Morgunblaðið - 17.11.2015, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015
✝ Helga Sig-urjónsdóttir
fæddist 23. júlí
1916 í Heiðarbót í
Reykjahverfi, S-
Þingeyjarsýslu.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hlévangi Hrafnistu
í Reykjanesbæ 4.
nóvember 2015.
Foreldrar Helgu
voru hjónin Jónína
Sigurðardóttir, skreðari og hús-
móðir, f. 1879, d. 1937, og Sig-
urjón Pétursson, söngstjóri og
bóndi í Heiðarbót, f. 1893, d.
1982.
Helga var í miðið af fimm al-
systkinum sem öll eru látin. Þau
voru: Sigurður, f. 1913, d. 2005,
Þuríður Hólmfríður, f. 1914, d.
2006, Stefán Pétur, f. 1918, d.
1999, og Hreiðar, f. 1920, d.
2004. Hálfbróðir þeirra sam-
feðra var Sigtryggur, f. 1943, d.
1993.
Helga giftist hinn 26. nóvem-
ber 1946 Guðmundi Jóhann-
essyni, ráðsmanni á Hvanneyri,
f. 9.9. 1914 á Söndum í Með-
allandi. Foreldrar hans voru Jó-
hannes Guðmundsson, bóndi á
Herjólfsstöðum, f. 1880, d. 1961,
Helga ólst upp í Heiðarbót
þar sem var sambýli systranna
Jónínu og Sigríðar Sigurðar-
dætra ásamt fjölskyldum.
Barnahópurinn taldi alls níu
börn sem tóku virkan þátt í bú-
störfum sem og tilfallandi störf-
um annars staðar í sveitinni. Á
heimilinu var tónlist í hávegum
höfð og þóttu þau systkin mikið
söngfólk. Eftir farskólann í
sveitinni fór Helga til náms við
Húsmæðraskólann á Laugum.
Eftir það réðst hún til starfa við
Bændaskólann á Hvanneyri þar
sem hún kynntist manni sínum.
Þau bjuggu á Hvanneyri fram til
ársins 1972 þegar þau fluttu til
Reykjavíkur vegna veikinda
Guðmundar.
Helga vann við ýmis störf á
Hvanneyri, m.a. á símstöðinni,
við tilraunarækt og veðurathug-
anir. Helga söng í kirkjukór
Hvanneyrarkirkju um árabil. Í
Reykjavík starfaði hún aðallega
í Þvottahúsi Ríkisspítalanna þar
til hún fór á eftirlaun.
Helga fluttist til Keflavíkur
árið 2002 þar sem hún bjó í ná-
grenni við dóttur sína og
tengdason. Hún hafði unun af
því að ferðast og ferðaðist víða
innanlands og utan. Þá ferðaðist
hún erlendis með fjölskyldunni
allt fram til 93 ára aldurs. Helga
dvaldi síðasta árið á hjúkrunar-
heimilinu Hlévangi.
Útför Helgu fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 17.
nóvember 2015, klukkan 13.
og Þuríður Páls-
dóttir húsfreyja, f.
1890, d. 1975.
Guðmundur lést
14. mars 1973.
Helga og
Guðmundur eign-
uðust þrjú börn:
Dóttur, andvana
fædd 1948; Jóhann-
es, f. 1.12. 1956, d.
4.9. 1963; Jónínu, f.
10.4. 1951. Fyrir
átti Guðmundur Halldóru, f.
17.9. 1943.
Eiginmaður Jónínu er Oddur
Sæmundsson, f. 12.5. 1950. Börn
þeirra eru: 1) Helga Jóhanna, f.
4.7. 1973. Maður hennar er Ein-
ar Jónsson, f. 4.9. 1968. Synir
Helgu og Hjalta Páls Sigurðs-
sonar eru Oddur Fannar og
Tómas Ingi, f. 2004. 2) Guð-
mundur Jóhannes, f. 1.5. 1975.
Kona hans er Guðrún Mjöll
Ólafsdóttir, f. 3.12. 1975. Börn
þeirra eru Hulda Sóllilja, f.
2002, Ólafur Oddur, f. 2007, og
Jónína Sóley, f. 2008. 3) Sæ-
mundur Jón, f. 23.2. 1981. Kona
hans er Edda Björk Pétursdótt-
ir, f. 1.5. 1984. Börn þeirra eru
Saga Björk, f. 2011, og Oddur
Logi, f. 2015.
Ennþá man ég æsku mína,
engu blómi skal ég týna
ennþá finn ég ástarmjúka
arma strjúka
enni mitt sem blíðvindi
af bládýpi rynni,
öll þau hjartans hlýindi
hef ég geymd í minni.
(Hulda)
Jónína.
Við systkinin höfum búið við
þá gæfu að vera elskuð skilyrð-
islaust af ömmu allt frá því við
komum í heiminn og langt fram
á fullorðinsár. Það að fá að njóta
samvista við hana svo lengi er
ómetanlegt og hefur hún alla tíð
verið stór hluti af tilveru okkar.
Við fráfall afa og fæðingu fyrsta
barnabarnsins skömmu síðar
umvafði amma litlu fjölskylduna
í Keflavík. Helgarheimsóknir
voru tíðar og átti amma sitt her-
bergi í forstofunni lengi framan
af. Amma var mjög æðrulaus og
stolt kona og ræddi sjaldan
þann missi sem hún upplifði þó
mikill væri. Amma vildi frekar
dvelja í gleðinni með okkur sem
eftir vorum og á eftir komum.
Svarið við því hvernig hún hefði
getað tekist á við þetta var
skýrt: „Maður verður bara að
hugsa um eitthvað skemmti-
legt.“ Þessi afstaða segir meira
en mörg orð um hversu sterkur
karakter hún var. Við efumst
ekki um að hún hefur oft á tíðum
þurft að beita sig hörðu til að
viðhalda jákvæðninni og stýra
hugsunum sínum og tilfinning-
um á þennan hátt. Þetta lýsir
því líka hvað hún var fljót að
hugsa og greind. Amma var
raunar skýrari en gengur og
gerist allt fram á síðustu mán-
uðina og minnið brást henni
ekki. Þannig hringdi Sæmundur
alltaf til að spyrja ömmu til veg-
ar þegar hann átti erfitt með að
rata um þjóðvegina og hún lýsti
hverjum hól og bæ. Svo var hún
nær ósigrandi í spilum þar sem
gott minni skipti máli.
Amma studdi vel við foreldra
okkar þar sem mikið var unnið
og yfirleitt mikið líf og fjör.
Henni féll sjaldan verk úr hendi,
hafði einstakt lag á okkur systk-
inum. Við munum ekki eftir því
að amma hafi nokkurn tímann
hastað á okkur, það hefur þá
ekki verið alvarlegt þó hún væri
föst á sínu. Á menntaskólaárun-
um bjó Helga hjá ömmu í
Hraunbænum og þar voru vinir
ávallt velkomnir. Þegar mennta-
skólaganga bræðranna hófst
sóttu þeir ekki síður til ömmu og
komu gjarnan í grjónagraut og
að halla sér í sófanum eftir próf-
atarnir. Þolinmæðin gagnvart
unglingunum var mikil og kær-
leikurinn ávallt til staðar.
Stundirnar eru óteljandi þar
sem nöfnurnar grétu úr hlátri
yfir vitleysunni í Spaugstofunni
eða tóku sig til og endurléku at-
riði úr áramótaskaupinu þannig
að fölsku tennurnar enduðu í
fanginu á ömmu.
Amma hugsaði vel um heils-
una, var nægjusöm og bjó ein
fram til 98 ára aldurs. Við ferð-
uðumst öll saman, t.d. var hún
90 ára í London og 93 ára í
Frakklandi. Þá var það hefð síð-
ustu árin að halda upp á afmælið
hennar í faðmi Guðmundar og
fjölskyldu í Grímsnesinu og var
árið í ár það fyrsta sem hún
treysti sér ekki í ferðalagið. Síð-
asta ferðin var í Borgarfjörðinn
í júní þar sem hún dvaldi með
hluta fjölskyldunnar á sólrík-
ustu dögum sumarsins.
Langömmubörnin sjö voru
henni kær og átti hvert og eitt
þeirra afskaplega fallegt sam-
band við hana. Maka okkar um-
vafði hún frá fyrstu stundu á
sama hátt og okkur hin. Kær-
leikur, léttlyndi og gleði í lífsins
ólgusjó voru einkenni elsku
ömmu sem við kveðjum í dag
með miklum söknuði en kærleik
í hjarta og einlægu þakklæti fyr-
ir allt og allt.
Helga Jóhanna,
Guðmundur Jóhannes
og Sæmundur Jón.
Helga
Sigurjónsdóttir
✝ VilhelmínaNielsen fæddist
á Seyðisfirði 9. sept-
ember 1957. Hún
lést 1. nóvember
2015.
Foreldrar Vil-
helmínu eru Hjalti
Nielsen, f. 7.12.
1924, d. 2.8. 1967,
og Áslaug Gunn-
laugsdóttir Nielsen,
f. 23.11. 1932.
Vilhelmína var þriðja í röðinni
af sex systkinum. Elstur var
Gunnlaugur Nielsen, f. 19.6.
1953, d. 22.1. 2010, Kristín Theo-
dóra Nielsen, f. 2.5. 1955, Þóra
Lind Nielsen, f. 26.3. 1963, Axel
Emil Nielsen, f. 6.6. 1965. Yngst-
1984, börn hennar eru
Guðmundur Ívan, Eva Björk og
Berglind Björk. 3) Bjarni, f. 22.7.
1994.
Vilhelmína ólst upp á Seyð-
isfirði til 14 ára aldurs. Þegar
hún var 10 ára lést faðir hennar
af slysförum. Það hafði mikil
áhrif á hana sem og alla í fjöl-
skyldunni.
1971 fluttist Vilhelmína ásamt
móður sinni og systkinum suður
til Reykjavíkur þar sem hún fór í
Hagaskóla.
Ung að árum hóf hún Vilhelm-
ína störf hjá ÁTVR, nú Vínbúðin,
og vann hún þar allt til dánar-
dags, mestan hluta sem versl-
unarstjóri.
Frá árinu 1993 bjó Vilhelmína
ásamt fjölskyldu sinni að Lyng-
móum 2 í Garðabæ.
Útför Vilhelmínu fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
ur er Hjalti Nielsen,
f. 20.11. 1967.
Vilhelmína giftist
26.6. 1982 Guð-
mundi Halli Jóhann-
essyni, f. 30.4. 1957.
Foreldrar hans eru
Jóhannes Kr. Guð-
mundsson, f. 13.10.
1934, d. 3.2. 2005,
og Guðlaug Guð-
laugsdóttir, f. 4.12.
1936. Börn Vilhelm-
ínu og Guðmundar Halls eru: 1)
Áslaug, f. 21.2. 1981, maki henn-
ar er Ármann Jakob Pálsson, f.
28.2. 1980. Börn þeirra eru Jak-
ob Dagur, Arney Helga og Rakel
Birta.
2) Kristín Theodóra, f. 29.5.
Það voru þungar fréttir sem
mér og fjölskyldu minni bárust
sunnudagsmorgun fyrir viku, að
systir mín hefði látist skyndi-
lega þá um nóttina. Systir mín
var vönduð manneskja – traust
og dugleg, vann öll sín verk
vammlaust og af samviskusemi
– heiðarleg umfram allt og
fölskvalaus. Í verkum hennar
mátti ekkert út af standa eða
upp á vanta og hún var einn af
þeim einstaklingum sem tóku
meira á sig en hollt var og hún
vildi leysa sín verkefni vel. Hún
var stoð margra, bæði í vinnu
og nánasta umhverfi og aldrei
sá ég systur mína reiðast eða
segja eitthvað miður um fólk –
hún var dul á sínar tilfinningar
og það sem að steðjaði, bar ekki
sjálfa sig á torg, en reyndi að
vinna sín verk af alúð og vand-
virkni. Samviskusemin í blóð
borin og viljinn til að skila sínu,
alltaf og ævinlega, var sterkur.
Eftir að ég og fjölskylda mín
fluttumst til Bandaríkjanna fyr-
ir meira en áratug hafa sam-
skiptin við Mínu og hennar fjöl-
skyldu minnkað eins og oft vill
verða þegar langar vegalengdir
skilja að. Við hittumst helst á
jólum eða í stuttum ferðum
okkar til Íslands, en ég minnist
með mikilli hlýju systur minnar
og alls þess sem hún gerði fyrir
mig, yngri bróður sinn, alla tíð.
Gummi og Mína kynntust svo
snemma að ég man ekki eftir
þeim nema saman og annað er
aldrei nefnt nema hitt fylgi með
og söknuður Gumma og barna
er mikill að sjá á eftir kærri eig-
inkonu og móður.
Ekki er langt síðan bróðir
okkar lést og því annað skarð
höggvið í systkinahóp okkar á
allt of stuttum tíma. Nú þarf
móðir okkar að horfa á eftir
öðru barna sinna og harmur
hennar er mikill, en að sama
skapi er styrkur hennar og
reisn aðdáunarverð, ekkja í
nær 50 ár og tvö barna hennar
farin á undan henni. Á okkar
dögum er það siður að þvælast
fram og til baka í endalausri
innri leit, en okkur væri nær að
leita að styrk og fyrirmynd í lífi
móður minnar sem elskar og
ber harm sinn í hljóði eins og
mæður hafa gert um aldir – en
finnur svo styrk til að halda
áfram.
Sorg Guðmundar, Áslaugar,
Dóru Stínu, Bjarna og barna-
barna er mest. Við Hanna og
Emil Örn vottum ykkur samúð
okkar.
Hvíldu í friði, Mína okkar.
Við kveðjum þig ekki, því þá
sem maður elskar, kveður mað-
ur aldrei.
Axel, Hanna og Emil Örn.
Vilhelmína NielsenMorgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINGERÐUR SÓLVEIG
JÓNSDÓTTIR,
Grænavatni,
Mývatnssveit,
lést fimmtudaginn 12. nóvember á
dvalarheimilinu Lögmannshlíð. Jarðarförin verður auglýst síðar.
.
Jónas Helgason, Guðrún Bjarnadóttir,
Haraldur Helgason, Freyja Kristín Leifsdóttir,
Þórður Helgason, Helga Þyri Bragadóttir,
Árni Hrólfur Helgason, Kristín List Malmberg,
ömmubörn og langömmubörn.
Okkar ástkæri
INGI ÞÓR GUÐMUNDSSON
frá Hrafntóftum,
síðar Dufþaksholti, Hvolhreppi,
lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli hinn 14.
nóvember. Útförin fer fram frá
Stórólfshvolskirkju laugardaginn 21. nóvember klukkan 11.
.
Fjölskylda og vinir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÞÓRA HARALDSDÓTTIR,
Vesturbergi 52,
lést á líknardeild Landspítalans
laugardaginn 14. nóvember.
.
Óskar Ármannsson,
Haraldur Bjarni Óskarsson,
Harpa Óskarsdóttir, Jens Pétur Kjartansson,
Óskar Ingi Jensson, Elías Bjarni Jensson.
Kær systir okkar, mágkona og frænka,
SIGRÍÐUR HELGA ÞORBJARNARDÓTTIR
líffræðingur,
Meistaravöllum 17, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
sunnudagskvöldið 15. nóvember.
.
Guðmundur Þorbjörnsson, Auðbjörg Ingimundardóttir,
Njáll Þorbjörnsson, Jóna Jónsdóttir,
Laufey Þorbjarnardóttir, Jón Sigurðsson,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Jónas Matthíasson,
Guðrún Þorbjarnardóttir, Guðmundur Sigurðsson
og fjölskylda.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Áskær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR LÍNBERG BJÖRNSDÓTTIR,
Brumunddal, Noregi,
lést á heimili sínu aðfaranótt
miðvikudagsins 21. október síðastliðinn.
Útför verður gerð frá kapellunni í Hafnarfjarðarkirkjugarði
fimmtudaginn 19. nóvember klukkan 14.
.
Gunnar Línberg Sigurjónsson
María Dögg Línberg Hjaltadóttir, Snjólfur Gunnarsson
Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Ari Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabarn.