Víkurfréttir - 20.11.1986, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 20. nóvember 1986
VIKUR-fréttir
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Námsflokkar
Postulínsmálun
20 kennslustunda námskeið hefst mánu-
daginn 24. nóvember kl. 20. Kennt tvisvar í
viku, mánudaga og miðvikudaga.
Kennari: Heiðrún Þorgeirsdóttir.
Hámarks þátttaka 10 nemendur.
Innritun gegn greiðslu kr. 3.000, á skrif-
stofu skólans til 24. nóvember.
Aðstoðarskólameistarí
1SB7 CANHON’S YBAR AT THE BOX OFFICE
JOHN CLEESE
CI.#CKWISE
STUNDVÍSI
Eldfjörug gamanmynd. Það er góður kost-
ur að vera stundvís, em öllu má ofgera,
Þegar sá allra stundvísasti verður of seinn,
færist heldur betur líf í tuskurnar.
Aðalhlutverk: John Cleese.
SÝND í KVÖLD KL. 21
OG UM HELGINA.
FÉLAGSBÍÖ Keflavík
Staðreyndum verður að kyngja
Við hvað er að fást
í málefnutn S.K.?
I síðustu Víkurfréttum er
því slegið upp hvort Sjúkra-
húsið verði „aðeins geymslu-
stofnun". Einnig segir í grein-
inni að hætt verði við að hafa
deildarskipt sjúkrahús og að
uppsagnir lækna valdi hugar-
angri. Hér gætir nokkurs mis-
skilnings, Sjúkrahús Kefla-
víkur hefur aldrei fengið viður-
kenningu sem deildarskipt
sjúkrahús. Engin samþykkt
hefur verið gerð um að hætta
við að vinna að því að fá slíka
heimild, hins vegar var ákveð-
ið að láta langlegudeild hafa
forgang. Öllum ætti að vera
ljóst að stjórn S.K. markar
ekki stefnuna í heilbrigðismál-
um hér á landi, hún ræður
heldur ekki hversu miklu fé er
veitt til reksturs sjúkrahússins.
Hvoru tveggja ákveða stjórn-
völd á hverjum tíma og núver-
andi stjórnvöld hafa ákveðið
mikinn niðurskurð til þessara
mála. Nýkjörin stjórn S.K. er
ekki aðeins að fást við að ná
kostnaði niður um a.m.k. 20%
miðað við áætlun forstöðu-
manns fyrir árið 1987 heldur
tekur hún við óuppgerðum
skuldahala upp á tugi mill-
jóna. I ár stefnir í að halli verði
yfir 30 milljónir króna sem
bætist við skuldasúpuna sem
fyrir var. Ekki kemur fram
hverjir þessir „aðilar“ sem
Víkurfréttir ræða við um mál-
efni sjúkrahússins eru, en þess-
ar staðreyndir mættu þeir hafa
í huga. Segja má að Sparisjóð-
urinn í Keflavík hafi rekið S.K.
að undanförnu þar sem hlað-
ast upp dráttarvextir á van-
skilin. Þannig verður ekki
áfram haldið og ekki verður
vikist lengur undan að gera
róttækar ráðstafanir og þær er
verið að gera og verður að gera
hvort sem „viðmælendum“
Víkurfrétta líkar eða ekki.
Hvar skal skera?
Síauknar kröfur eru gerðar
Ólafur Björnsson
til heilbrigðisstofnana, það er
því ekki einfalt mál að skera
niður kostnað um 20% á einu
ári. Launakostnaður á Sjúkra-
húsi Keflavíkur er um 70% af
heiidarrekstrarkostnaði, það
var því eðlilegt að stjórnin liti á
hann. Margfræg leið að byrja á
ræstingafólkinu þótti ekki
efnileg til árangurs. Þess í stað
var fyrst litið á hæstu launin og
í framhaldi af því var öllum
sérfræðingum og læknum sagt
upp samningum, sem við þá
hafa verið gerðir, enda eru þeir
í flestu langt umfram samn-
inga stéttarfélags þeirra.
Óllum gefst þeim kostur á
að semja á ný við S.K. miðað
við breytt rekstrarfyrirkomu-
lag og við þær heimildir sem
stjórnin hefur frá heilbrigðis-
yfirvöldum. Öllum gefst þeim
kostur á launum langt framúr
þeim sem formaður stéttar-
félags þeirra kynnti í morgun-
útvarpi fyrir skömmu.
Þjónustu og öryggi við
bæjarbúa á Suðurnesjum
stendur ekki til að skerða. Við
eigum stutt í fullkomnustu
sjúkrahús landsins og þrátt
fyrir allar vaktir hér hafa 90%
af svokölluðum bráðatilfellum
verið send til Reykjavíkur
undanfarin ár. Vonandi
finnast leiðir til að draga víðar
úr kostnaði, þegar ljóst er að
það mun takast hvað þvottinn
varðar. Rækileg endurskoðun
fer nú fram á reikningum S.K.
og H.S.S. í framhaldi af henni
væntum við gagnlegra ábend-
inga til þess að bæta rekstur-
inn almennt.
Geymslustofnun
Um árabil hefur verið rætt
um D-álmu og á sama tíma
hefur vandi aldraðra og sjúkra
aukist með hverju ári. Nú er
svo komið að hér ríkir það sem
með réttu er kallað neyðará-
stand í þeim málum. Vafalaust
hefði mátt halda áfram að
þrasa um að fá heimild til að
byggja miðað við deildarskipt
sjúkrahús en staðreynd er að
þær óskir eiga ekki hljóm-
grunn hjá þeim sem ráða, því
verðum við að kyngja að sinni.
A fundi sem stjórn S.K. boðaði
til þann 1. nóv. sl. meðsveitar-
stjórnarmönnum og þing-
mönnum kjördæmisins var
samþykkt samhljóða að breyta
fyrri umsókn um D-álmu og
sækja um að byggja aðeins
langlegudeild í þessum áfanga.
Allir voru sammála um að í
þeim efnum væri þörfrn svo
brýn að allra ráða yrði að leita
til þess að bæta úr ríkjandi
ástandi sem fyrst. Þessari sam-
þykkt var tafarlaust komið á
framfæri. Nú hefur borist
skriflegt svar heilbrigðisráð-
herra um að ráðuneytið muni
leggja til að fjárveiting fáist á
árinu 1987 til hönnunar D-
álmu. Þetta kann að virðast lít-
ið en er þó meira en áður hefur
náðst fram og í raun lykillinn
að framhaldinu. Svo reynir á
hvort leyfi fæst til að nýta það
lánsfé sem talið er standa til
boða og hefjast handa við
bygginguna. Þar mun reyna á
þingmenn okkar og því meira
sem áhrif þeirra eru meiri á
æðstu stöðum.
Olafur Björnsson
FLEYGT I FORINA
Það er alkunna að sápukúl-
NJARÐVÍKINGAR
Bæjarfulltrúarnir Ragnar Halldórsson og Ingólf-
ur Bárðarson verða til viðtals á skrifstofu Njarð-
víkurbæjar mánudaginn 24. nóvember kl. 16-19.
Bæjarstjóri
ur verða ekki langlífar, en þær
geta glitrað í öllum regnbog-
ans litum eða verið með öllu
litlausar, eftir ástæðum.
Mér kom þetta í huga eftir
að hafa lesið í Morgunblaðinu
frá 4. nóvember s.l. frásögn
um úrslit skoðanakönnunar
trúnaðarmannaráða sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjaneskjör-
dæmi og um röðun kjörnefnd-
ar á lista flokksins við væntan-
legar Alþingiskosningar.
Það kom all spaugilega fyrir
sjónir, að fyrir þessa skoðana-
könnun birtist hver blaða-
greinin á fætur annarri, eftir
einn af þingmönnum flokks-
ins í kjördæminu, Gunnar G.
Schram, í fjölda blaða, þar
sem hann dróg hvergi af sér við
að lýsa sínu eigin ágæti. Eng-
inn hafði hins vegar orðið var
við að nokkuð afgerandi af-
reksverk hefðu orðið til við
þingsetu mannsins, vart hægt
að hugsa sér aðgerðalausari
þingmann.
Það er þess vegna ekki af
neinni tilviljun að kempan
hrapar niður í sjötta sæti í
skoðanakönnuninni, eða er
nánast fleygt á dyr. Samt sem
áður lætur kjörnefnd sig hafa
það að tosa honum til baka
uppí fimmta sæti, af einhverri
óþekktri meðaumkun, en sýn-
ir þar með fulltrúaráðunum og
kjósendum megna lítilsvirð-
ingu á úrslitum ákvarðana
þeirra. Aumingjaskapur kjör-
nefndar kemur þó gleggst
fram í því að einn frambæri-
legasti kandidatinn á listan-
um, Víglundur Þorsteinsson,
er færður niður í fallsæti Schr-
am, ef vera mætti að það
bjargaði „strandkapteinin-
um“ frá glötun.
Suðurnesjamenn eru þekkt-
ir að öðru en því að láta segja
sér fyrir verkum. Þeir hlaða
ekki í kringum sig skrani, sem
þeir vilja losna við. Þeir hafa
endanlega kastað ónothæfri
flík í öskustóna. Allir vita að
kjassaður kjölturakki verður
aldrei nothæfur fjár- og varð-
hundur, í hæsta lagi afþreying-
artæki gamalla piparkerlinga.
Hitt vita allir að hann getur
glefsað og bitið illa án minnsta
tilefnis. Seint mun níðingsverk
þitt í ritstjórastóli Vísis gleym-
ast. Nú er steinninn að hitta
glerhúsið - Gunnar Skran.
Með viðeigandi virðingu,
Þórður E. Halldórsson