Morgunblaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 LÁTTU EKKI HÓSTA SPILLA SVEFNINUM Hóstastillandi og mýkjandi hóstasaft frá Ölpunum Sími 555 2992 og 698 7999 NÁTTÚRU- AFURÐ úrselgraslaufum Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16 www.facebook.com/gaborserverslun Skór og töskur Gæði & glæsileiki í miklu úrvali Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Peysa/Jakki Verð 8.900 str. M-XXXL Osta fondue-veisla Komdu þínum á óvart 4.990,-ámann bóka þarffyrirfram Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Guðmundur Guð- mundsson, fyrrverandi útgerðarmaður á Ísa- firði, lést síðastliðinn föstudag, 99 ára að aldri. Guðmundur fæddist 11. apríl 1916 í Hnífsdal þar sem hann ólst upp. Hann fór ungur til sjós og lauk svonefndu minna fiskimannaprófi árið 1939 og meira fiski- mannaprófi, skipstjórn- arréttindum þess tíma, árið 1949. Guðmundur var lengi skipstjóri á Bryndísi ÍS og síðar Hafdísi ÍS. Á fertugsaldri kom hann í land og var hafnsögumaður á Ísafirði um árabil. Árið 1954 sneri hann sér að útgerð og stofnaði Hrönn hf. ásamt fleirum. Guðmundur var lengi í forsvari fyrir útgerðina í landi, en Ásgeir Guðbjartsson var lengstum skipstjóri á Guðbjörgu ÍS, en Hrönn hf. átti og gerði út mörg skip með því nafni. Fyrirtækið sameinaðist Sam- herja hf. á Akureyri árið 1997 en Guðmundur var við störf fram á níræð- isaldur. Hann var formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða frá 1963 til 1987, auk þess sem hann sat lengi í stjórn Landssambands ís- lenskra útvegsmanna auk þess að gegna fleiri trúnaðarstörfum og sat lengi meðal annars í stjórnum Kaupfélags Ísfirðinga, Íshúsfélags Ísfirðinga hf., Olíufé- lags útvegsmanna og Vélbátaábyrgðarfélags Ísfirðinga. Auk þess starfaði hann mikið á vett- vangi Slysavarnafélags Íslands. Eiginkona Guðmundar var Guðrún Jónsdóttir sem lést árið 1981. Þau eignuðust þrjár dætur, Bryndísi, Jónu Margréti og Ingibjörgu sem all- ar lifa föður sinn. Guðmundur var í sambúð með Margréti H. Gísladóttur frá Höfn í Hornafirði, sem lést árið 2009. Andlát Guðmundur Guðmundsson Aukablað alla þriðjudaga Aðalmeðferð í Stím-málinu hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sak- sóknari ákærði þá Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jó- hannes Baldursson, sem var fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, og Þorvald Lúðvík Sigur- jónsson, fyrrverandi bankastjóra Saga Capital, fyrir umboðssvik í tengslum við lánveitingar Glitnis til eignarhaldsfélagsins Stím sem not- aði þær til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group, en FL var á þessum tíma stærsti hluthafi Glitnis. 20 milljarða lánveiting Dómari hafnaði kröfu verjanda ákærðu um að fá aðgang að gögnum hjá sérstökum saksóknara sem vísað er til í yfirheyrslu yfir fyrrverandi starfsmanni Saga Capital hjá sak- sóknara, í gærmorgun áður en aðal- meðferð hófst. Reimar Pétursson, verjandi eins ákærða, sagði að með þessu væri verið að koma í veg fyrir réttláta sakarmeðferð. Í ákærunni segir að upphæð láns- ins hafi verið tæpir 20 milljarðar og með veði í hlutabréfunum sjálfum. Þá hafi upphæðin verið hærri en áhættunefnd bankans mátti afgreiða án samþykkis stjórnar en lánveiting- in var þó ekki borin upp fyrir stjórn- ina líkt og skylt var að gera. Jóhannes var yfir markaðsvið- skiptum Glitnis, en í ákærunni er hann sagður hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fjármunum GLB FX fjárfestingasjóðs í verulega hættu þegar hann gaf fyrirmæli um að kaupa víkjandi skuldabréf af Stím fyrir rúman milljarð króna. Vildi ekki tjá sig í fjölmiðlum Lárus Welding, fyrrverandi for- stjóri Glitnis, sagði í skýrslutöku sinni í héraðsdómi í gær að hann hefði allan tímann ekki haft neinn áhuga á að tjá sig í fjölmiðlum heldur ætlaði hann að kynna sitt mál í dóm- sal þar sem hann teldi að horft yrði á mál hans fordómalaust án neikvæðr- ar umræðu í fjölmiðlum sem gæti haft áhrif á dómara. Ítrekaði hann orð verjanda síns um að hann hefði reynt að fara eftir ferlum og reglum og reynt að taka bestu ákvörðunina hverju sinni fyrir bankann. Aðalmeðferð í Stím-máli hófst þrátt fyrir ágreining  Ákært er fyrir umboðssvik í tengslum við lánveitingar Morgunblaðið/Eggert Stím Aðalmeðferð hófst í Stím- málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Erlend Eysteinsson í 14 mánaða fangelsi fyrir ítrekaðar hót- anir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinnar, Ásdísar Viðarsdóttur. Áður hefur verið fjallað ítarlega um mál þetta eftir að Ásdís sagði sögu sína í Kastljósi Ríkisútvarpsins í maí árið 2014. Erlendur var ákærður í septem- bermánuði fyrir að hafa á tímabilinu 3. júlí til 15. ágúst árið 2015 marg- ítrekað sent Ásdísi hótanir í texta- skilaboðum. Segir í niðurstöðum dómsins að sum skilaboðin hafi verið til þess fallin að vekja hjá brotaþola ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína. Í ákærunni voru talin upp rúm- lega 50 skilaboð sem Erlendur sendi Ásdísi á tímabilinu. Viðurkenndi hann fyrir dómi að hafa sent skila- boðin en fullyrti á sama tíma að ekki væri um hótanir að ræða. Segir hann í skýrslu fyrir dómi að fyrir sér hafi aðeins vakað að fá föðurarf sinn frá brotaþola, og vísaði hann þar til stóls sem verið hefði í eigu föður hans. Meðal þeirra skilaboða, þar sem ekki þótti leika vafi á um að þar væri hótað refsiverðri meingerð eru til dæmis eftirfarandi: „Or shall one be haunted for the rest of his/?her life?“ „Honteted for the years to come.“ „Rest of life.“ „Þar til ég dey.“ Erlendi hefur enn fremur verið gert að greiða málsvarnarlaun skip- aðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vil- hjálmssonar hæstaréttarlögmanns, upp á 400 þúsund krónur. Dæmdur fyrir ítrekaðar hótanir  Hótaði fyrrverandi sambýliskonu sinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.