Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 08.01.1987, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 08.01.1987, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 8. janúar 1987 VÍKUR-fréttir Ð SUDURNES j Friðriks fvarssonar S. 92-7071 / Alhliða flutningar Reykjavík - Suðurnes- Reykjavík Frá Reykjavík alla virka daga kl. 12 og einnig kl. 16 þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og föstudaga. Njarðvík, sími 4418. Áramóta- dansleikur Nýi hjónaklúbburinn óskar öllum Suður- nesjamönnum gleðilegs og farsæls nýs árs. Um leið minnum við á, að hinn árlegi áramótadansleikur klúbbsins verður hald- inn í Stapa, laugardaginn 10. janúar n.k. Hljómsveitin KLASSÍK skemmtir. Lausir miðar verða seldir í anddyri Stapa föstudaginn kl. 20-21.30. Uppl. hjá Þórði s. 2441, Árna s. 2511, Elíasi s. 2464 og Guð- mundi s. 2854. - Allir velkomnir, líka Klúbbur ’81. Kær kveðja. Stjómin Verslun til sölu Verslun við Hafnargötu í fullum rekstri til sölu nú þegar. Nánari upplýsingar veittar í síma 2644 eftir kl. 20. Líkamsrækt dnnu Leu og Bróa Byrjum aftur eftir jólafrí 13. janúar. Pant- anir í síma 6133. Austfirðingar Þorrablót Austfirðinga á Suðurnesjum verður haldið í Stapa, laugardaginn 17. janúar og hefst kl. 19. Helgi Seljan og Þorlákur Friðriksson skemmta. - Miðasala íStapadagana 14. og 15. janúar kl. 17-19. Nefndin Bæjarráð Keflavíkur: Frekari við- ræður um kaup á nýja Spari- sjóðshúsinu A fundi bæjarráðs Keflavíkur 30. desember sl. var samþykkt að óska eftir frekari viðræðum við stjórn Sparisjóðsins vegna tilboðs um kaup á nýja sparisjóðs- húsinu við Tjarnargötu í Keflavík. I tilboði Sparisjóðsins á sínum tíma var gert ráð fyrir svari bæjarsjóðs nú fyrir áramótin. 7 teknir w a þrem dögum Frá áramótum og til 4. jan. sl. voru sjö ökumenn teknir af lögreglunni í Keflavík, grunaðir um meinta ölvun við akstur. Af þessari sömu ástæðu voru alls 133 ökumenn teknir á síðasta ári, sem er aðeins færra miðað við árið áður. Byggt yfir Hafbergið Um þessar mundirer unnið að því í Hafnarfirði að byggja yfir Hafberg GK frá Grinda- vík. Að sögn Fiskifrétta er um gagngerðar endurbætur að ræða á skipinu. Verður settur riðstraumur í það í stað jarð- straums og vélin endurbætt. Hafberg GK 377 er 170 tonna stálskip sem lengt var fyrir fjórum árum um fjóra metra og er í eigu Hælsvíkur hf. í Grindavík. Fékk fálkaorðuna Að venju veitti forseti Islands fjölmörgum ein- staklingum heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag. Þar á meðal var einn Suðurnesjabúi, Jón Bjarnason í Vogum, sem fékk orðuna fyrir störf að barnaverndar- málum. Kærður fyrir nauðgun Þrítugur maður var skömmu fyrir jól kærður fyrir nauðgun á konu einni í Keflavík, sem býr í sama húsi og sá ákærði. Var hann dæmdur í gæsluvarðhald til 6. jan. sl., og er síðast frétt- ist hafði hann ekki játað verknaðinn. þrettAndagleði Mikið f]ölmcnni tók þátt i þrettánadgleði sem fram fór í Keflavík sl. þriðjudagskvöld. bctta er gamall siður sem nú var endurvakinn og var ekki annnað að sjá en hæjarbúar tækju þvi vel. Að hátíðinni stóðu Karlakórinn, Skátafélagið, Björgunarsveitin Stakkur, Keflavíkurbær og Tónlistarskól- inn í Keflavik. Eiga þcssir aðilar bestu þakkir fyrir og vonandi verður þessi viðburður árlegur. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri. Félagar úr Hestamannafélaginu Mána riðu í fararbroddi í blysför frá bæjarskrifstofunum að íþróttavellinuin. Krakkar og fullorðnir i furðubúningum. Fólk safnaðist í kringum brcnnuna, sem logaði glatt, og fylgdist með skemmtiatriðunum. Ljósmyndir: pket.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.