Morgunblaðið - 17.11.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
Skórnir þínir
7.995
Stærðir 36-41
7.995
Stærðir 36-41
9.995
Stærðir 36-41
10.995
Stærðir 36-41
Verð
Verð
Verð
Verð
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég var á þessum traktorsem smákrakki, en þávar ég bundinn með treflivið meyjarsætið og
skrölti með úti í túni. Um tíu ára ald-
ur fékk ég svo að keyra hann og
raka saman á honum. Þetta er fyrsta
vélin sem ég keyrði í lífinu og ég á
margar góðar bernskuminningar
tengdar Deauz-inum. Hann hefur
því tilfinningalegt gildi fyrir mig,“
segir Helgi Kjartansson, oddviti í
Bláskógabyggð, en hann gerði fyrir
nokkrum árum upp rúmlega hálfrar
aldar gamlan Deutz 15.
„Þetta er fyrsti traktorinn sem
keyptur var á bænum Haga í Gríms-
nesi, þar sem ég ólst upp. Afi minn
og nafni, Helgi Guðnason, keypti
hann árið 1960 hjá Ólafi Jónssyni frá
Hlöðum sem var með söluumboðið
fyrir austan fjall. Afi þurfti að fara á
Selfoss og sækja traktorinn en tveir
traktorar voru keyptir þetta ár í
sveitinni, þessi sem afi minn keypti
og annar nákvæmlega eins sem
Sveinn Kjartansson á Seli keypti.
Þessir tveir traktorar voru keyrðir
samtímis frá Selfossi upp í Grímsnes
og þetta var stór stund. En afi stakk
Svein af, og var kominn langt á und-
an heim í hlað,“ segir Helgi og hlær.
Verður alltaf að stoppa ef
hann sér Deutz á ferðum sínum
Helgi segir að traktorinn hafi
verið notaður til allra verka á bæn-
um og honum hafi ekkert verið hlíft.
„Hann var mikið notaður við
slátt fyrsta áratuginn, enda fylgdi
honum sláttugreiða sem var fimm
Sparitraktor orð-
inn hálfsextugur
Þegar Helgi Guðnason keypti sinn fyrsta traktor árið 1960 var honum ekkert hlíft,
hann var notaður til allra verka og stóð sig vel. Fimm áratugum síðar tók barna-
barn hans og nafni sig til að gerði upp traktorinn, Deutz 15, dýrgrip sem gangsettur
er á sparidögum og ekið um nágrennið. Ekkert minna en Deutz-höll hýsir hann.
Fyrir viðgerð Deutzinn heldur lúinn, Helgi með dóttur sinni Jónu Kolbrúnu.
Sundurtekinn Búið að strípa Deutzinn sem hér er tilbúinn í sandblástur.
Myndlistarmaðurinn og söngkonan
Þuríður Sigurðardóttir heldur reglu-
lega námskeið í olíumálun á vinnu-
stofu sinni í Kársnesinu í Kópavogi.
Námskeiðin eru fyrir alla sem hafa
áhuga á að læra að mála með olíu-
litum, jafnt fyrir byrjendur sem
lengra komna. Á námskeiðinu er far-
ið í grunnþætti olíumálverksins og
unnið með aðferðinni „að mála frá
mögru upp í feitt“. Þegar málað er
með þeirri aðferð er hægt að forðast
algeng mistök við olíumálun og litn-
um haldið tærum á striganum.
Nemendum er kennt að nálgast mál-
verkið markvisst og yfirvegað.
Fjallað er um tæknileg atriði s.s.
íblöndunarefni, grunna, efna-
samsetningu lita og íblöndunarefna,
hvaða efni henta áferð og yfirborði
málverksins o.s.frv. Einnig er fræðsla
um pensla og önnur verkfæri tengd
málun. Kynning er á mismunandi
undirlagsefnum og grunnum og
gerðar tilraunir með það. Leitast er
við að þjálfa færni nemenda í list-
sköpun og auka þekkingu á myndlist,
sem auk vinnunnar felst í að flétta
inn í kennsluna dæmi og fróðleik úr
listasögunni.
Ekki komast margir að á hvert
námskeið, hámarksfjöldi er átta til
níu manns. Uppselt er á næsta nám-
skeið sem verður helgina 8.-10. jan-
úar en hægt að skrá sig á biðlista á
thura@thura.is. Trönur eru á staðn-
um, myndvarpi, lyktarlaus terpen-
tína, olía og efni til að gera mismun-
andi grunna. Heitur hádegismatur og
kaffi og meðlæti alla dagana er inni-
falið í námskeiðsgjaldinu.
Nemendur vinna með eigin hug-
myndir og fá aðstoð við að útfæra
þær, ef þess er óskað.
Þuríður útskrifaðist með BA-gráðu
frá Listaháskóla Íslands 2001 og hef-
ur síðan unnið óslitið að myndlist,
haldið 13 einkasýningar og á fjórða
tug samsýninga heima og erlendis,
og tekið þátt í myndlistarverkefnum.
Vefsíðan www.Facebook: Námskeið í olíumálun
Á vinnustofunni Notalegt og skemmtilegt er á vinnustofunni hjá Þuru.
Góð stemning á olíumálunar-
námskeiðum hjá Þuríði Sigurðar
Þura Hún er létt í lund og kát.
Síðastliðinn föstudag var úthlutað
styrkjum, 15,5 milljónum, úr
Hönnunarsjóði til framúrskarandi
hönnuða og arkitekta. Þetta er
fjórða og síðsta úthlutunin á árinu,
en styrkina afhenti Ragnheiður El-
ín Árnadóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, við formlega at-
höfn í Hönnunarmiðstöð Íslands.
Að þessu sinni bárust sjóðnum
108 umsóknir af öllum sviðum
hönnunar en samtals var sótt um
rúmlega 200 m. kr., sem er tífalt
hærri upphæð en það sem sjóð-
urinn hefur úr að spila.
Meginhlutverk sjóðsins er að
efla þekkingu, atvinnu- og verð-
mætasköpun á sviði hönnunar og
arkitektúrs með fjárhagslegum
stuðningi. Veittir voru styrkir til
margvíslegra verkefna; þróunar
og rannsókna, verkefna- og mark-
aðsstarfs auk ferðastyrkja.
Þrettán verkefni fengu styrk og
eru flestar styrkupphæðirnar á
bilinu 500. þús. krónur til 1,5 millj-
óna. Þrjú verkefni fengu 2 m. kr. í
styrk, en það er hæsta upphæðin
sem var úthlutað í þessari at-
rennu.
Verkefni sem hlutu almenna
styrki eru eftirfarandi:
Framúrskarandi hönnuðir og arkitektar
Þrettán verkefni fengu
styrk úr Hönnunarsjóði
Gleði Ragnheiður Elín önnur f.h. með öllum þeim sem tóku við styrkjum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.