Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.11.1986, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 20.11.1986, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 20. nóvember 1986 17 Ótrúlegur árangur ÍBK í körfunni: 20 sigrar í 20 leikjum ^ V flnkknrr Yngri flokkar ÍBK í körfu- boltanum gera það ekki enda- sleppt. Fjórir flokkar félags- ins, 2., 3. og 5. flokkur karla og 3 flokkur kvenna léku samtals 14 leiki í Islandsmótinu fyrri part nóvembermánaðar og sigruðu í þeim öllum. í flest öllum tilfellum var um yfir- burðasigra að ræða. Ef leikir IBK í meistaraflokkum karla og kvenna eru meðtaldir þetta tímabil, en hvort lið lék 3 leiki, þá eru þetta samtals 20 sigrar í jafn mörgum leikjum. Einstakur árangur og greini- legt að keflvískur körfuknatt- leikur hefur sennilega aldrei verjð betri. Urslit í yngri flokkunum urðu annars þessi, ásamt stiga- hæstu leikmönnum: 2. flokkur: ÍBK - Valur ...... 73:63 ÍBK - UMFG........ 86:66 Guðjón 59, Falur 40. Fyrri leikurinn fór fram í Kefla- vík en sá síðari í Grindavík. Þess má geta að þeir Falur og Guðjón skoruðu 11 þriggja stiga körfur í leiknum gegn UMFG. 3. flokkur: ÍBK - KR ............ 48:47 ÍBK - ÍR ............ 63:40 ÍBK - Valur ......... 71:52 Gestur 47, Einar 26, Júlíus 23. Leikirnir fóru fram í Hlíðaskóla í Reykjavík. 5. flokkur: ÍBK - ÍA ............ 32:10 ÍBK - ÍR-b .......... 40:16 ÍBK - UBK............ 36:22 ÍBK - UMFG-b .... 29:6 Kristinn J. 46, Sigurður 29, Kristinn 1. 18. LeikiðVar i Iþróttahúsinu Kárs- nesi i Kópavogi. 3. flokkur kvenna: ÍBK - KR ............ 42:6 ÍBK - ÍR ............ 22:13 ÍBK - UMFG .......... 38:19 ÍBK - UMFN .......... 29:10 ÍBK - Haukar ........ 28:15 Kristin B. 48, Eva 29, Jana 24. Leikið var í KR-heimilinu í Reykjavík. Síðustu 5-6 ár hafa Keflvík- ingar verið með 3-4 íslands- meistaratitla á hverju ári, en nú stefnir jafnvel í mun fleiri titla. Það er því greinilegt að Keflvíkingar þurfa ekki að kvíða framtíðinni í körfubolt- anum. - pket. ÍBK vann UMFG í 1. deild ltvenna í körfuknattleik í Iþróttahúsi Keflavíkur sl. fimmtudag. Keflavíkurstúlk- urnar skoruðu 70 stig en þær grindvísku 56. Staðan í hálf- leik var 37:29 fyrir ÍBK Grindvíkingar byrjuðu leik- inn af miklum krafti og náðu 8 stiga forskoti 16:8. Þá fóru Keflvíkingar í gang og skor- uðu 19 stig á næstu 5 mín. án þess að UMFG næði að svara fyrir sig. Staðan breyttist því úr 16:8 í 27:16. Staðan í leik- hléi var 37:29. Eftir þennan ótrúlega leik- kafla var aldrei spurning hvorum megin sigurinn lenti. ÍBK-stelpurnar léku af öryggi í seinni hálfleik og unnu ör- uggan sigur. Fjórtán stig skildu í lokin, 70:56. Þær Björg Hafsteinsdóttir og Guðlaug Sveinsdóttir voru bestar í liði IBK. Einnig var Auður Rafnsdóttir sterk í frá- köstunum. Grindavíkurliðið hefur komið á óvart með góðri frammistöðu, því þetta er i fyrsta skipti sem UMFG sendir lið til keppni í kvenna- körfu. Svanhildur Káradóttir og Marta Guðmundsdóttir voru atkvæðamestar í leiknum við ÍBK. Stig ÍBK: Björg Hafsteins- dóttir 26, Guðlaug Sveinsd. 24, Auður Rafnsd. 7, Kristín Blöndal 4, Margrét Sturlaugs- dóttir og Bylgja Sverrisdóttir 2 stig hvor. Stig UMFG: Marta Guðmundsd. 21, Svanhildur Kárad. 17, Stefanía Jónsd. 10 og Hafdís Sveinbjörnsd. 3. pket. Handbolti 2.deild - Reynir-ÍBK 23-23: Úrvalsdeild KR-ingar sáu röndótt „Við höfum leikið vel und- anfarið, unnið fjóra sigra í röð og það gegn liðum í toppbar- áttunni. Við skulum bara vona að gamanið sé rétt að byrja. Ef við höldum þessum dampi verðum við örugglega í barátt- unni um íslandsmeistaratitil- inn“ sagði Guðjón Skúlason eftir yfirburðasigur ÍBK á KR í úrvalsdeild körfuboltans í Keflavík sl. fimmtudagskvöld. ÍBK skoraði 87 stig gegn 58 KR-inga. Staðan í hálfleik var 40-28 fyrir ÍBK. Hver stórleikurinn rekur nú annan hjá Keflvíkingum. Þeir verða illsigraðir í vetur með spilamennsku eins og í síðustu fjórum leikjum, allavega á heimavelli. „Það er ekki nóg með það að þeir spili út 30 sek- úndurnar heldur taka þeir 3ja stiga skot og hitta hvað eftir annað. Það er ekkert grín að leika á móti svona liði“ sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari KR eftir leikinn. Leikur þessi við KR var aldrei spennandi. Keflvíking- ar voru klassa betri. Þeir náðu strax góðri forystu í fyrri hálf- leik sem þeir síðan juku jafnt og þétt. I leikhléi munaði 12 stigum. Sú tala hækkaði um helming strax í byrjun seinni hálfleiks. Lokatölur 87-58, Guðbrandur Stefánsson skor- aði síðustu körfuna á síðustu sekúndunni. Hann og fleiri ungir strákar í liðinu fengu að spreyta sig síðustu mínúturnar og stóðu sig vel. Falur skoraði t.a.m. 3 körfur í röð á ör- skömmum tíma. Mikið efni Falur. Besti maður ÍBK var þó Guðjón Skúlason. Mistókst varla skot í leiknum og skor- aði alls 31 stig, þar af þrjár 3ja stiga körfur. Allir leikmenn ÍBK skoruðu. Úrvalsdeild: Njarðvík vann Hauka Njarðvíkingar unnu góðan sigur á Haukum í Hafnarfirði sl. fimmtudag. UMFN skoraði 72 stig gegn 64 Hauka, sem höfðu 10 stiga forskot í leik- hléi, 42:32. Helgi Rafnsson var stiga- hæstur Njarðvíkinga með 23 stig.__________________ Handbolti kvenna Góð frammi- staða ÍBK Dagana 15. og 16. nóv. sl. var leikin 2. umferð hjá 3. fl. kvenna í íslandsmótinu í handknattleik. Spiluðu ÍBK- stúlkurnar alls 3 leiki og fóru þeir fram í Réttarholtsskóla. Sigruðu ÍBK-stúlkurnar Ár- menninga með 10 marka mun og HK með 11 mörkum, en gerðu jafntefli við Þór, 11:11. Markahæstar hjá ÍBK á móti Ármanni voru Ásta Sölvadóttir með 5 mörk og Sigurbjörg Guðjónsdóttir 4 mörk. Gegn HK skoruðu flest mörk Guðrún Þorsteinsdóttir 4 og Stefanía 3, en á móti Þór skoraði Guðný Karlsdóttir 4 mörk og Guðrún Þorsteins- dóttir jafnmörg. í öllum leikjunum þrem skoraði Ásta Sölvadóttir 13 mörk samtals, Sigurbjörg Guðjónsdóttir 8 mörk og Guðný Karlsdóttir 6. Mark- menn ÍBK voru þær Harpa Olafsdóttir og Kristjana Gunnarsdóttir og stóðu þær sig mjög vel. - eyg. IBK-stúlkur kafsigldu þær grindvísku á 5 mín. kafla forskotið en með harðfylgi tókst heimamönnum að minnka muninn í 3 mörk fyrir leikhlé, 12-15. ÍBK héldu forystunni í seinni hálfleik er Reynismenn jöfnuðu þegar 3 mín. voru til leiksloka eins og áður segir. Og var það í fyrsta skipti í leiknum sem Reyni tókst að sem ekkert gekk hjá Reynis- mönnum. Keflvíkingar juku Reynismenn jöfnuðu þegar 15 sek. voru tíl leiksloka Það varð sannkallaður ná- grannaslagur er lið Reynis og IBK áttust við í Sandgerði sl. föstudag. Liðin skildu með sér stigum, skoruðu bæði 23 mörk. Staðan í hálfleik var 12- 15 fyrir ÍBK. Keflvíkingar voru klaufar að sigra ekki í leiknum. Eins og í nokkrum fyrri leikjum klúðruðu Keflvíkingar hvað eftir annað á lokamínútunum. Þegar 10. mín. voru til leiks- loka hafði ÍBK 4 marka for- ystu 21-17. Með harðfylgi tókst Reynismönnum að jaifna 21-21. Þegar 15. sek. voru til leiksloka höfðu Keflvíkingar eitt mark yfir. Reynismenn fengu þá vítakast sem Heimir Morthens skoraði úr. Gamla brýnið stóð sig vel og var ör- yggið uppmálað í vitunum, og skoraði 7 mörk úr vítum úr jafn mörgum tilraunum. Keflvíkingar byijuðu leik- inn með miklum láíum og komust í 4-1 eftir 5.mín. leik. Varð strax mikil harka í leikn- um og ekki gefin tomma eftir. Vöm IBK var þétt fyrir og lítið jafna. Lokamínútumar vom æsispennandi eins og áður hefur verið lýst. Lokatölur 23-23. Mikil stemning var á áhorf- endapöllunum í þessum hörku nágrannaleik. Urslitin ekki beint sanngjöm miðað við gang leiksins. Með yfirveg- un hefði ÍBK getað sigrað. Enginn bar af í liði Reynis. Leikmenn gáfust ekki upp þó á móti blési og uppskáru laun erfiðisins. Bestir hjá IBK vom Freyr Sverrisson og Pétur Magnússon í markinu. Mörk Reynis: Heimir M. 8, Daníel 4, Willum 4, Stefán 3 og aðrir minna. Mörk ÍBK: Freyr 7, Arin- björn 4, Björgvin 4, Jóhann 3, Jón Kr. 3 og aðrir minna. ghj. Heimir Morthens jafnaði úr vitakasti á síðustu stundu. Hart barist undir körfu ÍBK. Björg Hafsteinsdóttir nær frákastinu. Bylgja Sverris, Anna María og Svan- hildur fylgjast með. Kvennakarfa:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.