Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 33
AF SÓLSTÖFUM
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Enginn má sköpum renna oghafi einhverjir menn íþessu landi fæðst til að
rokka eru það liðsmenn reykvísku
hljómsveitarinnar Sólstafa. Tutt-
ugu ár eru um þessar mundir frá
því sveitin var sett á laggirnar og
því fer fjarri að vegurinn hafi alltaf
verið beinn og breiður. Margir
hefðu líklega löngu verið búnir að
gefast upp en Sólstafir bitu á jaxl-
inn og undanfarin ár hafa þeir ver-
ið að uppskera laun erfiðisins.
Einkum þó í útlöndum. Það er göm-
ul saga og ný að enginn sé spámað-
ur í sínu föðurlandi.
Þetta kom óhjákvæmilega upp
í hugann á tónleikum Sólstafa í Silf-
urbergi Hörpu síðastliðið föstu-
dagskvöld. Fyrstu stóru tónleik-
unum sem sveitin heldur í sínu
nafni hér á landi í bráðum fjögur
ár. Síðast voru Sólstafir á ferð í
Gamla bíói snemma árs 2012 þegar
þeir fögnuðu útgáfu breiðskífunnar
Svartir sandar. Í millitíðinni hafa
Sólstafir auðvitað komið fram á
Rokkjötnum og Eistnaflugi, auk
þess sem þeir léðu Hrafni nokkrum
vængi á RIFF í fyrra.
En eftirspurnin er fyrst og
fremst í útlöndum og þar hafa Sól-
stafir troðið upp 170 sinnum frá því
síðasta breiðskífa, Ótta, kom út fyr-
ir ári. Því sem næst annan hvern
dag. Geri aðrir betur! Til þess að
eiga möguleika á að sjá Sólstafi á
sviði er mun betra að lenda í ferða-
lögum en hanga heima.
„Við sjáumst kannski eftir þrjú
ár?“ sagði Aðalbjörn Tryggvason,
Addi, söngvari og gítarleikari, þeg-
ar leið að lokum í Silfurbergi og
uppskar heldur dræmar undir-
tektir. Auðvitað viljum við hafa
betri aðgang að sveitinni hér heima
en þá þarf fólk líka að mæta á tón-
leika hennar. Og það í þéttum röð-
um. Hvers vegna fer viðburður sem
kallar á kjaftfulla Eldborg (tvær
frekar en eina) fram í Silfurbergi?
Svarið verða rokkhundar þessarar
þjóðar að eiga við sig.
Alltént. Enda þótt gott ár sé
liðið var hér um útgáfutónleika
vegna Óttu að ræða. Sjö af átta lög-
um plötunnar voru leikin í bland við
eldra efni. Ótta er afbragðsgóð
plata enda þótt hún standi meist-
araverkinu Svörtum söndum ekki
Enginn má sköpum renna
Morgunblaðið/RAX
Myndrænir Sólstafir hljóta að vera einhver myndrænasta hljómsveit landsins: Sæþór Maríus Sæþórsson, Aðalbjörn Tryggvason og Svavar Austmann.
alveg á sporði. Hún er innhverfari
og lágstemmdari og fyrir vikið ekki
eins vel til þess fallin að trylla lýð-
inn á tónleikum. „Eruð þið nokkuð
sofnuð?“ spurði Addi eftir að hafa
lokið við annars mergjaðan flutn-
ing á ballöðunni Miðaftann við und-
irleik píanós og strengja þeirra
Amiinu-kvenna. Já, hún er há, alda
syndanna.
Listfengi Sólstafa skín skært í
gegn á Óttu, plötu sem sumir segja
að hafi endanlega gert þá að málm-
leysingjum. En hverjum er ekki
skítsama um slíka merkimiða?
Þetta var gott tækifæri til að heyra
sum laganna „live“ sem rúmast
ekki oft á efnisskránni. Rokkarar
eins og Dagmál og Rismál gerðu sig
vel, eins lengri og dýpri smíðar á
borð við Óttu og Náttmál. Á heild-
ina litið óx platan við þessa upp-
lifun. Eins og vera ber.
Ekki var verra að rifja uppkynnin af gömlum kunn-ingjum eins og Djáknanum,
Svörtum söndum og Þínum orðum.
Allt nútímaklassík í íslensku rokki.
Fíla Þín orð alltaf betur og betur
enda alkunna að hóflegt mál er vits-
ins sál.
Fjara kom, eins og við var að
búast, ekki fyrr en í uppklappi.
Addi hlóð reyndar í meinfyndna
sögu þess efnis að ónefndur maður,
sem hafði lagið á hornum sér, hefði
boðið honum þrjú hundruð þúsund
krónur fyrir að spila það ekki í Silf-
urberginu. „Og vitiði hvað ég er
með í rassvasanum núna?“ spurði
hann viðstadda. Síðan var rennt í
Fjöru. Alvöru listamenn selja vita-
skuld ekki sálu sína. Það reyndi svo
verulega á burðarvirki Hörpu í
lokalaginu, Goddess of the Ages af
Köld. Skemmtilega áköf smíð þar á
ferð. Titillag þeirrar plötu hefði að
ósekju mátt fylgja með en ekki
verður á allt kosið.
Skrýtið var að sjá Guðmund
Óla Pálmason ekki bak við húð-
irnar en brotthvarf hans varð víst
ekki umflúið, svo sem fram hefur
komið, nú síðast í samtali við Adda í
bresku útgáfunni af Metal Ham-
mer.
Fleira hefur breyst frá því í
Gamla bíói. Tært vatn hefur til
dæmis leyst Jack gamla Daniels af
hólmi ofan á bassamagnaranum.
Ekki var annað að sjá en tón-
leikagestir gengju sáttir út í nátt-
myrkrið, þar sem biðu þeirra frétt-
ir af voðaverkunum í París. Sláandi
tíðindi, ekki síst fyrir Sólstafi sem
komu sjálfir fram í borginni átta
dögum fyrr. Á keimlíkum klúbbi og
þeim sem aftökurnar fóru fram á.
Það er sem ég segi, enginn má
sköpum renna!
» Á heildina litið óxplatan við þessa upp-
lifun. Eins og vera ber.
Í ham Addi lifir sig inn í flutninginn. Við settið er Hallgrímur Jón Hall-
grímsson sem leggur Sólstöfum lið um þessar mundir. Vel þéttur trymbill.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015
Eigum á lager
Ford F350 Lariat 2016
og Dodge Ram 3500
Ford F350 2016 Lariat
Dodge Ram 3500 Longhorn 2016
• Varahlutir • Sérpantanir
• Aukahlutir • Bílasala
• Verkstæði Umboðsaðilar BL
á Selfossi
IB ehf • Fossnes A • 800 Selfoss • ib.is
Sími 4 80 80 80
SPECTRE 5,7,10(P)
HANASLAGUR 4:50
JEM AND THE HOLOGRAMS 5
CRIMSON PEAK 10:30
EVEREST 8
SICARIO 8,10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 10
Þ R I Ð J U DAG ST I L B O Ð
Þ R I Ð J U DAG ST I L B O Ð
SÝND Í 4K!