Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 19

Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Farið að nátta Kvöldbirta speglast á Reykjavíkurtjörn og mávarnir og endurnar búa sig undir nóttina eftir erilsaman dag. Útlit er fyrir kólnandi veður og frost víða á landinu á næstu dögum. Golli Tilgangur laga um ríkisútvarp í almanna- þágu er að stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjöl- breytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi. Stofnuninni er einnig ætlað að leggja rækt við ís- lenska tungu, menn- ingu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. Ríkisútvarpið naut þess lengst af á tuttugustu öldinni að vera eitt á markaði, ef frá er talin samkeppni frá útvarpi og sjónvarpsstöð bandaríska hersins. Útsendingar Kanasjónvarpsins náðust ágætlega víða í Reykjavík og á Suðurnesjum allan sjöunda áratuginn eða allt til ársins 1974 þegar því var lokað niður í kap- alkerfi á varnarliðssvæðinu. Engin bylting átti sér stað í notkun landsmanna á ljósvakamiðlum fyrr en með stofnun Íslenska útvarps- félagsins um rekstur Bylgjunnar árið 1984. Allt síðan þá hefur um- hverfið þróast afar hratt og orðið fjölbreytilegra með hverju ári, einkum allra síðustu ár. Bylgjan, Stöð 2, Skjár Einn, ÍNN, Útvarp Saga, N4, Hring- braut og ótal stöðvar sem hafa komið og farið hafa veitt Ríkisútvarpinu verulegt aðhald síð- ustu áratugi en sam- keppnin um augu og eyru landsmanna hef- ur þó aldrei verið harðari og alþjóðlegri en nú og er það að sjálfsögðu internetið sem þar er að verki. Google, Apple og Netflix hafa nú bæst inn á íslenska fjöl- miðlakortið, fréttir berast á ógnarhraða um Twitter og Facebook og hlað- vörp á borð við Serial og This Am- erican Life hafa tekið sér bólfestu í snjallsímum landsmanna. Spotify er orðið heimilisvinur og allir vilja og geta verið sínir eigin dagskrár- stjórar. Hinir nýju miðlar eru á margan hátt frábærir og við eigum að sjálf- sögðu að taka þeim opnum örmum. Á sama tíma megum við ekki gleyma grunnmarkmiðunum sem lagt var upp með þegar Ríkis- útvarpið var stofnað, að verja ís- lenska tungu, varðveita íslenska menningu, sögu þjóðar og menn- ingararfleifð. Jafnframt á Ríkis- útvarpið að vera lifandi vettvangur nýsköpunar og þróunar á sviði menningar og lista ásamt því að leggja traustan grunn að öflugri þjóðmálaumræðu. Þessi markmið eru og eiga að vera grunngildi ís- lensks ríkisútvarps. Við megum ekki gleyma þeim í afþreyingar- kapphlaupi við erlenda risa sem við getum aldrei lagt að velli. Ríkisútvarpið stendur nú á tíma- mótum. Stofnunin er undir nýrri forystu sem hefur á undanförnum misserum sýnt í störfum sínum og áherslum að menning og listir þjóðarinnar hafa verið sett í for- grunn, áhersla á vandað íslenskt barnaefni hefur verið aukin og leit- ast er við að veita landsbyggðinni þann sess í fjölmiðlinum sem hún skipar í daglegu lífi landsmanna. Jafnframt hefur náðst árangur í baráttunni við þann verulega rekstrarvanda sem stofnunin hefur þurft að takast á við undanfarin ár, þó að sá vandi verði ekki leystur nema Ríkisútvarpinu verði breytt. Ég er þeirrar skoðunar, og hef lýst henni opinberlega, að ekki sé ástæða til að lækka útvarpsgjaldið, heldur eigi að halda því óbreyttu. Þrátt fyrir að horfið yrði frá þeirri lækkun bíður stjórnar og fram- kvæmdastjórnar mikið verk við að ná traustum tökum á rekstrinum og skerpa á áherslum, meðal ann- ars með gerð nýs þjónustusamn- ings. Það er að mínu mati nauð- synlegt að skapa eftir fremsta megni þá festu og ró sem er hægt að ná fram í annars síbreytilegu starfsumhverfi Ríkisútvarpsins. Þannig má skapa grunn að yfirveg- aðri umræðu um framtíð stofn- unarinnar. Þegar litið er til framtíðar kom- umst við ekki hjá því að taka tillit til þeirrar þróunar sem nefnd er hér að ofan, við komumst ekki hjá því að svara því hvort Ríkis- útvarpið verði óbreytt á næstu ár- um og við komumst ekki hjá því að þurfa að ræða samkeppnisstöðu annarra fjölmiðla gagnvart ríkinu í nánustu framtíð. Hvað hið síðast- nefnda varðar þá er ég þeirrar skoðunar að innan ákveðins tíma eigi Ríkisútvarpið að vera komið af auglýsingamarkaði, en þá þarf um leið að nást sátt um aðra fjár- mögnun stofnunarinnar og tryggja að hún fái sinnt því hlutverki sem við ætlum henni og gerum kröfu til. Ríkisútvarpið hefur að mínu mati miklu hlutverki að gegna í ís- lenskri menningar- og þjóðmála- umræðu og það má færa fyrir því rök að mikilvægi þess sé jafnvel enn meira en áður var. Jafnframt geri ég mér grein fyrir því að um þessa skoðun mína eru deildar meiningar. En hvar í flokki sem menn standa, hvað svo sem mönn- um finnst um aðkomu ríkisins að rekstri ljósvakamiðla, þá ættum við öll að vera um það sammála að þeim mun stærri hluti af fram- lögum af almannafé til ríkisfjölmið- ils sem fer í að framleiða íslenskt efni, því betra. Allir unnendur Ríkisútvarpsins geta jafnframt verið sammála um að því minni fjármunir sem fari til dæmis í húsnæði, stjórnun og tækjabúnað, því betra. Í ljósi þess eiga stjórnendur Ríkisútvarpsins hrós skilið fyrir áherslur sínar og verk undanfarin misseri. En þegar horft er til framtíðar er það aðal- atriðið og um það ætti að vera hægt að skapa sæmilega sátt, að allt sem ekki lýtur að grunngildum almannaútvarps er betur eftirlátið einkaaðilum sem nú þegar sinna afþreyingarhlutverkinu af alúð og kostgæfni. Hvernig við komumst á þann stað kallar á samtal allra sem láta sig íslenska menningu varða. Illugi Gunnarsson » Allir unnendur Ríkisútvarpsins geta jafnframt verið sam- mála um að því minni fjármunir sem fari til dæmis í húsnæði, stjórnun og tækja- búnað, því betra. Illugi Gunnarsson Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. Tækifæri Ríkisútvarpsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.