Morgunblaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 gefðu Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is vívoactive Verð 46.900 vívofit 2 Verð 19.900 Hvort sem það er einfaldleik- inn við vívofit 2 sem þarf ekki að hlaða, snjallsímalausnir og innbyggði púlsmælirinn í vívosmart HR eða GPS mót- takarinn og golfvellirnir í vívoactive þá eiga heilsuúrin frá Garmin það sameiginlegt að hreyfa við þér. Láttu Garmin hreyfa við þér, þinn líkami á það skilið! vívosmart HR Verð 26.900 Heilsuúrin sem hreyfa við þér! Viðskiptablaðið vísar til orðaforsætisráðherra í viðtali á Bylgjunni varðandi Schengen- samstarfið. Þar hafi forsætisráð- herra sagt:    Ef fram heldursem horfir eins og staðan er núna, þá er þetta (samstarf) í raun- inni bara úr sög- unni. Því ytri landa- mærin eru opin. Það koma þúsundir, stundum meira en tíu þúsund manns inn fyrir Scheng- en á degi hverjum án þess að það sé með eðlilegum hætti. Fyrir vikið eru menn farnir að loka landamær- um hér og þar í Evrópu.“ Sigmundur segir það augljóst að þetta muni hafa áhrif á okkur ef þetta breytist ekki.“    Schengen-samstarfið var umdeil-anleg ákvörðun fyrir Ísland. Þáverandi ríkisstjórn féllst á aðild að eindreginni tillögu fagráð- herranna tveggja, utanríkis- og dómsmálaráðherra, sem töldu kosti aðildar meiri en galla. Bretar bentu á að sérstaða Íslands og þeirra sem eylands yfirskyggðu meinta kosti.    Kostirnir áttu að felast í nálgunupplýsinga sem Íslendingar yrðu ella án. Ekki hefur sést með nákvæmni hvaða upplýsingar það væru sem ríki beggja vegna Atl- antshafs myndu leyna fyrir Íslend- ingum stæðu þeir utan Schengen og þá hvers vegna. Lítið gagn hef- ur verið að meintu „upplýs- ingaaðgengi“ um „flóttamenn“ sem hafa átt létta leið hingað vegna Schengen.    Því ættu yfirvöld strax að takaákvörðun um að hverfa úr þessu samstarfi. Það liggur beint við. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ákvörðun nú er rétt skilaboð STAKSTEINAR Veður víða um heim 16.11., kl. 18.00 Reykjavík 5 skýjað Bolungarvík 4 alskýjað Akureyri 3 rigning Nuuk -5 léttskýjað Þórshöfn 8 skúrir Ósló 0 snjókoma Kaupmannahöfn 10 skúrir Stokkhólmur 2 léttskýjað Helsinki 5 skúrir Lúxemborg 10 alskýjað Brussel 12 skýjað Dublin 6 skýjað Glasgow 6 skúrir London 13 léttskýjað París 12 alskýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 12 skýjað Berlín 12 súld Vín 15 skýjað Moskva -2 alskýjað Algarve 20 heiðskírt Madríd 7 heiðskírt Barcelona 18 heiðskírt Mallorca 18 léttskýjað Róm 10 heiðskírt Aþena 17 léttskýjað Winnipeg 6 léttskýjað Montreal 3 skýjað New York 15 heiðskírt Chicago 10 léttskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:03 16:24 ÍSAFJÖRÐUR 10:28 16:08 SIGLUFJÖRÐUR 10:12 15:50 DJÚPIVOGUR 9:37 15:48 Lulu Monk Andersen, byggingar- fulltrúi í Borgarbyggð, segir að ekki hafi gefist tími til þess að senda sýslumanni umsögn þar sem fram kemur að byggingarleyfi gisti- húss á Egilsgötu 6 í Borgarnesi hafi verið fellt úr gildi. Sýslumaður gef- ur út rekstrarleyfi en það hefur ekki verið fellt úr gildi þrátt fyrir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi komist að þeirri niðurstöðu að byggingarleyfi sem gefið var út fyrir tveimur árum hafi ekki staðist kröfur um málsmeðferð hinn 24. september sl. Er því enn starfsemi í húsinu. „Þetta fólk er náttúrlega búið að breyta húsinu í góðri trú eins og upprunalega leyfið gerði ráð fyrir,“ segir Lulu. Hún segir að málið hafi verið tekið upp í umhverfis-, skipulags og landbún- aðarnefnd og ákveðið hafi verið að grenndarkynna húsið upp á nýtt. „Þangað til það er búið fer maður ekki fram á að fólk færi húsið í upprunalegt form,“ segir Lulu. Hún segir að málið sé í lagalegu tóma- rúmi sem stendur. „Það hefur ekki gefist tími til þess að senda umsögn til sýslumanns. Það er mikið að gera hjá okkur og svo hef ég leitað álits lögfræðings um það hvaða áhrif úrskurðurinn hefur núna strax,“ segir Lulu. vidar@mbl.is Ekki tími til að senda umsögn  Byggingarleyfi fellt úr gildi 24. september  Enn starfsemi í húsinu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Borgarnes Enn er starfsemi í gistihúsi við Egilsgötu 6. Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur sýknað eig- endur veitinga- staðarins Sushisamba í Reykjavík af öll- um kröfum er- lendu veitinga- keðjunnar Samba, sem á og rekur veitinga- staði í fjórum borgum í Bandaríkj- unum og einn í Lundúnum undir sama heiti, þ.e. Sushisamba. Meðal þess sem krafist var má nefna viðurkenningar með dómi að eigendum veitingastaðarins hér á landi sé óheimilt að nota heitið Sushisamba í veitingarekstri sínum, að ákvörðun Einkaleyfastofnunar, frá 10. október 2013 um að hafna kröfu um ógildingu á vörumerkja- skráningu, verði hafnað og að eig- endur Sushisamba í Reykjavík verði dæmdir til að greiða erlendu veit- ingakeðjunni 15 milljónir króna með dráttarvöxtum. Samkvæmt dómi verður skráning á merki Sushisamba í Reykjavík ekki fellt úr gildi og þarf Samba að greiða eigendum Sushisamba 1.250.000 krónur í málskostnað. Tekist var á um heitið í dómsal. Mega nota heitið áfram  Sushisamba hafði betur í héraðsdómi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.