Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 2

Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn mánudaginn 30. nóvember n.k kl. 18:00 að Hlíðarenda Dagskrá aðalfundar eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995. 1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs. 2. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kjör stjórnar. 6. Kjör endurskoðanda. 7. Önnur mál. AÐALFUNDUR VALSMANNA hf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki hefur verið ákveðið hvað gert verður við dæluskipið Perlu sem náðist af botni Gömlu hafnarinnar í Reykjavík í gærkvöldi. Undir mið- nættið var lokið við að dæla sjó úr skipinu og gengið frá því við Ægis- garð. Mikið var lagt í aðgerðina í gær. Starfsmenn útgerðarinnar, Björgun- ar hf., stjórnuðu aðgerðum í umboði tryggingafélags skipsins. Tveir dráttarbátar og ekjubrú Faxaflóa- hafna héldu við skipið á bakborða og haldið var í það frá hinni hliðinni með togspilum hafrannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar sem var hinum megin Ægisgarðs og sneri skut sín- um að bryggjunni. Öflugur krani var á bryggjunni. Mikill undirbúningur hafði farið fram áður en dæling hófst eftir há- degið í gær. Meðal annars höfðu ver- ið reiknaðar nákvæmlega út breyt- ingar á stöðugleika skipsins við dælingu. Öflugar dælur voru notaðar og lyftist skipið hægt framan af degi. Um miðjan dag þurfti að gera við rúðu sem brotnaði í stýrishúsinu. Þegar dæling hófst á ný virtist skipið losna úr leðjunni á botni hafnarinnar og komast á flot. Eftir það var dælt varlega og skipið stillt jafnóðum af til að tryggja að það sykki ekki aftur. Ástæðurnar rannsakaðar „Það er farið að birta yfir mann- skapnum. Mér sýnist þetta vera að hafast,“ sagði Gísli Gíslason hafnar- stjóri í gærkvöldi. Seint í gærkvöldi var Perla farin að fljóta og þá var farið með skip og búnað sem notaður var til að styðja við hana. Gísli sagði að markmið hafnarinn- ar hefði verið að tryggja að mengun bærist ekki frá skipinu og koma því frá bryggjunni. Framhaldið væri í annarra höndum, svo sem hvað yrði um skipið. Hann bjóst við að Perla yrði við Ægisgarð á meðan Rann- sóknarnefnd samgönguslysa, lög- reglan og tryggingafélagið rannsök- uðu skipið til að leiða í ljós orsakir óhappsins. Morgunblaðið/Júlíus Blár skipsskrokkur Vel sást í meginhluta skrokks Perlu snemma kvölds í gær. Áfram var haldið að dæla úr því. Mikill tækjabúnaður var á staðnum. Dæluskipið þurrausið  Dælt var úr Perlu fram eftir kvöldi í gær og stöðugleiki tryggður við Ægisgarð  Við tekur rannsókn á ástæðum óhappsins og ákvörðun um framhaldið Dæling Mikið verk var framundan þegar dæling hófst eftir hádegið í gær. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur nauðsynlegt að ná fiskiskipinu Jóni Hákoni BA 60 sem sökk við Að- alvík í byrjun júlí sl. af hafsbotni til að ljúka rannsókn slyssins. Nefndin hefur ákveðið að það verði reynt og hefur innanríkisráðuneytið lýst því yfir að það muni styðja verkefnið, gerist þess þörf. Jón Arilíus Ingólfsson, rann- sóknarstjóri sjóslysa hjá nefndinni, segir að frumrannsókn sé lokið. Nefndin telji að rannsókninni verði að ljúka með því að taka bátinn upp. Þar er bæði um að ræða rannsókn á ástæðum þess að bátnum hvolfdi og ástæðum þess að björgunarbúnaður hans virkaði ekki rétt, þar á meðal gúmbjörgunarbátar. Einn maður fórst í slysinu en þrír björguðust naumlega. Ekki liggur fyrir hvenær farið verður í aðgerðir til að ná bátnum upp. Hann liggur á um 80 metra dýpi. Jón segir að reyna verði að koma böndum á skipið og færa það á grynnri sjó til þess að kafarar geti komist að því og fleytt því áfram. Jón segir að þetta krefjist sérfræðivinnu sem þurfi að skoða betur. Segir hann að ómögulegt sé að segja til um kostnað við aðgerðina. Hann fari eft- ir veðri og öðrum aðstæðum. Komnir á þann stað núna „Ákveðin frumrannsókn fór af stað. Við þurftum að hafa ástæðu til þess að biðja um að skipið yrði híft upp. Nú erum við komnir á þann stað í rannsókninni,“ segir Jón Arilíus þegar hann er spurður hvers vegna ekki hafi verið gengið í það í sumar að ná skipinu upp. helgi@mbl.is Styðja aðgerðir til að ná Jóni Hákoni af hafsbotni  Rannsóknarmenn þurfa flakið til að ljúka rannsókn Kröfur » Samtök sjómanna og út- vegsmanna og fleiri hafa kraf- ist þess að Jón Hákon verði hífður af hafsbotni þannig að hægt verði að ljúka að fullu rannsókn á ástæðum slyssins og virkni björgunarbúnaðar. Íslensku karlalandsliðin byrja illa á Evrópumóti landsliða sem fram fer í Reykjavík þessa dagana. A-lið Ís- lands tapaði fyrir Ítalíu í 4. umferð- inni í gær með 1,5 vinningum gegn 2,5 vinningum. Hannes Hlífar Stef- ánsson tapaði á fyrsta borði. A-liðið er í 29. sæti af 36 liðum. Færeyingar unnu Skota með 3,5 vinningum gegn hálfum. Er það fyrsti sigur landsins á EM enda að taka þátt í fyrsta skipti. Gullaldarliðið tapaði fyrir Lett- landi með 1 vinningi gegn 3. Helgi Ólafsson gerði jafntefli við Alexei Shirov og Margeir Pétursson hélt einnig jöfnu í sinni viðureign. Landslið kvenna gerði jafntefli við sterkt lið Svía. Lenka Ptacni- kova og Guðlaug Þorsteinsdóttir unnu sínar skákir. Íslensku liðin byrja illa á Evrópumóti landsliða í skák Morgunblaðið/Eggert Höllin Þungt hugsi landsliðsmenn. Spár gera ráð fyrir því að loftið yfir landinu verði upp úr miðri viku með því kaldasta sem gerist í nóvember. Búist er við 10 til 12 stiga frosti á norðan- og austanverðu landinu á fimmtudag en eftir það fari aftur að hlýna með vestlægri átt. Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag með slyddu eða snjókomu norðan- og austanlands, en að mestu þurru á sunnan- og vestan- verðu landinu. Veður fer kólnandi. Á morgun herðir frostið fyrir norð- an og á fimmtudag verður frostið 4 til 12 stig, kaldast fyrir norðan og austan. Kuldakast á fimmtu- dag og föstudag Jarðskjálfti upp á 3,2 stig varð í öskju Bárðarbungu í hádeginu í gær. Á mælum Veðurstofunnar hefur komið fram merkjanlega meiri jarðskjálftavirkni að undanförnu en verið hefur lengst af frá gosinu í Holuhrauni. Einar Hjörleifsson náttúruvársérfræðingur segir að Veðurstofan fylgist grannt með þróuninni. Fylgjast grannt með Bárðarbungu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.