Morgunblaðið - 17.11.2015, Page 17

Morgunblaðið - 17.11.2015, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Tollstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 16. nóvember 2015, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2015 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. nóvember 2015, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 17. nóvember 2015 Margir velta því fyrir sér hvers vegna Frakkland hafi nú orðið skotspónn hryðjuverka IS fremur en eitthvert ann- að öflugt Evrópuríki. Stjórnmálaskýrendur benda á að hluti skýringarinnar sé að saga Frakklands valdi því að landið sé ávallt ofarlega í huga araba. Frakkland var lengi annað öflugasta nýlenduríki heims á eftir Bretlandi, réð yfir stórum hluta Norður- Afríku og miklum svæðum í Suðaustur-Asíu. Árið 1922 tóku Frakkar við stjórn í Sýrlandi og Líbanon eftir hrun Tyrkjaveldis, löndin tvö fengu sjálfstæði við lok seinni heimsstyrjaldar. En Frakkar réðu lengur yfir Túnis, Alsír og Marokkó. Alsírmenn unnu loks mannskætt frelsisstríð gegn Frökkum 1962. Loks bera að geta þess að Frakkar hafa síðustu árin ekki hikað við að senda herlið til að kveða niður upp- reisnir í Afríkuríkjum að ósk ráðamanna umræddra ríkja. Þeir hafa einnig beitt hervaldi gegn íslamistum í Malí. kjon@mbl.is Söguleg tengsl við araba AFP Samkennd Enn ráða Frakkar yfir eyjum og litlum skikum víða um heim. Hér leggja íbúar í Papeete á Kyrrahafs- eynni Tahiti blóm við minnismerki um helgina til að heiðra þá sem létu lífið í hryðjuverkunum í París. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Tekið getur áratugi að sigra IS en það er hægt að ná því takmarki með þeim aðferðum sem beitt hefur verið í Írak og Sýr- landi, segir Dan- inn Johannes Ri- ber Nordby, lektor við háskóla danska hersins, í viðtali við Jyl- landsposten. Bandamenn geta haldið áfram að styðja herlið Kúrda, gera loft- árásir og mennta og þjálfa íraska herinn. „Þetta er besta áætlunin,“ segir Nordby og vísar á bug hugmyndum um að senda öflugan landher vest- rænna ríkja á staðinn. Það sé eins og stinga hendinni inn í geitungabú, IS- menn myndu umsvifalaust telja al- menningi trú um að Vesturlönd ætli nú að gera arabalöndin aftur að ný- lendum sínum. „Ef okkur finnst að Írak sé flókinn vígvöllur vil ég bæta við að þetta er enn flóknara dæmi.“ Nordby segir að óhjákvæmilegt sé að á endanum samþykki vestræn ríki þá kröfu Rússa að Bashar al-Assad forseti hafi áhrif á niðurstöðu mála í Sýrlandi. Og hann muni ekki verða leiddur fyrir rétt vegna stríðsglæpa. Stjórnmál Mið-Austurlanda Hagsmunir margra voldugra aðila gera þau að fjendum IS en jafnframt hafa þeir aðra hagsmuni sem rekast stundum illilega á innbyrðis. Ríki Evrópusambandsins, Rúss- land, Tyrkland og Bandaríkin, óttast öll að vígamenn sem barist hafa með IS snúi aftur heim og efni til hryðju- verka í heimalöndum sínum. En Bandaríkin undir forystu Obama vilja helst draga sig alveg út úr flækjum Mið-Austurlanda. Tyrkir óttast IS en líka sjálfstæðistilburði kúrdíska þjóðar- brotsins sem á hinn bóginn styður baráttu íraskra Kúrda gegn IS í Sýr- landi og Írak. Allt að 8.000 Rússar munu hafa barist með IS og Pútín vill því brjóta samtökin á bak aftur. En jafnframt vill hann tryggja áhrif Rússa í Mið-Austurlöndum með því að styðja áfram Assad. Einnig vill hann að vestræn ríki bindi enda á viðskiptalegar refsiaðgerðir vegna Úkraínu. Sýrland flókn- ara en Írak  Geta sigrað IS ef beitt er þolinmæði Johannes Riber Nordby Leiðtogar 20 helstu iðnríkja heims, G-20, luku í gær tveggja daga fundi sínum í Antalya í Tyrklandi og hétu að auk samstarf varðandi upplýs- ingaöflun og aðgerðir gegn fjár- mögnun hryðjuverka. En fátt bendir til þess að náðst hafi samkomulag um að samræma aðgerðir gegn Ríki íslams, IS, í Sýrlandi og Írak. Hryðjuverkin í París á föstudags- kvöld voru mönnum eðlilega efst í huga. Barack Obama Bandaríkjafor- seti og Vladímír Pútín Rússlandsfor- seti ræddust óformlega við í hálfa klukkustund fyrir fundinn, sama gerðu þeir Pútín og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Obama hvatti rússneskan kollega sinn til að taka þátt í samræmdum aðgerðum með vesturveldunum gegn IS. Donald Tusk, forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins, sagði umbúða- laust að loftárásir Rússa í Sýrlandi þyrftu að beinast í auknum mæli gegn IS en ekki öðrum uppreisnar- hópum sem sumir njóta stuðnings vesturveldanna. Einnig fullyrti Tusk að aðgerðir Rússa væru þegar farn- ar að ýta undir flóttamannastraum frá Sýrlandi til Evrópu. Cameron tvístígandi Enn er óljóst hvort Bretar muni ákveða að taka þátt í loftárásum á IS í Sýrlandi. Þingið felldi árið 2013 til- lögu Camerons sem vildi aðstoða með hernaði uppreisnarmenn er berjast gegn Bashar al-Assad, Sýr- landsforseta og skjólstæðingi Rússa. Ljóst að Cameron er ekki viss um að hafa þingmeirihluta fyrir því að senda flugherinn á vettvang. Cameron sagði mikið geta áunnist með gagnkvæmri upplýsingaöflun sem merkir að ríkin liggi ekki á því sem njósnarar þeirra komast að um starf hryðjuverkahópa. Ráðherrann sagði að enn greindi menn á um framtíð Assads, sem vestræn ríki segja að verði að fara frá völdum. En Cameron sagði að menn hefðu nálg- ast lausn. kjon@mbl.is AFP Þíða? Vel fór á með Barack Obama og Vladímír Pútín áður en seinni hluti fundahaldanna í Antalya í Tyrklandi hófst í gær. Lítill árangur á G-20 fundi  Skiptast á gögnum njósnara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.