinga sem voru mun erfiðari en þessir hug- leysingjar,“ sagði Hollande jafnframt við þingið. Hét hann því að auka hernaðaraðgerðir Frakka í Sýrlandi og kallaði eftir hertu landamæraeft- irliti innan Evrópusambandsins. Fátt bendir til að helstu leiðtogar iðnríkja heims, G-20, hafi náð sam- komulagi um að samræma aðgerðir gegn Ríki íslams í Sýrlandi og Írak á tveggja daga fundi sínum í Tyrklandi sem lauk í gær. Bandaríkjaforseti átti óformlegan fund með forseta Rúss- lands um málið. Tilræðismaður gengur enn laus Enn er talið að einn hryðjuverka- mannanna, Salah Abdeslam, gangi laus en yfir 20 manns hafa verið hand- teknir í skjóli neyðarlaga Frakklands og teknir til yfirheyrslu. Munum tortíma Ríki íslams  Frakklandsforseti lýsti yfir stríði á þingfundi í Versölum  Kallað eftir hertu landamæraeftirliti í Evrópusambandinu  Samkomulag ekki í höfn á G-20 fundi MHryðjuverk í París »16-17 AFP Þögn Hollande tók þátt í mínútu þögn í minningu fórnarlambanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.