Víkurfréttir - 20.11.1986, Síða 6
6 Fimmtudagur 20. nóvember 1986
VÍKUR-fréttir
Nýja flugstöðin
Keflavík
Stafrfsstúlka óskast á skrifstofu Hag-
virkis hf. við nýju flugstöðina, Kefla-
víkurflugvelli. Hlutastarf eða heils-
dags starf.
Upplýsingar í síma 4755.
HAGVIRKI HF.
: orðvan =
MISMUNANDI
SIÐFERÐISMAT
Siðferðismat þjóða er
afar mismunandi og mark-
ast hugtakið, eins og
nafnið gefur til kynna, við
siði og venjur í viðkomandi
landi. Til dæmis er það
óráðlegt og telst siðleysi
hér, að eiga margar eigin-
konur, en hagkvæmt og
sjálfsagður hlutur í Araba-
löndunum. Ef einhver
kaupir heilan kjötskrokk
hér þykir eðlilegt að hann
setji hann í frystikistuna
sína. Víða annars staðar
bd. á Grænlandi, væri það
talið siðleysi að deila ekki
kjötinu strax með ná-
grönnum sínum.
Síðustu ár hafa siðir og
siðferði breyst óvenju
hratt hér á landi. Til dæm-
is hefði það verið talinn
þjófnaður fyrir nokkrum
árum ef 5 milljónir af al-
mannafé hefðu horfið á
einhvem dularfullan hátt
ofaní vasa einhvers útí bæ.
Almenningur og lögin
hefðu tekið hart á þeirri
óráðvendni. Nú heiti slíkt
að draga sér fé, í versta til-
felli bókhaldsóreiða eða
fjármálamisferli og málið
er gleymt um leið og við-
komandi hefur beðist
afsökunar á þessu gáleysi
og lofað að gera svona lag-
að aldrei aftur.
Ekki þykir ámælisvert
eða saknæmt, þó ráða-
menn og stjómendur inn-
lánsstofnana glopri and-
virði 200 einbýlishúsa eitt-
hvað út í buskann fyrir ein-
skæran aulahátt. Þeir sem
best til þekkja, telja svona
uppákomu bara eðlilega
öðm hvom. Menn sem
hafa þann starfa að ráð-
stafa fé örlátra til betra
lífs, eiga það til í greiða-
semi að eyða obbanum af
sjóðnum í snobbreisur um
heiminn. Þegar sjóðurinn
er tæmdur er þeim hrósað í
hástert og taldir hug;
myndaríkir atorkumenn. I
nútímaskilningi er töluvert
tíl í þessu, því verði mönn-
um á að skjóta skjólshúsi
yflr aumkunarverða fjöl-
skyldu, sem er á götunni,
mega þeir teljast heppnir
að lenda ekki eignarlausir í
tukthúsinu, ef þeir fara
fram á húsaleigu, mann-
orðinu tapa þeir í flestum
tilfdlum. Það þykir smá-
frétt, sem fáir taka eftir,
að lýst hefur verið 800
gjaldþrotum frá áramót-
um í Reykjavík. Það var
hins vegar stórfrétt í öll-
um fjölmiðlum, sem fékk
landslýð til að skjálfa af
angist, þegar forstjóra-
grey þjónustufyrirtækis
norður í landi, vildi hækka
gjaldtöku fyrirtækisins til
að forða því frá gjaldþroti.
Maðurinn var greinilega
ekld í takt við tímann og
var samstundis rekinn.
Opinberir embættis-
menn hafa í áraraðir farið
framhjá lögum og reglum
eða skipunum yfirboðara
sinna, jafnvel stungið heilu
málaflokkunum undir stól,
eða taflð þá svo í pólitískri
svikamyllu sín á milli, að
nú ofbýður ráðherranum
sjálfum. Engum hefur enn-
þá dottið í hug að lagfæra
ástandið á þeim bæ.
Hvergi hefur almennt sið-
ferði snúist jafn rækilega
við og í skattamálunum.
Skattsvik eru talin mönn-
um tíl kosta, margir kom-
ast upp með þau ár eftir ár
og hælast um, þar er sam-
hjálpin í hámarki og gagn-
kvæm. Já, margt þykir
gott í eyjunum, sem fólkið
á meginlandinu lítur ekki
við.
ORÐVAR
Jólablað Víkur-frétta
kemur út 18. desember.
Stórt og fjölbreytt að vanda.
Verið tímanlega með auglýsingarnar.
AUGLÝSINGASÍMINN
er 4717.
vnsmuum
Til greiðenda
bæjargjalda
ATHUGIÐ - ATHUGIÐ: Frá og með næstu áramótum verða
dráttarvextir á útsvar/aðstöðugjöld og fasteignagjöld reiknaðir
mánuði eftir gjalddaga í stað 45 daga, eins og nú tíðkast. Þó verða
vextir ekki reiknaðirfyrr en að liðnum a.m.k. tveim virkurn dögum
eftir hver mánaðamót.
Samkvæmt framangreindu verða dráttarvextir á fyrsta gjalddaga
fyrirframgreiðslu útsvars og aðstöðugjalds auk fyrsta gjalddaga
fasteignagjalda reiknaðir um mánaðamótin febrúar-mars 1987.
Dráttarvextir á skuld frá fyrra ári reiknast mánuði fyrr.
Launagreiðendum er sérstaklega bent á að taka tillit til til breyttra
dráttarvaxtadaga og haga skilum á gjöldum starfsmanna eftir því.
INNHEIMTA KEFLAVÍKURBÆJAR
=getraunir
„Auðveldir seðlar erfíðir
fyrir fagmenn“
„Mér sýnist þetta vera léttur seðill, margir léttir leikir,
og það er ekki gott fyrir okkur fagmennina. Þetta þarf að
vera svolítið snúnara", segir næsti spekingur okkar,
Grétar Grétarsson, hraðbankastjóri í Sparisjóðnum.
Grétar er í félagi með vini sínum Magnúsi Haraldssyni,
sem heitir Milljónafélagið. Er það félagið sem eyðir millj-
ónum í getraunaseðla eða sem vinnur milljónir? ,,Við er-
um með „nokkra“ seðla á viku og jú . . . tökum þettaafþó
nokkurri alvöru, við verðum að standa undir nafni. Það
varð að vísu til þegar gamla krónan var í fullu gildi.
Gengið? Við erum nú bara rétt að byrja, en þetta hefur
gengið ágætlega undanfarin ár. Starfsemi félagsins hefst
aldrei fyrr en liðið er á haustið. Það verður að skoða getu
liðanna og spá svolítið í stöðuna. Uppáhaldslið? Man-
chester United hefur alltaf verið mitt lið. Þó svo að liðinu
hafi gengið illa sem af er, er hægt að sjá eitt jákvætt. Það
getur bætt sig og á eftir að gera það“ sagði Milljónafélags-
maðurinn Grétar Grétarsson að lokum.
Heildarspá Grétars:
Uerdingen - B. Munchen X
Charlton - Southampton . 1
Chelsea - Newcastle .... X
Coventry - Norwich ..... 1
Everton - Liverpool (sd.) . 1
Man. Utd. - Q.P.R....... 1
Nott’m For. - Wimbledon I
Oxford - Tottenham .... X
Sheffield Wed. - Luton .. 2
Watford - Leicester.... 1
West Ham - Aston Villa . 1
Derby - Sheffield Utd. ... 1
Vinningshafínn með 5 rétta
Það er fátt um fína drætti hjá spekingum okkar þessa
dagana. Fimm réttir hjá Einsa Júl. Sigurður J. Sig. og
Indriði eru því enn efstir með 7 rétta. - pket.