Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.11.1986, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 20.11.1986, Qupperneq 14
14 Fimmtudagur 20. nóvember 1986 VÍKUR-fréttir NONNI & BUBBI: „Vegna innflutnings okkar gefa verð- kannanir ekki rétta mynd af vöruverði hjá okkur“ Við skoðun á nýjustu verðkönnun verkalýðsfé- laganna kemur í ljós að Nonni & Bubbi er með mjög óhagstæða verðlagn- ingu. En þar sem engin skýring fylgir könnun þess- ari, höfðu Víkur-fréttir samband við verslun Nonna & Bubba til að fá skýringu á því hvað hér væri á ferðinni, og fyrir svörum varð Hannes Ragn- arsson og gefum við honum orðið: „Undanfarna mánuði erum við búnir að vera úti um allan heim í viðræðum við stórar innkaupakeðjur og er því útséð að það verður bylting hér á landi Verslunarhúsnæði 100 ferm. verslunarhúsnæði til leigu að Grófinni 13c. Uppl. í síma 4209 fyrir hádegi. FMK eftir einhver ár, það er bara spurning hvenær. Varðandi allan okkar innflutning þá teljum við okkur núna vera í fremstu víglínu með stór- felld innkaup fyrir okkur sjálfa. Þessar blessaðar verð- kannanir keyra alltaf á þessum gömlu merkjum sem hafa verið lengi á markaðinum. Þess vegna teljum við að þessar kann- anir gefi ekki rétta mynd af verðlaginu í búðunum. Mikið af þeirri vöru sem við flytjum inn í dag er miklu ódýrara en þessi gömlu merki og vel samkeppnis- fær. Við flytjum inn í dag um 150 vörutitla og erum stærstir t.d. í þvottaefnis- dreifingunni hér á landi í dag. Þessi vörumerki koma ekki fram í verðkönnunum þessum. I innflutningi erum við ekki eftirbátar t.d. Hag- kaups, því við vorum langt á undan þeim með ýmislegt sem þeir eru núna að aug- lýsa upp. Höfum við t.d. verið í sambandi við keðjur á Norðurlöndum sem gefa okkur kost á að flytja inn í stórum stól ýmsa vöru- flokka, en til þess þarf mikið fjármagn og því kemur þetta smátt og smátt, en ekki allt í einum hvelli. Við erum þó að reyna að vera með tilburði til aðgera þessa hluti á undan hinum og þessi nýi markaður okk- ar sem við opnum bráðum verður byggður upp á því að vörurnar seljist á því verði sem vonlaust er að þessir stóru markaðir geta boðið upp á. Hvað við köllum markaðinn, sprengi- markað, útsölumarkað eða tilboðsmarkað, þá er víst að aðrir geta ekki keppt við okkur þar, því allt verður byggt upp með það fyrir augum að vera sem ódýr- astir í resktrinum. Mun fólki því gefast þarna virki- legir möguleikar á að versla ódýrt. Þetta kemur ekki fram í verðkönnunum, sem við erum að gera, þess vegna gefa þessar verðkannanir ekki rétta mynd af því sem er að ske hjá hverju fyrir- tæki fyrir sig. Fyrir þetta erum við að „blæða“ og sér- staklega þegar maður stendur í innflutningi til að geta boðið upp á ódýrari vörur. Vona ég að Keflvíkingar sjái nú að sér í þeim efnum til að við getum virkilega haldið þessum heiðri okkar að vera lægstir í vöruverði og sýna tilburði til að reyna að leita að þeim vörum sem við höfum upp á að bjóða“, sagði Hannes Ragnarsson kaupmaður, sem rekur ásamt bróður sínum Jónasi verslunina Nonni & Bubbi og heildverslunina Impex. -ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGA R- Gómsætir Glóðar-réttir gleðja alla. LANGBESTI SKYNDIRÉTTASTAÐURINN Við höfum á lager, setjum undir og smíðum pústkerfi fyrir flestar gerðir bifreiða. Pústþjónusta Biarkcrrs1 simi 3003 Grófin 7 - Keflavík ATH: Eina pústþjónustan á Suðurnesjum Þriftækniþjónustan Teppahreinsun og hreingerningaríheima- húsum og fyrirtækjum. Möguleikar á hagstæðum tilboðum. Upplýsingar og pantanir í síma 2353. Alterna- torar og startarar í margar gerðir bifreiða. Varahlutaþjónusta. R.O. Radíóvík Hafnargötu 35 - Keflavík Allar almennar viðgerðir á sjónvörpum, myndböndum og hljómflutningstækjum. ísetningar í bíla samdægurs. RADfÓVÍK Hafnargötu 35 - Sími 3222 Hafnargötu 44 - Simi 3337 Versliö við fagmanninn. Þar er þjónustan. V/KUR Blað sem^lesið upptilagna 4700 eintök í 7 byggðarlögum Island — Ameríka Beinar siglingar milli Njarðvíkur og Norfolk með M.v. RAINB0W HOPE". Flytjum stykkja-, palla- og gámavöru, frystivöru og frystigáma. Umboðsmenn okkar eru Cunnar Guðjónsson sf Hjfnjrstraeti 5 PO 80*290 121 Revtjav* simi 29200 Tetex 2014 Mendon SNp Agencv mc 201 E Citv hj« Ave Smte 501 NorfoA va 25510 USA Strm (8041-625-5612 Tetex 710-881-1256 Lestunardagar Áœtlun. Njarðvík — Norfolk 23. nóv. 5, des. 15. des. (jffz Rainbow Navigationjnc.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.