Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.11.1986, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 20.11.1986, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 20. nóvember 1986 VIKUR-fréttir Fasteignasalan Hafnargötu 27 - Keflavík Hafnargata 43, Keflavik: Rúmgott hús (3 íbúðir) á- samt 950 ferm. verslunar- lóð ............... Tilboö Tungata 9, Keflavik: Rúmgott eldra hús á góöum staö, sem gefur mikla mögu- leika ............. Tilboð KEFLAVÍK: Nýtt einbýlishús við Óðins- velli ásamt bílskúr, skipti á minni fasteign koma til greina ............ Tilboð Raðhús við Heiðarbraut ásamt bílsk., góðir greiöslu- skilmálar ...... 3.950.000 3ja herb. ibúð v/Mávabraut, skipti á dýrari eign möguleg. 1.650.000 3ja herb. íbúð við Hólmgarð, sérsmiðaðar innréttingar og hurðir ......... 2.200.000 2ja herb. jarðhæð við Faxa- braut, nýstandsett. Engar skuldir ........ 1.500.000 ibúðir í smíðum i Keflavik: 2ja og 3ja herb. íbúðir viö Heiðarholt, seljast tilb. undir tréverk, öll sameign fullfrá- gengin. Mjög góðirgreiðslu- skilmálar. Seljandi: Húsa- gerðin hf., Keflavík. 1.150.000-1.790.000 NJARÐVÍK: 3ja herb. íbúð við Fífumóa, aö mestu fullgerð. 1.650.000 3ja herb. íbúð við Hjallaveg, hagstætt verð og greiðslu- skilmálar .... 1.500.000 2ja og 3ja herb. íbúðir við Brekkustíg, seljast tilb. undir tréverk, öll sameign fullfrá- gengin. Mjög góðirgreiðslu- skilmálar. Seljandi: Hilmar Hafsteinsson, Njarðvík. 1.650.000-1.850.000 SANDGERÐI: Glæsilegt einbýlishús við Hjallagötu, möguleiki á að taka minni fasteign upp í út- borgun. Nánari uppl. áskrif- stofunni ..... 4.700.000 Raðhús við Heiðarbraut, húsið er rúmlega tilb. undir tréverk ...... 2.400.000 Einbýlishús við Hjallagötu, 125 m2 ....... 2.850.000 4ra herb. e.h. við Ásabraut, 125 m2, sér inngangur. 1.950.000 3ja herb. n.h. við Brekkustíg, 85 m2, sérinngangur. 1.600.000 GARÐUR: 4ra herb. e.h. við Meiða- staðaveg með sérinngangi. 1.450.000 GRINDAVÍK: Eldra einbýlishús við Vesturbraut .... 750.000 FASTEIGNASALAN Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420 Lagerhúsnæði óskast til leigu eða kaups. Stærð 50-150 m2. r jdropinn Símar 2652 og 2960 molar Allt í lagi að stela í pólitík í pólitík eigna menn og flokkar sér oft hugmyndir annarra. Slíkt henti unga sjálfstæðismenn í Njarðvík nú nýlega er þeir fögnuðu þeirri ákvörðun meirihlut- ans, að ráða íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúa. í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi FUS, Njarðvík, segir að fundurinn fagni því að nú- verandi meirihluti skuli taka upp hugmynd sjálfstæðis- manna um ráðningu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Þykir mörgum þetta skondið, því þegar mál þetta var tekið fyrir í bæjarráði Njarðvíkur, sat fulltrúi sjálf- stæðismanna, Ingólfur Bárð- arson, hjá við afgreiðslu þess. Það er kannski ekki nema von, því ráðningæsku- lýðs- og íþróttafulltrúa var meðal fremstu kosningalof- orða krata fyrir kosningar. En það skipti unga sjálfstæð- ismenn engu, því það segir enginn neitt við því þó hug- myndum sé stolið þegar pólitík er annars vegar . . . . . . skrítið Meira um unga sjálfstæð- ismenn í Njarðvík. Arnar Ingólfsson var endurkjörinn formaður Félags ungra sjálf- stæðismanna á aðaifundi félagsins nú fyrir skömmu. Hann er jú sonur Ingólfs Bárðarsonar, oddamanns sjálfstæðismanna í Njarðvík. Þess vegna vekur það athygli ef sjálfstæðismenn þykjast hafa átt hugmyndina um íþrótta- og æskulýðsfulltrú- ann, hvers vegna Ingólfur sat hjá við afgreiðslu málsins í bæjarráði? Nýkominn úr sveitinni Það hefur oft verið sagt að Völlurinn heilli, ekki síst ftn boð þeirra varnarliðsmanna fyrir Islendinga. Eitt slíkt var haldið laugardagskvöld fyrir skömmu. Boðsgestirnir voru bæjar- og sveitarstjórar á Suðurnesjum og þeirra mak- ar. Fengu þeir boðskort sent vegna tilefnisins. Þegar stundin rann upp og stjór- arnir mættu á staðinn kom í ljós, að fulltrúar Njarðvík- inga voru heldur margir. Auk bæjarstjórahjónanna var mættur forsetinn, Ragn- ar Halldórsson og frú. Ragn- ar var ekki með boðskort og því ekki gert ráð fyrir honum í samkvæmið. En það redd- aðist nú allt saman, því einn strípugæinn af vellinum boð- aði forföll. Hafa menn velt því fyrir sér, hvort Ragnar hafi ekki treyst nýja bæjar- stjóranum og þess vegna þurft að halda í hendina á honum. Hann er jú nýkom- inn úr sveitinni . . . Eini áhrifamaður Allaballa Alþýðubandalagið missti sem kunnugt er sinn mann út úr bæjarstjórn í Keflavík í kosningunum sl. vor. Þeir eiga því enga fulltrúa í nefnd- um bæjarins. Það getur þó alltaf laumast einn og einn innan um, og þá í gegnum önnur félög, sem fá fulltrúa í ýmsum nefndum, til dæmis íþróttaráð. Þar er ÍBK með einn fulltrúa og hefur for- maður félagsins séð um þessa ,,setu“. Það er jú Ragnar Marinósson. Ekki er vitað að hann hafi þjónað öðrum flokki en Alþýðubandalag- inu í gegnum sætt og súrt. Hann situr í íþróttaráði með tveimur frá meirihlutanum og tveimur frá minnihluta. Sem sagt oddamaður í ráð- inu. Hefur Ragnar fengið viðurnefnið Oddur, síðan þetta uppgötvaðist. Drífa fór inn líka Við sögðum frá því í síð- ustu Molum, að Hilmar Þ. Hilmarsson hefði náð kjöri í miðstjórn Framsóknar- flokksins á dögunum, á sama tíma og margir valin- kunnir framsóknarmenn náðu ekki kjöri. En hann var ekki eini Suðurnesjamaður- inn sem vann það afrek, því bæjarfulltrúi flokksins í Keflavík, Drífa Sigfúsdóttir, náði endurkjöri, og það með fleiri atkvæðum að baki sér en Hilmar. Gott það, Drífa. Algjört kaos Geysimikla athygli hefur vakið þær fullyrðingar stjórnenda hjá Almanna- vörnum ríkisins, að æfingin á dögunum hafi tekist vel, því leita þarf vel til að finna ein- hvern þátttakanda í æfing- unni sem er sömu skoðunar. Virðast þessir háu herrar því lítið vita um hvað þeir tala, nema þetta hafi verið „skipulagt kaos\ eins og menn kalla núorðið slíka hringavitleysu sem þarna átti sér stað. Quelle, skartgripir og Stapafell Nú hefur Stapafell tekið í notkun viðbótarhúsnæði í nýbyggingu sinni. Þá hefur Sigurjón í Quelle-umboðinu opnað afgreiðslubúð við hlið- ina á Stapafelli. Og í Ungó þar sem Hnetan var áður, segja heimildir að opna muni bráðlega verslun með’skart- gripi og aðra gjafavöru. Já, það vantar ekki íjörið við Hafnargötuna í Keflavík. Fréttaritarinn og Bylgjan Athygli Mola hefur verið vakin á því að fréttaritari ríkisútvarpsins í Keflavík, Ragnar Örn Pétursson, aug- lýsir nú mikið hjá samkeppn- isaðila útvarpsins, Bylgj- unni, en ekki hjá félögum sínum á ríkisútvarpinu. Auð- heyrt er að ekki fer saman einka-,,bisness“ Ragnars Arnar og hugsjón fréttarit- arans. Enn rúllar boltinn Þrátt fyrir að bæjarstarfs- menn í Keflavík hafi unnið að uppsetningu leiðbeining- armerkja fyrir Hótel Kefla- vík við Hafnargötuna í Keflavík á dögunum, sam- kvæmt ákvörðun bæjar- stjóra, virðist það veltast fyrir mönnum að gefa grænt ljós á málið. Það nýjasta er að bæjarráð hefur vísað mál- inu til umferðarnefndar, þeirrar sömu og upphaflega spurðist fyrir um málið. Hvert boltinn (málið) mun rúlla þaðan, bíða menn nú spenntir að sjá. s.o.s. All miklar líkur eru nú á því að Sigmundur Örn Stein- arsson, sem betur er þekktur undir höfundarheitinu SOS, setjist næstur í ritstjórastól Reykjanessins. SOS er gam- algróinn blaðamaður aðai- lega á sviði íþrótta, en hann hefur lengi rennt hýru auga hingað suður eftir, enda hans betri helmingur fæddur og uppalinn Keflvíkingur, eins og reyndar var með konu As- mundar, fyrrum ritstjóra, sem nú er búið að reka. Þá hefur það lengi verið stefna Ragn- ars Arnar, formanns útgáfu- stjórnar, að fá félaga sinn SOS í starfið.___________ Samviska & KaunsaM. 'mmm SAMNEFNARI IBUA A SUÐURNESJUM j ATVINNU OG FRÍTÍMUM. TEIKNARI BRAGI EINARSS0N „Hei! Ég fékk frábæra hugmynd! Förum í lækna- leik á meðan við bíðum“.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.