Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 23

Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Nýir vendir sópa best, segir máltækið. Sú fullyrðing kemur upp í hugann þegar ég minnist að- komu Árna Steinars Jóhannsson- ar, fyrrverandi garðyrkjustjóra og síðar umhverfisstjóra Akureyrar- bæjar, að umhverfis- og ræktunar- málum Akureyrarbæjar. Árni Steinar hóf störf sem garð- yrkjustjóri Akureyrar 1979 þegar kraftmikil uppbygging íbúðar- húsahverfa hafði staðið yfir. Ný byggingarlönd höfðu verið brotin og vonglaðir garðeigendur unnu í vornóttinni við frágang og gróður- setningu. Alls staðar var hrópað á ráð og lausnir. Árni Steinar var nýkominn heim frá námi við Land- búnaðarháskólann í Kaupmanna- höfn með ferskar hugmyndir um hvernig flétta mætti saman fjöl- breytta hugmyndafræði skóg- ræktar, garðyrkju og bæjarskipu- lags. Vornóttin virtist endalaus og lífskrafturinn óþrjótandi. Fyrir ut- an að sinna kröfuhörðum garðeig- endum, sem ekki gátu beðið næsta dags, fann Árni Steinar hugmynd- um sínum um betri bæ einnig far- veg í stjórnum og ráðum Akureyr- arbæjar. Starfsemi Garðyrkjufélags Ak- ureyrar og Skógræktarfélags Ey- firðinga var einnig vettvangur Árna Steinars. Hann átti auðvelt með að tala fyrir hugmyndum sín- um um græna byltingu í bæjar- skipulaginu. Árið 1980, á fimmtíu ára afmæli Skógræktarfélags Ey- firðinga, var gefið út fréttablað sem dreift var í öll hús bæjarins. Þar var kynnt stefna Akureyrar- bæjar og Skógræktarfélagsins um framtíðarútivistarsvæði Akureyr- inga sem skyldi umvefja bæinn. Veita skyldi skjól og skapa fjöl- breytta frístundamöguleika, auk þess að rækta upp gamlar malar- námur og urðunarsvæði. Verkefn- ið fékk vinnuheitið „græni trefill- inn“. Framkvæmdir fóru af stað og unnið hefur verið eftir þessari stefnu síðan. Stundum hafa áfang- arnir verið smáir en alltaf mjakast áfram. Stefnumótunin um „græna trefilinn“ hefði tæpast náðst án að- komu Árna Steinars og sannfær- ingar hans um mikilvægi fram- kvæmdarinnar. Þegar komið var fram að alda- mótunum voru í bígerð ýmsar breytingar á stjórnsýslu Akureyr- arbæjar sem samrýmdust ekki hugmyndum Árna Steinars um stöðu ræktunarmála í bæjarland- inu. Hann leitaði þá inn á nýjar brautir og valdi stjórnmálin sem vettvang um skeið. Árni Steinar lauk starfsferli sín- um sem umhverfisstjóri í Fjarða- byggð við mótun lands, eftir mikla uppbyggingu og rask sem fylgdi breyttum atvinnutækifærum á Austurlandi. Ég minnist Árna Steinars, þakka fyrir skemmtun, vináttu og samstarf um málefni sem við báðir áttum að ævistarfi og votta að- standendum hans innilega samúð. Hallgrímur Indriðason, Akureyri. Árni í Lystigarðinum hefur kvatt þessa jarðvist, hvernig getur verið að heimurinn missi þvílíkt gull af manni á besta aldri? Við Árni hittumst fyrst sumarið 1970 í Skálholti þar sem komandi skiptinemar ICYE dvöldu í viku- undirbúningi fyrir ársdvöl erlend- is. Árni kom að norðan talandi þá fallegustu norðlensku sem ég hef heyrt og með hlátur sem aldrei Árni Steinar Jóhannsson ✝ Árni SteinarJóhannsson fæddist 12. júní 1953. Hann lést 1. nóvember 2015. Útför Árna Steinars fór fram í kyrrþey 9. nóv- ember 2015. gleymist. Vikan sem við dvöldum í Skál- holti við garðyrkju og undirbúnings- fræðslu er okkur öll- um ógleymanleg, það var hlegið og hlegið og hlegið á milli þess að við unnum og lærðum, þar sýndi Árni takta í garð- yrkju sem síðan átti eftir að vera hans ævistarf. Árni fór til Bandaríkj- anna og þegar hann kom til baka var hlegið enn meira þegar við hittumst, því sögur hans af ævin- týrum ársins voru engu líkar. Í hvert skipti sem við skiptinemarn- ir hittumst var Árni miðpunktur skemmtilegheitanna. Árni í Lystigarðinum, nafnið kom til sumarið 1972 þegar við nokkrar vinkonur vorum hjúkrun- arnemar á Akureyri, ég þekkti Árna og hann varð hluti af ne- mabústaðarfjölskyldunni. Ekki nóg með það, hann var auðvitað al- talandi á ensku og eitt skiptið kom inn fárveikur laxveiðimaður. Okk- ar enska var ekki upp á marga fiska svo við hlupum út í Lystigarð og sóttum Árna sem gat spurt veiðimanninn um heilsufar og lík- amsástand. Veiðimaðurinn var svo hrifinn af þessum garðyrkjustrák að á meðan hann dvaldi á spítalan- um urðu þeir perluvinir, og ef við heyrðum smitandi hlátur vissum við að Árni var kominn í heimsókn. Þarna var honum vel lýst. Undanfarin sumur hef ég komið með erlenda gesti í Lystigarðinn og alltaf minnst þín við styttuna af Jóni Rögnvaldssyni, þið tveir og Lystigarðurinn eruð eitt í mínum huga. Við komum suður, Árni fór í Garðyrkjuskólann og hélt upp- teknum skemmtilegheitum, við bjuggum saman nokkrar hjúkrun- arsystur og þegar Árni kom til Reykjavíkur kom hann við, hvort sem það var á nóttu eða degi, „stelpur er ekki til eitthvað að borða?“, kjötfars með tómatsósu og kartöflumús á pönnu var vin- sælt á þeim tíma og svo var hlegið til morguns. Ég fór með honum sem borðdama á árshátíð Garð- yrkjuskólans og þvílíkur séntil- maður, það var alveg sama hvort hann var úti í garði eða uppá- klæddur til borðs, alltaf sama gæðablóðið. Ég var ferlega sár að geta ekki kosið þig á þing af því ég bjó í vit- lausu kjördæmi, en sem betur fer komstu inn á þing. Jarðtengdur kommon sens-maður með heil- brigða skoðun loksins kominn á þing og hefði betur verið þar leng- ur. Kæra Valrós, þó að við höfum bara hist einu sinni á tröppunum á Dalvík finnst mér ég þekkja þig svo vel, Árni bar svo mikla virð- ingu fyrir þér og þú varst honum svo kær. Dalvík og landsbyggðin voru greypt í hans hjarta og við fengum öll skýra sýn og fræðslu um landsbyggðina eftir samræður við hann. Nú þegar ég sit og skoða gaml- ar skiptinemamyndir fæ ég tár í augun og sorg í hjarta, heimurinn hefur misst svo góðan mann, hér í þínu gamla skiptinemalandi er kveikt á kerti og íslenski fáninn blaktir þér til heiðurs. Hvíldu í friði, heimurinn saknar þín. Björg Ólafsdóttir, ICYE-skiptinemi. Árna Steinari Jóhannssyni kynntist ég fyrst í Vinstrihreyfing- unni – grænu framboði. Hafði auð- vitað heyrt hans getið og vissi að hann hafði óvenju mikið persónu- fylgi. Það þurfti ekki að umgang- ast Árna Steinar lengi til þess að skilja af hverju fólk laðaðist að honum og treysti. Hann las fólk og aðstæður af einstöku næmi og átti það jafnt við um einstaklinga, þingflokka, stjórnmálaflokka, sveitarfélög og þjóðfélög. Mannþekking hans reyndist vel þegar hann var að rótast í kjör- dæmum og eru sögurnar hans af slíkum ferðum algjörlega óborg- anlegar. Hann ræddi við húsfreyj- urnar í sveitunum um húsmæðra- skólaaðferðina við að hengja upp þvott á fullkomlega tilgerðarlaus- an hátt. Börn löðuðust mjög að Árna Steinari, ekki vegna þess að hann væri að gera eitthvað sérstakt, hann bara var. Eitt sinn hélt ég að ég væri búin að týna dótturdóttur minni á skrifstofum Fjarðabyggð- ar en auðvitað lá hún bara alsæl á gólfinu inni á skrifstofunni hans Árna Steinars með fullt af túss- litum og risastórar arkir. Dýrmæt stórvinátta okkar Árna varð til þegar við fórum að vinna fyrir Fjarðabyggð um svip- að leyti. Vinátta sem skipti okkur einhleypingana miklu máli enda héldu ýmsir að við værum hjón. Við gátum rætt hvað sem var en oftast voru þjóðfélagsmálin tekin fyrir. Þegar Árni þurfti að æsa vinkonu sína, einkum að öðrum viðstöddum, sagði hann gjarnan að kellingar væru að eyðileggja opinbera kerfið, heilbrigðiskerfið, skólakerfið o.s.frv. Þetta reyndist nokkuð óbrigðult framan af en svo lærði ég smátt og smátt að skipta ekki skapi við yfirlýsingarnar. Árni las mig og aðstæður mínar auðvitað eins og annað. Var mætt- ur óbeðinn í óteljandi flutninga og klukkutíma fyrir innflutningspartí kom hann vopnaður nöglum og hamri til að hengja upp myndir og ákveða í stórum dráttum hvar þær skyldu vera. Í fyrrasumar ákvað Árni að það væri best að ég keyrði norðurleið- ina, gisti á Dalvík og svo færum við saman austur í Neskaupstað. Það þarf ekki að orðlengja hvílík veisla það var að heimsækja Árna og Valrós og keyra á fögru kveldi um Svarfaðardal með þeim og Friðbjörgu. Valrós og fjölskyldu sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Ég sakna ávarpsins: Nei, sæl vinkona. Sigríður Stefánsdóttir. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég minnist vinar míns og samstarfsmanns, Árna Steinars Jóhannssonar. Árni Steinar var ávallt hrókur alls fagnaðar, skarpgreindur og víð- sýnn sáttamaður sem öllum líkaði vel við. Árni sagði frá skoðunum sínum af hreinskilni og með skýr- um hætti þannig að allir skildu, enda hafði Árni áhrif hvar sem hann kom. Í starfi sínu sem um- hverfisstjóri og á vettvangi póli- tískra starfa vegnaði Árna vel og þar var hann svo sannarlega á réttum vettvangi. Baráttumaður, réttsýnn og fylginn sér, kom hann verkefnum og viðfangsefnum áfram svo eftir var tekið. Árni kom oft til okkar hjóna í kaffi á laugardagsmorgnum til þess að fara yfir mál líðandi stund- ar. Hann kallaði það gjarnan góða leið til þess „að brýna bæjarstjór- ann“ og „ fingra viðfangsefnin“ eins og hann orðaði það svo skemmtilega. Hafði hann þá oft með sér bakkelsi, vínarbrauð og snúða sem honum fannst ómiss- andi með morgunkaffinu, enda annálaður sælkeri. Við áttum það t.d. sameiginlegt að þykja saltað hrossakjöt mikið hnossgæti og héldum nokkrar þannig veislur í gegnum tíðina. Eftirminnileg er síðan ferð sem farin var af starfs- mönnum bæjarskrifstofunnar til Skotlands árið 2005. Þar var Árni fremstur í flokki og hélt uppi skemmtilegheitum og stemningu alla ferðina með óteljandi sögum og frásögnum af mönnum og mál- efnum. Sú ferð verður lengi í minnum höfð okkar sem fórum með Árna í þá góðu ferð. Árna Steinars munum við í Fjarðabyggð minnast um ókomna tíð fyrir framlag hans til umhverf- ismála. Árni kom til starfa hjá sveitarfélaginu sem umhverfis- stjóri þegar miklar framkvæmdir voru í gangi vegna uppbyggingar álvers Alcoa Fjarðaáls. Miklir efn- isflutningar áttu sér stað á svæð- inu á þessum tíma og hafði Árni mikil áhrif á það hvernig til tókst í umhverfismálum sveitarfélagsins og sést handverk hans víða. Árni hefur í gegnum árin bætt um- hverfi okkar með plöntum, trjám og beðum í bæjarkjörnum sveitar- félagsins sem nú þykja sjálfsögð prýði. Það er eftir því tekið í dag hvernig til tókst hjá Árna Steinari við stjórnun á fegrun og í um- hverfismálum bæjarkjarnanna í Fjarðabyggð. Árni hafði þá góðu eiginleika að sjá langt fram í tím- ann. Þannig nýtti hann það efni sem féll til, m.a. til þess að byggja upp göngustíga og annað um- hverfi og sparaði þannig oft stórfé fyrir skattborgarana. Oft nutu þessi verkefni Árna ekki vinsælda meðan á þeim stóð, en þegar upp var staðið voru allir sáttir við hina endanlegu niðurstöðu. Árni hafði einstakt lag á að afla styrkja og liðsinnis við verkefni líðandi stundar sem kom sveitarfélaginu vel til góða. Framlag Árna til þessara verkefna allra er vel geymt og ekki gleymt. Ég vil fyrir hönd bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og starfsmanna votta móður Árna og fjölskyldunni allri samúð mína. Blessuð sé minning Árna Steinars Jóhanns- sonar. Verk hans og hugur munu lifa um ókomna tíð í sveitarfé- laginu okkar. Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL ÍSLEIFSSON frá Langekru, lést sunnudaginn 8. nóvember á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi. Útförin fer fram frá Oddakirkju laugardaginn 21. nóvember klukkan 14. . Halldóra Valdórsdóttir, Eva Sigurveig Pálsdóttir, Ísleifur Pálsson, Ragnheiður Aradóttir, Orri Hrafn Ísleifsson, Silja Dögg Ísleifsdóttir, Steinunn Herdís Ísleifsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, afa og langafa, SVEINS KRISTJÁNSSONAR kennara, Blásölum 22. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Landspítala, líknardeildar, og Skógarbæjar fyrir frábæra umönnun, vinsemd og hlýhug. . Aðalheiður Edilonsdóttir, Kristján G. Sveinsson, Sigríður Hjörleifsdóttir, Edda Lilja Sveinsdóttir, Páll Árnason, Ingibjörg A. Sveinsdóttir, Þröstur Magnússon, Stefán Jökull Sveinsson, Sjöfn Sigurgísladóttir, Kolbrún Sveinsdóttir, afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar elskulega PÉTURS K. MAACK verkfræðings, Álagranda 8. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans fyrir einstaka umönnun og alúð. . Sóley Ingólfsdóttir, Valgerður P. Maack, Haukur Jónsson, Andrea P. Maack, Gísli Þór Sverrisson, Heiðrún P. Maack, Jónas Albert Þórðarson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÓLAFÍA SIGURJÓNSDÓTTIR frá Raftholti, Víðivöllum 3, Selfossi, lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalarheimilinu Lundi föstudaginn 13. nóvember. Útför hennar fer fram frá Marteinstungukirkju laugardaginn 21. nóvember klukkan 14. Hjartans þakkir fær starfsfólk Lundar fyrir góða umönnun og hlýju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. . Ársæll Teitsson Kristín Ágústa Ársælsd. Tryggvi Rúnar Pálsson Sigurjón Ársælsson Guðrún Þóra Garðarsdóttir Sigríður Ársælsdóttir Þórarinn Arngrímsson og barnabörn. Elsku unnusti minn, bróðir og frændi, HILDAR JÓHANN PÁLSSON frá Þorlaugargerði, síðast til heimilis á Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, lést á heimili sínu 8. nóvember síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Landakirkju laugardaginn 21. nóvember næstkomandi kl. 14. . Magnea Halldórsdóttir, Guðrún S. Moore, Ágústa H. Árnadóttir, Ósk Guðrún Aradóttir, Páll Árnason, Óskar V. Arason, Ómar Þór Árnason, Guðný E. Aradóttir og fjölskyldur. Með kærleik og virðingu Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Lögfræðiþjónusta Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Með kærleik og virðingu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.