Morgunblaðið - 17.11.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 17.11.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Marie Christine Monfort, ráðgjafi í markaðssetningu sjávarafurða mun halda erindi um tækifæri Íslands til að ná fótfestu á verðmætari hluta franska markaðsins, einkummeð þorskafurðir. Björgvin Þór Björgvinsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, fer yfir þróun útflutnings sjávarafurða til Frakklands síðustu ár og misseri. Tækifæri verður fyrir spurningar og umræður eftir erindin. Fundurinn, sem er í Háteigi A, er öllum opinn en nauðsynlegt er að forskrá sig með því að senda póst á islandsstofa@islandsstofa.is. Nánari upplýsingar á www.ResponsibleFisheries.is. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00. Fundur um útflutning sjávarafurða Juraj Kušnierik, út- varps- og blaðamaður frá Slóvakíu, lést sl. föstudag á Landspít- alanum, 51 árs gam- all. Hann tengdist Ís- landi sterkum böndum og átti stór- an þátt í því að kynna íslenska tónlist fyrir Austur-Evrópubúum. Hann var áhrifamesti tónlistarblaðamaður Slóvakíu. Hann skrif- aði bók um íslenskt tónlistarlíf, Hudba ostrova, sem kom út árið 20013 og gerði stuttmynd um sama efni sem kom einnig út 2013 og nefnist Reykjavik Revisited. Juraj Kušnierik var ritstjóri menningarefnis á slóvakíska tímarit- inu Týždeò, stærsta vikuriti lands- ins. Í því birtust ófá viðtöl við ís- lenskt tónlistarfólk. Þá var Kušnierik með vinsælan útvarps- þátt, sem nefndist Slová FM. Hann var ráðgjafi á tónlistar- hátíðinni Pohoda í Slóvakíu þar sem margir íslenskir tónlistarmenn hafa stigið á svið og þeim fjölgaði mark- visst ár frá ári fyrir tilstilli Kušnierik. Í sumar var Björk að- alatriðið á hátíðinni. Hann var mikill aðdáandi Sykurmol- anna og þótti mikið til þess koma að fá þrjá upprunalegu meðlimina á hátíðina. Auk Bjarkar spiluðu Einar Örn Bene- diktsson og Sig- tryggur Baldursson með sínum sveitum. Juraj Kušnierik heimsótti Ísland oft og myndaði sterk vinabönd við fjölda íslenskra tónlistarmanna. Hann kom árlega á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves en fékk hjartaáfall á hátíðinni sunnudaginn 8. nóv- ember sl. Hann skilur eftir sig eiginkonu, Nataliu Kusnierikovu, og dóttur, Lenu Kusnierikovu. Íslenskir tónlistarmenn og félagar Kušnieriks hér á landi hafa skipu- lagt minningartónleika sem hefjast kl. 19 í kvöld á Húrra. Aðgangseyrir rennur óskiptur til fjölskyldu hans. Andlát Juraj Kušnierik Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bolvíkingafélagið stendur fyrir fjár- öflunartónleikum í Hallgrímskirkju sunnudaginn 22. nóvember til styrktar orgelsjóði Hólskirkju í Bol- ungarvík. „Þetta er fyrsta skrefið í að brúa bilið,“ segir Einar Benediktsson söfnunarnefnd- armaður. Þegar hafa safnast um 11 milljónir króna með frjálsum framlögum en áætlað er að nýtt orgel kosti rúmar 20 milljónir króna. Formennska í fjölskyldunni Kristný Pálmadóttir heitin stofn- aði orgelsjóðinn 5. desember 2008 í tilefni af 100 ára vígsluafmæli Hóls- kirkju, en kirkjan var vígð 7. des- ember 1908. Nefnd innan Bolvík- ingafélagsins hefur um nokkurt skeið unnið að því að safna fé í org- elsjóðinn, en í henni eru Katrín Þor- kelsdóttir formaður, Einar Bene- diktsson og Steindór Karvelsson, formaður Bolvíkingafélagsins. „Nú- verandi orgel kirkjunnar er barn síns tíma og lélegt,“ segir Einar um söfnunina, en orgelið er 55 ára. Hann segir að Kristný Pálma- dóttir hafi sungið í kirkjukórnum allt sitt líf og fundið fyrir brýnni þörf á nýju orgeli. Því hafi hún stofnað styrktarsjóðinn. „Formennska í sóknarnefndinni hefur verið í fjölskyldu minni frá 1962,“ segir Einar um aðkomuna að söfnuninni, en föðurfjölskylda hans gaf kirkjunni nýjar rafstýrðar kirkjuklukkur 1968. Hann segir að faðir hans, Benedikt Bjarnason, hafi setið í nefndinni í tæp 50 ár og þar af sem formaður um árabil. Afar hans, Bjarni Eiríksson og Einar Guðfinnsson, hafi einnig verið í sóknarnefndinni í áratugi og Einar lengi sem formaður. „Jón Friðgeir Einarsson, móðurbróðir minn, tók við af pabba og Einar Jónatansson, frændi minn hefur gegnt for- mennskunni í yfir 20 ár. Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir, kona hans, hefur verið organisti Hólskirkju frá 1995 og mamma og pabbi sungu í kirkjukórnum í samtals 122 ár.“ Hann bætir við að hann hafi alist upp við það að fara í Hólskirkju með foreldrum sínum á hverjum sunnudegi og hátíðisdegi. „Ástæða og áhugi minn að styrkja kirkjuna með þessum hætti er ekki síst þess vegna.“ Á tónleikunum, sem hefjast kl. 16 nk. sunnudag, kemur fram þekkt tónlistarfólk, sem tengist Bolung- arvík, og skemmtir það endur- gjaldslaust. Þar má nefna Karlakór- inn Esju ásamt Gissuri Páli Gissurarsyni einsöngvara, Pálínu Vagnsdóttur og sönghópinn Veir- urnar, Þorgils Hlyn Þorbergsson, Karl Hallgrímsson, Eddu Borg og Jóhönnu Linnet, Salvadore Rahni og Tuuli Rahni, Herbert Guð- mundsson og Hjört Howser, Kirkjukór Bolungarvíkur og Sig- rúnu Pálmadóttur einsöngvara, og Ólaf Kristjánsson. Kynnir verður Benedikt Sigurðsson og hljóðmaður Kristinn Gauti Einarsson. Frítt er á tónleikana en óskað er eftir frjáls- um framlögum. Rætt hefur verið við Björgvin Tómasson orgelsmið um að hann smíði nýja orgelið. Einar segir að sjóðurinn hafi fengið mikinn með- byr undanfarin misseri og meðal annars hafi einn einstaklingur fært sjóðnum tvær milljónir króna. „Við erum bjartsýn á að nýtt orgel verði komið innan tveggja ára,“ segir hann. Safna fyrir nýju orgeli í Hólskirkju  Fjáröflunartón- leikar í Hallgríms- kirkju á sunnudag Safnaðarstarf 50. aðventukvöld kirkjukórsins í Hólskirkju verður 6. desember næstkomandi. Hólskirkja Kirkjan í Bolungarvík var vígð 7. desember 1908. Einar Benediktsson Rjóðrið, hvíldarheimili Landspít- alans fyrir langveik börn, fékk í gær afhenta góða gjöf frá hesta- mönnum, þegar fulltrúar Hrossa- ræktar ehf. afhentu ríflega 2,7 milljóna kr. styrk til Rjóðursins. Það var knapi ársins, Guðmundur Björgvinsson, og Magnús Bene- diktsson frá Hrossarækt sem af- hendu styrkinn í Rjóðrinu. Styrkurinn er afrakstur söfnunar sem fór fram í tengslum við Stóð- hestaveislu Hrossaræktar sem haldin var fyrr á árinu, þar sem áhorfendum gafst tækifæri á að kaupa miða í sérstöku stóðhesta- happdrætti og bjóða auk þess í fola- tolla undir flesta af vinsælustu stóð- hestum landsins. Frá árinu 2011 hefur Hrossarækt, með hjálp hesta- manna, styrkt þörf málefni um samtals ríflega 14 milljónir króna. Rjóðrið Guðmundur Björgvinsson og Magnús Benediktsson afhenda Guðrúnu Ragnars, forstöðukonu Rjóðursins, styrkinn góða. Gáfu Rjóðr- inu 2,7 millj- ónir króna Lögreglan á Suð- urlandi hafði af- skipti af öku- manni jeppa við Vík í Mýrdal í síðustu viku, en það vakti athygli hversu mikill varningur var í bifreiðinni sem var á suðurleið. Lögreglu fór að gruna að þarna væri smyglvarn- ingur á ferðinni. Greint var frá þessu á Facebook-síðu lögregl- unnar á Suðurlandi. Þar segir að bifreiðin hafi verið stöðvuð síðdegis sl. þriðjudag. Lögreglan segir að við nánari skoðun hafi komið í ljós talsvert magn af áfengi og tóbaki í bílnum. „Strax vaknaði grunur um að þetta væri smyglvarningur. Tveir menn sem voru í jeppanum voru handteknir og færðir til yf- irheyrslu. Í framhaldi var einn handtekinn á höfuðborgarsvæðinu sem talinn var tengjast málinu. Við yfirheyrslur viðurkenndu tveir mannanna að hafa smyglað áfeng- inu og tóbakinu í land á Reyðar- firði. Lögreglan lagði hald á um 300 áfengisflöskur, um 2.000 nef- tóbaksdósir og um 1.500 sígarettu- pakka,“ segir í færslu lögregl- unnar. Er nú verið að ganga frá málinu til afgreiðslu til ákærusviðs lögreglustjórans á Suðurlandi. Með smyglvarning í jeppa á suðurleið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.