Morgunblaðið - 17.11.2015, Síða 35

Morgunblaðið - 17.11.2015, Síða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015 Kvikmyndin Hrútar eftir leikstjór- ann Grím Hákonarson sópar enn að sér verðlaunum á kvikmyndahátíð- um. Um helgina hlaut hún tvenn verðlaun á Listapad-kvikmyndahá- tíðinni í Minsk í Hvíta-Rússlandi og var valin besta kvikmyndin á hátíð í Þessalóníku í Grikklandi. Þrestir, kvikmynd leikstjórans Rúnars Rún- arssonar, hlaut einnig verðlaun í Þessalóníku, fyrir framúrskarandi listrænt framlag. Hrútar hlutu áhorfendaverðlaun og sérstök verðlaun frá borgar- stjórninni í Minsk á hátíðinni Lista- pad föstudaginn sl., 13. nóvember og tók leikarinn Ingvar E. Sigurðsson, við verðlaununum fyrir hönd að- standenda myndarinnar en hann var gestur hátíðarinnar. Degi síðar hlaut myndin aðalverðlaun kvikmynda- hátíðarinnar í Þessalóníku, þau sem veitt eru fyrir bestu kvikmyndina og kallast Golden Alexander Theo An- gelopoulos. 15 kvikmyndir í fullri lengd voru í aðalkeppnisflokki hátíð- arinnar. Er þá ekki allt upp talið því Grímur hlaut heiðursverðlaun um helgina á Norrænu kvikmyndahátíð- inni í Leeuwarden í Hollandi fyrir framlag sitt til norrænnar kvik- myndagerðar. Á hátíðinni voru sýndar þrjár myndir eftir Grím; Hrútar, Hvellur og Hreint hjarta. Hrútar hafa nú hlotið 18 verðlaun á kvikmyndahátíðum, þau fyrstu á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor, Un Certain Regard. Kvikmyndin Þrestir hefur hlotið sex verðlaun og ber þar hæst aðalverðlaun kvik- myndahátíðarinnar í San Sebastián á Spáni. Hrútar og Þrestir halda áfram sigurgöngu sinni á hátíðum Ljósmynd/Hans Jellema Verðlaunafjöld Grímur Hákonarson tók við heiðursverðlaunum fyrir fram- lag sitt til norrænnar kvikmyndagerðar í Leeuwarden um helgina. Benedikt Hjartarson og Vigdís Rún Jónsdóttir flytja í dag, þriðjudag, tvö erindi um framúrstefnuljóð, prenttilraunir og bókverk á 20. öld í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í tengslum við sýninguna „dadadie- terdúr – samruni orðlistar og myndlistar“. Sýningin var opnuð á degi myndlistar 31. október síðast- liðinn. Erindi sitt kallar Benedikt „Hver síða verður að springa“: Um fram- úrstefnu, ljóðsmíðar og prent- tilraunir“. Vigdís fjallar hins vegar um kortlagningu á konkretljóðum á Íslandi á árabilinu 1955 til1975. Efnt er til fyrirlestranna í sam- vinnu við „Rannsóknastofu um framúrstefnu“ við Háskóla Íslands en hægt er að fræðast um rann- sóknarstofuna á vefsvæðinu avantgarde.hi.is. Morgunblaðið/Golli Ljóðsmíðar Benedikt Hjartarson fjallar um prenttilraunir og framúrstefnu. Framúrstefnuljóð og prenttilraunir Bandaríska kvikmyndaakademían veitti kvikmyndaleikstjóranum Spike Lee og leikkonunum Genu Rowlands og Debbie Reynolds sér- stök heiðurs-óskarsverðlaun á ár- legri samkomu samtakanna í Holly- wood sem nefnast Govenors Awards. Lee, sem hefur í tvígang verið til- nefndur til hinna árlegu Óskars- verðlauna sem keppt er um, hélt átján mínútna ræðu er hann tók við styttunni kunnu. Hann sagðist vissulega glaður en harmaði þá staðreynd að í Hollywood héldi hör- undsdökkt fólk hvergi um stýrið í kvikmyndaverunum. Hann sagði auðveldara að kjósa svartan forseta í Bandaríkjunum en fá svartan stjórnanda í kvikmyndaverin. Sam- kvæmt mannfjöldaspám yrðu hvítir komnir í minnihluta í landinu árið 2043 og kvikmyndaiðnaðurinn yrði því að laga sig að breyttum heimi. AFP Kátur en hvass Spike Lee hampaði styttunni kátur en var gagnrýninn. Lee, Rowlands og Reynolds heiðruð Smiðjuvegi 4C 202 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.