Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 28

Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Heimilið og fjölskyldan verða í brennidepli hjá þér á næstu fjórum til sex vikum. Þú færð á baukinn ef þú skilar ekki verkefnum á réttum tíma. Þú ert ekki leng- ur í grunnskóla. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt sjálfsgagnrýni geti verið góð kann hún að keyra úr hófi fram eins og allt annað. Láttu það eftir þér að fara í ferða- lag eða gera eitthvað fyrir sjálfa/n þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gerðu upp við þig hvað þú vilt fá út úr tilteknu sambandi. Reyndu að rugla ekki of mikið saman vinnu og fríi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki meira tuð yfir smámunum – settu tilfinningar fólks í fyrsta sæti. Þú átt erfitt með að taka hrósi, æfðu þig í því. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekkert vit í að láta reka á reið- anum lengur. Orðspor þitt er meira virði en peningar í banka. Einhver hrekkir þig og þér finnst ekki leiðinlegt að hrekkja á móti. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst einhverjir vera að seilast inn á valdsvið þitt. Leitaðu þér ráðgjafar og haltu svo þínu striki þar til árangur næst. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú verður að taka af skarið og hrinda málum í framkvæmd, þótt vinnufélagar þínir séu tregir í taumi. Vertu á verði í um- ferðinni. Þú færð góðan byr heima fyrir þegar þú varpar fram hugmyndum þínum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sýndu maka þínum sérstaka þolinmæði. Reyndu að skipuleggja tíma þinn þannig að þú getir sinnt þér líka. Taktu lífinu með ró. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er líf og fjör í félagslífinu og svo margt í boði að vandi er um að velja. Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar náttúrunnar með þínum nánustu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það verða engar breytingar í lífi þínu nema þú sért sjálf/ur staðráðin/n í að svo verði. Einhver veitir þér stuðning sem þú áttir ekki von á. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú reynir að vera heiðarleg/ur við þitt fólk. Nýr smekkur, nýir vinir og annað umhverfi er til marks um aukinn lífsþrótt og afl til að gera frekari breyt- ingar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hefur tekist að koma ár þinni svo fyrir borð að aðrir eru fúsir til að fylgja þér. Framkvæmdu hlutina með þínu lagi. Ekki hlusta á neikvætt fólk. Ármann Þorgrímsson yrkir um„flóttamannavandann á Ís- landi“ á Leir: Umfangið erfitt að meta ekki það sveitamenn geta Húsnæði þarf og helst eitthvað starf og heilmikið þarf þetta að éta. Hjálmar Freyseinsson segir á Boðnarmiði, að sig hafi dreymt undir morgun að til sín kæmi ókunnugur maður og kenndi sér þessa limru: Jafnaðarmaður er Jónas hét jarða sig heima í kyrrþey lét að viðstöddum fáum fátækum smáum. Það hlakkaði í ekkjunni en hundurinn grét. Og bætti síðan við: „Ætli þetta viti ekki á snjóléttan vetur?“ Ég hitti karlinn á Laugaveginum fyrir utan biskupsstofu, hann ská- skaut augunum og hafði gaman af því, að í Útsvari skyldi rifjað upp að kristnihátíðarnefndin skyldi festast í lyftunni í því húsi og lögregla og slökkvilið kallað til. Þá var ort, en höfund þekki ég ekki: Valdahöndin lúna loppna litlu verki skilaði það var engin þörf að opna þegar lyftan bilaði. Ólafur G. Einarsson gaf þá skýr- ingu að það hefði verið yfirvigt, en þá var hann forseti Alþingis en með honum voru forseti Íslands, forsætis- ráðherra, forseti Hæstaréttar og biskup. Karlinn rétti úr sér og sagði: Í lyftunni allir þóttust þá í þungavigt fastir og bundnir þessir karlar sem eftir á urðu léttvægir fundnir. Síðan tautaði hann um leið og hann studdist fram á reiðhjólið en sprungið afturdekkið: Holuborg er heiti á torgi og strætum því að viðhald vantar þar, – varla hjólfært alls staðar. Friðrik Steingrímsson segir rjúpnaveiðisögu að norðan: Rembdust tveir við rjúpna fár, um reiknings hæfn’ er ekki spurt, sáu fjórar, fengu þrjár, þó flugu tvær á lífi burt. Sigrún Haraldsdóttir birti þessa stöku á Boðnarmiði ásamt fallegri haustmynd: Vagninn minn af kappi kný, keyri í skyggni góðu framtíð þótt sé fólgin í fínni þokumóðu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Enn af flóttamönnum og öðrum mönnum Í klípu „ÞETTA ER SVO ÓVIRK-ÁRÁSARGIRNI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAR ERU KRAKKARNIR?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... bros hans sem léttir lund þína. HVAÐ ERTU GAMALL NÚNA GRETTIR? KEMUR ÞÉR EKKI VIÐ! VÁÁ ... ... SVO GAMALL. BÚIÐ YKKUR UNDIR AÐ MÆTA SKAPARA YKKAR ! EKKI ÞIÐ! Víkverji varð vitni að undarlegu at-viki í knattspyrnuleik á dögunum en leikurinn var liður í Íslandsmóti leikmanna 40 ára og eldri. Tildrög voru þau að sóknarmaður annars liðsins var kominn inn í vítateig andstæðingsins og í þann mund að hann lét skot ríða af komst varnar- maður fyrir og blokkeraði skotið. Knötturinn skrúfaðist aftur fyrir enda- mörk og dæmdi dómari leiksins um- svifalaust hornspyrnu. Sóknarmaðurinn lá hins vegar í fóst- urstellingunni í gervigrasinu og bar sig illa. Þegar hann settist upp skömmu síðar kom í ljós að hann var saltvondur. Fullyrti að á sér hefði verið brotið. Andstæðingarnir, sem hópuðust í kringum hann, voru honum ósammála. Nema hvað? Eftir nokkra rekistefnu, sem dómarinn fylgdist með, byrjaði sóknarmaðurinn óvænt að rífa sig úr skóm og sokkum. Rak að því búnu bera ristina framan í dómarann og sýndi honum áverka. Sem var vel greinilegur og það úr fjarska. Dómarinn skoðaði rist leikmannsins af kostgæfni, líkt og um lækni á bráða- móttökunni væri að ræða. Áfram var deilt um málið út frá þessum nýju „gögnum“. Sóknarmaðurinn klæddi sig í rólegheitum aftur í sokkinn og skóinn og þegar hann reis loks á fætur, á að giska fimm mínútum eftir að hann féll, kallaði dómarinn á knöttinn og færði hann með rögg beint á víta- punktinn. Vítaspyrna! x x x Eftir að hafa skoðað áverkann sneristhonum sumsé hugur. Við þetta umturnaðist varnarliðið og gerði aðsúg að dómaranum. „Þetta má ekki!“ og „þú getur ekki gert þig svona af fífli!“ heyrðist fleygt. Eftir snarpa rimmu tók dómarinn knöttinn upp aftur, þar sem hann beið örlaga sinna á vítapunktinum, og gekk af stað – með allt varnarliðið á hæl- unum. „Strákar, gefið mér frið. Ég þarf að hugsa!“ Því næst gekk hann einn hring í vítateignum áður en hann ákvað endanlega að standa og falla með seinni ákvörðun sinni. Víti skal það vera! Varnarliðið fór endanlega á lím- ingunum. En dómaranum varð ekki haggað að þessu sinni og vítaspyrnan var fram- kvæmd – og varin. víkverji@mbl.is Víkverji Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn; lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi nein- um velgjörðum hans. Sálmarnir 103:1-2 www.reykjafell.is snjalllausnir fyrir heimili og fyrirtæki Nánari upplýsingar veita löggiltir rafverktakar. Rétt uppsetning og meðhöndlun tryggir endingu og ábyrgð, öryggi í þína þágu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.