Víkurfréttir - 08.01.1987, Qupperneq 11
10 Fimmtudagur 8. janúar 1987
VÍKUR-fréttir
Eðvarð með sjö
met í desember
Útnefndur íþróttamaður ársins hjá DV og hiaut
200 þúsund króna styrk hjá ÍSÍ
Eðvarð Þór Eðvarðsson,
sundmaðurinn kunni í Njarð-
víkum, fékk nýverið 200 þús.
krónastyrk úr afreksmanna-
sjóði ISI til að gera honum
auðveldara að leggja stund á
íþrótt sína. Eðvarð hefur
verið ákaflega duglegur við
að setja met að undanförnu
og í desember setti hann 7 Is-
landsmet. Þá var hann í
sama mánuði útnefndur
íþróttamaður ársins 1986 af
DV, sem var vel af sér vikið.
„Núna er ég að æfa fyrir
mót í Frakklandi sem fram
fer í lok janúar. Mótið verð-
ur í Strassburg og er það
eins konar æfing fyrir
Evrópumótið sem fram fer
á sama stað í ágúst. Ég á
von á því að flestir sterk-
ustu sundmenn Evrópu
mæti til að máta laugina",
sagði Eðvarð. Hann ætlar
að keppa í 5 greinum á
mótinu.
Eðvarð sagðist stefna
líka að Olympíuleikunum
sem fram fara á næsta ári í
Suður-Kóreu. Hann hefur
þegar náð að synda undir
væntanlegu ólympíulág-
marki í 4 greinum, í 100 og
200 m baksundi, 100 m
bringusundi og 200 m fjór-
sundi.
Þá sagði Eðvarð enn-
fremur, að hann sknaði
styrksins sem fyrrverandi
meirihluti í bæjarstjórn
Njarðvíkur hefði veitt sér
„Líkur á að ég leiki í
markinu hjá KA næsta
keppnistímabil finnst mér
miklar. A næstunni mun ég
fara til Akureyrar og
kynna mér það sem í boði
er og skrifa þá væntanlega
undir samkomulag um að
leika með liðinu“, sagði
Olafur Gottskálksson,
körfuknattleiksmaður og
varamarkmaður IBK, í
samtali við Víkur-fréttir.
Þjálfari KA, Hörður
Helgason, hafði nýverið
samband við Olaf og bauð
honum markmannsstöð-
una í liðinu.
og komið að góðum notum.
A þessa fjárveitingu hefði
núverandi meirihluti klippt
þegar hann tók við stjórn
bæjarins.
Ólafur sagði að hann
teldi litlar líkur á að sér
tækist að ná markvarðar-
stöðu Þorsteins Bjarna-
sonar í liði ÍBK og hann
teldi þetta því réttan leik í
stöðunni. Með þessu fengi
hann tækifæri til að
spreyta sig og öðlast um
leið leikreynslu sem hann
að öðrum kosti hefði ekki
fengið.
„Meiningin er að æfa í
Reykjavík fram eftir vori,
reyndar er það nú svo
furðulegt að allt KA-liðið
kemur til með að æfa í
Reykjavík til að byrja
með. Það eru margir úr
liðinu í skóla fyrir sunn-
an og mun það vera hag-
kvæmara að koma með þá
sem eru fyrir norðan
suður, því þeir eru miklu
færri en hinir“.
Ólafur sagði ennfremur
að hann myndi að öllum
líkindum gera samkomu-
lag til eins árs. Öruggt
væri að hann lyki yfir-
standandi keppnistímaili
í körfuknattleik með ÍBK.
M
Firmakeppni
í innanhússknattspyrnu verður haldin í
íþróttahúsi Keflavíkur 17. og 18. jan. n.k.
Þátttaka tilkynnist í síma 3633 (Jón Halld.)
og 4832 (Guðlaugur) í síðasta lagi
miðvikudaginn 14. janúar.
Knattspyrnuráð ÍBK
íá
Framkvæmdastjóri
Ólafur til
Akureyrar
Knattspyrnuráð ÍBK óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra til starfa. Viðkomandi þarf að
geta unnið sjálfstætt og hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefur formaður knatt-
spyrnuráðs, Kristján Ingi Helgason, í símum
3040 og 4609.
Ragnar kom heim í stutt jólafrí, en það verður að halda sér í góðu
formi á meðan.
r
i
I
I
I
i
Gerðu samning
til tveggja ára
Enski knattspyrnuþjálfarinn
Peter Keeling hefur undirritað
2ja ára samning við íþrótta-
bandalag Keflavíkur. Þeir Ragn-
ar Marinósson formaður ÍBK og
Krisíján IngiHelgason fomtaður
knattspyrnudeildar, eru ný-
komnir heim frá Englandi þar
sem endanlega var gengið frá
samkomulaginu.
„Keeling mun konia hingað
til lands um mánaðamótin janúar
-febrúar og leggja mönnum lín-
urnar“, sagði Ragnar. Hann
sagði ennfremur að í samningn-
urn væru ákvæði um að Keeling
hefði yfirumsjón með þjálfun
yngri Öokkanna og hann myndi
auk þess stjórna knattspvrnu-
skóla. „Yngri flokkarnir hafa
verið í lægð og við viljum breyt-
ingu á þeirri stefnu“. Að sögn
Ragnars kemur Keeling hingað
í byrjun mars og tekur lil
óspilltra málanna við þjálfun og
undirbúning liðsins fyrir næsta
keppnistimabil.
VILL K0MA MEÐ
LEIKMANN
Peter Keeling, nýráðinn þjálf-
ari IBK í knattspyrnu hefurntik-
inn áhuga á að koma með leik-
mann sem gæti styrkt lið ÍBK.
Hann ermeð ákveðinn lcikmann í
huga sem leikur stöðu sóknar-
tengiliðs.
„Þetta bar á góma þegar við
gengum frá samkomulaginu við
Keeling íEnglandi á dögunum og
ítrekaði hann þá þennan áhuga
sinn“, sagðiRagnarMarinósson,
fonnaður ÍBK.
JEngin ákvörðun vartekin.Ef
af verður, þarf að útvega þess-
um manni vinnu, auk þess sem
fleira kemur til.Mál þetta þarf að
skoða betur áður en ákvörðun
verðurtekin“, sagðiRagnar enn-
fremur.
n
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
l
I
i
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 8. janúar 1987 11
„Vil ná enn lengra í
atvinnumennskunni"
- sagði Ragnar Margeirsson, atvinnumaður í knattspyrnu hjá Waterschei í Belgíu,
í samtali við Víkur-fréttir
mann úr umferð. Það gekk
vel og náði svo að tryggja
sigur í lokin. Það var góð
tilfinning".
Lítið samband
við leikmenn
Ragnar og eiginkona
hans, Ingunn Yngvarsdótt-
ir, búa ásamt syni sínum
Ragnari Aron, í góðu ein-
býlishúsi á ágætum stað í
borginni Geenk, sem er 60
þús. manna borg. En
hvernig líkar fjölskyldunni
dvölin, lagt í burtu frá
vinum og ættingjum?
,,Við höfum kunnað
ágætlega_ við okkur hér í
Belgíu. Ég hef að vísu lítið
sem ekkert samband við
hina leikmennina og þeirra
fjölskyldur, nema einn
þeirra, sem er Júgóslavi. En
við höfum gott samband
við Arnór og hittum þau
oft. Þá förum við og spilum
snóker, sem er mjög vinsælt
hér í Belgíu og nánast snók-
erbúlla á hverju horni. Við
höfum fengið mikið af
heimsóknum vina og
vandamanna. Félagsskap-
urinn er það sem maður
saknar mest að heiman og
því er gaman að fá heim-
sóknir. Við erum þó farin
að venjast tilverunni hér og
líður bara vel“.
Meiri atvinnumennska
Samningur Ragnars
Margeirssonar við félagið
rennur út í vor, að leiktíma-
bilinu loknu. Hvað tekur
við? Verðurðu áfram hjá
Waterschei, ferðu eitthvað
annað eða kemurðu heim
aftur?
„Það hafa ekki neinar
viðræður átt sér stað milli
mín og forráðamanna liðs-
ins, en þeir hafa þó sagt mér
að ég geti verið áfram. Ég
hef hug á að vera áfram í
atvinnumennskunni og
langar að komast lengra; í
1. deildinni belgísku eða
eitthvað annað. Það sem
allt veltur á er frammistaða
mín á þessu tímabili. Ef ég
næ að halda sama striki,
skora mörk og stend mig
vel, eru möguleikarnir
meiri. Ég fékk tilboð frá 1.
deildarliði í Grikklandi um
daginn, en forráðamenn
Waterschei sögðu þvert nei.
í 2. deildinni er ekki hægt
að stunda nein leikmanna-
kaup á tímabilinu, þannig
að þeir hefðu ekki getað
keypt neinn annan í staðinn
ef þeir liefðu látið mig
fara“.
- Það eru sem sagt ekki
miklar líkur á að þú komir
til ÍBK í bráð?
,Það er ekki hægt að spá
í hlutina langt fram í tím-
ann. Það getur líka alltaf
eitthvað óvænt gerst. En
hvað sem öllu líður þá hef
ég áhuga á að ná lengra í
atvinnumennskunni“.
Myndir og texti:
Páll
Ketilsson
„Ég fékk fljúgandi start,
skoraði tvö mörk í fyrsta
leiknum í haust og skoraði
líka mikið í æfínaleikjum
áður en deildin hófst, - fékk
sjálfstraustið sem vantaði í
fyrra“, segir Ragnar Mar-
geirsson í samtali við Víkur-
fréttir er hann kom heim í
stutt jólafrí frá belgísku
knattspyrnunni.
Ragnar gerðist atvinnu-
maður með belgíska liðinu
Waterschei í október 1985.
Þá var liðið í neðsta sæti í 1.
deild. Dagblöð í Belgíu
sögðu frá því að ungur
markaskorari frá Islandi
ætti að bjarga liðinu frá
falli. „Já, ég var ekki fyrr
kominn út en maður sá
stórar fyrirsagnir í blöðun-
um. En það var eins og
maður hefði gleymt skot-
skónum heima. Ég fékk
fullt af færum en gekk illa
að skora^ Sjálfstraustið
vantaði. Ég skoraði eitt
mark í 15 leikjum og var
töluvert frá vegna
meiðsla“.
Það gekk á ýmsu hjá
Ragnari og félagi hans
þetta ár. Þjálfarinn var
rekinn vegna lélegs gengis
og vara-liðsþjálfarinn tók
við. Allt kom fyrir ekki og
liðið féll í 2. deild.
Stanslaus keyrsla
- Nú ertu búinn að vera
rúmt ár í atvinnumennsku,
hinum harða heimi knatt-
spyrnunnar. Er ekki mikill
munur á áhuga- og atvinnu-
mennsku?
,,Þetta er stanslaus
keyrsla og harka allan leik-
inn. Þú getur ekkert slapp-
að af. En svo er einnig
talsverður munur á 1.
deildinni hér og 2. deild-
inni þar sem mun meiri
harka ræður ríkjum. I 1.
deild er leikinn mun opn-
ari bolti og leikmenn eru
betri. Nú hef ég fengið mun
færri færi til að skora úr, en
í fyrra, en munurinn er sá
að ég hef nýtt þeu miklu
betur. Ég er yfirvegaðri og
með sjálfstraustið í lagi“.
10 mörk og
stigahæstur í deildinni
- Hvernig hefur liðinu
svo gengið?
„Okkur var spáð góðu
gengi og efstu sætunum.
Við erum núna um miðja
deild með 15 stig, 6 stigum á
eftir efsta liðinu, Winter-
slag, sem er lið úr sömu
borg. Okkur hefur gengið
vel að skora en vörnin hefur
verið slök. Við höfum til að
mynda þrisvar náð 2 marka
forskoti en alltaf tapað því
niður í jafntefli. I þessum 3
leikjum höfum við skorað 6
mörk og ég gert 5 þeirra“.
En þó að liðinu hafi
ekki tekist að sýna allar
sínar bestu hliðar, hefur
Ragnar leikið mjög vel.
Hann er annar í stigagjöf 2.
deildar með 38 stig, sá efsti
er með 42 stig. Þrír
leikmenn í hverju liði fá stig
eftir hvern leik og er það
þjálfari í liði andstæðing-
anna sem gefur stigin.
Ragnar hefur fjórum sinn-
um fengið hæstu einkunn-
argjöf, 5 stig, þar af í
síðustu tveimur leikjum.
„Það er vissulega niður-
drepandi þegar liðið hefur
náð forystu þegar maður
hefur skorað, en nær ekki
að halda haus. En maður
verður bara að halda áfram
að berjast. Ég hef sjálfur
náð að halda dampi þrátt
fyrir þetta og hef skorað 9
mörk í deildinni og eitt í
bikarkeppninni. Þar
slógum við gott 1. deildar-
lið út, Beerschot í 2:1 sigri.
Ég fékk víti þegar 5 mín.
voru til leiksloka og skor-
aði sjálfur úr því. í þessum
leik lék ég á miðjunni og var
látinn taka þeirra besta
Ragnar er farinn að kunna vel við sig í belgísku knattspyrnunni, hefur skorað mikið af mörkum og er
annar stigahæsti leikmaður 2. deildar.
Lfkamsþjálfun - Leikfimi - Aerobik - Jassballet
KENNSLA HEFST HJÁ BIRNU 12. JAN.
Upplýsingar og innritun í síma 6062.