Víkurfréttir - 28.08.1986, Qupperneq 16
VÍKUR-fréttir
16 Fimmtudagur 28. ágúst 1986
íþróttir—-
NJARÐVÍ KING-
AR KOMNIR
í FALLSÆTI
-eftir 3:1 tap gegn Einherja á Njarðvíkurvelli
Njarðvíkingar eru nú
komnir í bullandi fallhættu
í 2. deild. Þeir eiga ólokn-
um þremur leikjum og eru í
, næstneðsta sæti með 14 stig.
Isfirðingar eru næstir fyrir
ofan með 15.
Um helgina léku Njarð-
víkingar á heimavellLgegn
Einherja frá Vopnafirði.
Leikurinn var-mjog:mikil-
vægur í fallbaráttunni og
ætluðu Njarðvíkingar sér
j ekkert annað en sigur. Þeir
mættu ákvéðnir til leiks og
voru 1:0 yfir í hálfleik.
\ Helgi Arnarson skoraði
‘ markið seint í hálfleiknum.
í síðari hálfleik fengu
Njarðvíkingar tvö upplögð
tækifæri í röð til að auka
muninn, en í bæði skiptin
hafnaði knötturinn í mark-
súlunni. Strax eftir þessi
dp,uðafæri UMFN náðu
Einherjár að jafna. Var þá
sem allur vindur færi úr
Njarðvíkingum, þeirgáfust
upp og Einherjar bættu við
tveimur mörkum. Lokatöl-
ur leiksins urðu því 3:1.
Það er ljóst að ef Njarð-
víkingar ætla ekki að leika í
3. deild að ári þá mega þeir
bæta sig svo um munar.
Það eru ennþá eftir þrír
leikir og allir möguleikar á
að halda sætinu í 2. deild.
g æ i
Njarðvíkingar fengu upplögð tækifæri til að gera út um leikinn í
byrjun síðari hálfleiks. Hér vter markvörður Einherja boltann í slá.
ljósm.-gkv.
Púttklúbbur Suðumesja:
Spennandi
keppni
Meistarakeppni Púttklúbbs
Suðurnesja var haldin á púttvell-
inum í Leiru ekki alls fyrir löngu.
Spennandi keppni varð í öllum
flokkum. Úrslit urðu þessi:
Eldri flokkur:
1. Vilhjálmur Halldórss., Garði
2. Jóhann Friðriksson, Keflavík
3. Ragnar Magnússon, Grindavík
. Vngri flokkur:
1. Jori Hannesson, Keflavík
2. Jón Kr. Olsen, Keflavík
3. Jón Kristinsson, Keflavík
Kvennaflokkur:
1. Hrefna Sigurðard., Keflavík
2. Þuríður G. Agústsd., Grindav.
3. Alice Fossádal, Grindavík
Keppnisstjórar voru þeir Ketill
Vilhjálmsson og Vilberg Þorgeirs-
son. -pket.
Lausar stöður
Nokkrar stöður lögreglumanna eru lausar
til umsóknar.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu-
þjónum og lögreglustjórum um land allt.
Umsóknir ásamt tilskyldum fylgiskjölum
skulu hafa borist skrifstofu minni eigi síðar
en 15. september n.k.
LÖGREGLUSTJÓRINN Á
KEFLAVÍKURFLUGVELLI,
20. ágúst 1986
Steini bakari bætir sífellt „vínarbrauðum“ í hatt sinn. Ér nú kominn í meistaraflokk og er efstur í stigakeppninni
BAKARINN
EFSTUR
-í stigakeppni Golfklúbbs Suðumesja - Hafsteinn bestur í Póseidon-
mótinu - Síðasta mótið á sunnudag
Þorsteinn ,,bakari“ Geir-
harðsson er efstur í stiga-
keppni Golfklúbbs Suður-
nesja að loknum sjö mót-
um. Þorsteinn hefur aldrei
æft betur enda er hann nú
að sjá árangur strangra æf-
inga og er kominn í meist-
araflokk, með sex í forgjöf.
Aðeins einu stigamóti er
ólokið og verður það næsta
sunnudag, Olís-mótið og
hefst kl. 10.
Urslit í síðustu þremur
stigamótum hafa annars
verið þessi:
Undrahringur-------
nýliðans
Hörkukeppni varð í fimmta
stigamóti Golfklúbbs Suður-
nesja. Fjórir urðu efstir og
jafnir án forgjafar á 74 högg-
um, þeir Sigurður Albertsson,
Björn V. Skúlason, Þorbjörn
Kjærbo o^ Páll Ketilsson. Ár-
angur á siðustu holunum var
látinn ráða verðlaunaröð. Þá
varð röðin eins og á undan er
talið. Með for^jöf sigraði Páll
Gunnarsson a 60 höggum
nettó, 50-39=89. Hörkuhring-
ur hjá stráknum sem er nýbyrj-
aður í íþróttinni. „Gamall“
jaxl, Sævar Sörenson, lék einn-
ig vel og varð annar á 63 og
þriðji varð Páll Ketilsson á 66
nöggum nettó.
—Jón bestur---------
með forgjöf
Þorsteinn Geirharðsson og
Sigurður Sigurðsson háðu
hörku baráttu um 1. sætið án
forgjafar í 6. stigamótinu.
Þeirri baráttu lauk með jafn-
tefli, báðir léku á 75 höggum.
Þegar síðustu þrjár holurnar
voru taldar hafði bakarinn bet-
ur en það skal athugað að Siggi
lék á meistara-teigum en Þor-
steinn á klúbbteigum. Þriðji
var gamli refur, Sigurður Al-
bertsson, sem heldur betur
hefur látið í sér heyra í sumar, -
leikið vel. Hann var á 78 högg-
um. Með forgjöf var Jón
Sveinsson bestur á 67 höggum,
annar varð Guðmundur Mar-
geirsson á 69 og Helgi Hólm
priðji á 71.
~~Hafsteinn sló
öllum við í
Póseidon-mótinu
Það urðu heldur betur ó-
vænt úrslit ísjöundastigamót-
inu, POSEIDON-mótinu, sl.
sunnuda^. Hafsteinn Sigur-
vinsson ur 1. flokki varð best-
ur án forgjafar, lék á 77 högg-
um. Þorsteinn Geirharðsson
var næstur ásamt Sigurði Al-
berts á 78 högj»um. Með for-
gjöf var Jón Palmi Skarphéð-
insson hlutskarpastur á 66
höggum. Jón Sveinsson varð
annar á 69 og Þorgeir Þorst-
einsson þriðji á 70. Verslunin
PÓSEIDON gaf elæsileg
verðlaun í mótið. Aukaverð-
laun voru fyrir fæst pútt og
næst holu á 16. flöt. Þau fyrr-
nefndu féllu í skaut Hafsteins,
hann púttaði aðeins 28 sinnum
á 18 holunum. Seinni verð-
launin hirti lögreglustjórinn
Þorgeir Þorsteinsson. Hann
var 2,88 m. frá „gömlu Stínu“
eins og sumir segja. Fyrir
bragðið getur Þorgeir boðið
Stínu sinni falleg föt frá Pó-
seidon eða fengið sér tískuföt
sjálfur.
Jöfn keppni----------
Eins og áður segir er Þor-
steinn Geirharðsson efstur í
stigakeppninni. Hann er með
23,5 stig, næstur er Sigurður
Albertsson með 22,5, þriðji er
Íón Sveinsson með 21,5 og
jórði Páll Gunnarsson með
18,5 stig.
Baráttan verðu því i al-
gleymingi næsta sunnudag í
síðasta mótinu. Á morgun
föstudag verður ,,Pour
Homme" mótið, 18 holur
með og án forgjafar í Leiru.
Mótið er fyrir GS og GK fél-
aga. -pket.