Víkurfréttir - 02.02.1989, Page 12
\)imr<
12 Fimmtudagur 2. febrúar 1989
jUUU
Beitningamaður-Njarðvík
Vantar vanan beitningamann strax
við 80 tonna bát sem rær frá Kefla-
vík. Húsnæði á staðnum. Upplýsing-
ar í síma 92-14666 ogákvöldin í síma
92-16048.
ATVINNA
Óskum eftir fólki í þrif á vinnslusal
eftir vinnu. Nánari uppl. í síma
14666.
BRYNJÓLFUR hf.
Opinberun
- Spádömar
íslendingar hafa löngum
heillast af dulrænum fyrir-
brigðum og haft áhuga á hinu
óþekkta. Hvað segja völvurn-
ar um yfirstandandi ár? Hvað
er handan grafarinnar? Hvað
segir Nostradamus um fram-
tíðina? Þetta eru sífellt vinsæl-
ar spurningar og skemmtilegt
umræðuefni.
Ein merkilegasta spádóms-
bók allra tíma er án efa Opin-
berunarbók Jóhannesar, en
mörgum hefur þótt hún erfið
yfirferðar. Svo þarf þó ekki að
vera ef maður tekur tíma til
þess að skilja hana. Opinber-
unarbókin segir um sjálfa sig
^leðaferð
Þar sem fresta varð, sökum veðurs, sleðaferðinni sem fara átti um síð-
ustu helgi, höfum við nú ákveðið að reyna aftur á laugardag, ef veður
leyfir. Farið verður frá Tjarnarseli kl. 14 í Svartsengi og lagt af stað
heim kl. 17. Takið með ykkur nesti og að sjálfsögðu sleða eða skíði.
Farið kostar 100 krónur og ferð þessi er fyrir alla.
Stjórn Foreldrafélags Tjarnarsels
Ferð til Barbados
Orlofsnefnd sjómanna hefur í samráði við Ferðaskrifstofu
F.Í.B. ákveðið að efna til hópferðar til eyjunnar Barbados í
Karabíska hafinu í maí n.k. Fyrir liggur eftirfarandi tilboð
frá Ferðaskrifstofu F.Í.B.:
Brottför til London 20. maí, ein nótt á hóteli við London
ásamt morgunverði. Til Barbados 21. maí og dvalið á fyrsta
flokks hóteli í 3 vikur.
Til London frá Barbados 10. júní. Ein nótt á hóteli með
morgunverði og til íslands er síðan haldið hinn 11. júní.
Hægt er að framlengja dvölina í London að vild.
Verð miðast við gengi 10. janúar 1989 og er íkr. 78.000 auk
flugvallarskatts. Frestur til að panta í slíka ferð er til 15.
febrúar 1989.
Upplýsingar veita Jón hjá Ferðaskrifstofu F.I.B. í síma 91-
29999 og Helga í síma 13417 milli kl. 11 og 13.
að hún sé opin bók, skrifuð til
þess að allir mættu skilja hana.
Margir átta sig ekki á því að
í Opinberunarbókinni eru um
fjögur hundruð tilvitnanir í
Gamla testamentið og gera
þau mistök að reyna að skilja
þessa fornu spádómsbók eina
sér, án samhengis við Biblíuna
í heild. Þegar þessi bakgrunn-
ur er hafður í huga og tekinn er
tími til þess að bera saman
texta þá opnast nýr heimur
fyrir lesandanum.
A næstunni er áformað
námskeið þar sem Opinberun-
arbókin verður tekin sérstak-
lega til rannsóknar. Þetta er
ekkert venjulegt námskeið, því
hér verður grafið ofan í mjög
djúpa spádóma sem útskýra
fortíðina og opinbera ýmsa
stórviðburði framtíðarinnar. I
þessari bók má sjá mjög
greinilega hvað framtíðin ber í
skauti sér.
Með rannsókn á henni öðl-
ast þú nýjan skilning á heims-
viðburðum og því einkenni-
lega ástandi sem heimurinn er
í núna. Þú munt uppgötva
ótrúlega atburði sem eru rétt
framundan í mannkynssög-
unni og getur þannig undirbú-
ið þig fyrir þá.
I þessari bók er hulunni
svipt af óvini mannanna og
áforntum hans til að blekkja
alla menn, einnig þig. Þú verð-
ur undrandi er þú uppgötvar
að hinn mikli Guð himinsins
talar mjög opinskátt við þig í
gegnum þessa fornu bók. Auk
þess er að finna upplýsingar
um hina framliðnu og líf okk-
ar í framtíðinni, handan graf-
arinnar.
Auk alls þessa er í Opinber-
unarbókinni fjallað um for-
vitnileg hugtök eins og t.d.
merki dýrsins, fjóra hesta,
bitra bók, sjö básúnur, og svo
mætti lengi telja. Námskeiðið
„Opinberunarbókin - Spá-
dómar Biblíunnar" mun
hjálpa þér að skilja þessa bók.
I gegnum allt námskeiðið er
Biblían eini grundvöllurinn að
skilningi. Hún er látin túlka
sjálfa sig.
Ef þú hefur einhvern áhuga
á hinu yfirnáttúrulega, eða á
Biblíunni, eða hefur einhvern
á huga á spádómum, þá er
þetta námskeið fyrir þig. Ekki
missa af þessu sérstaka tæki-
færi. Námskeiðið hefst þriðju-
daginn 13. febrúar kl. 20:00 í
safnaðarheimilinu Blikabraut
2, Keflavík. Nánari upplýsing-
ar um þetta námskeið veitir
Steinþór Þórðarson í síma
11857 og undirritaður í síma
14222.
Þröstur B. Steinþórsson
llin nýja stjórn Ægis. Ásgeir Hjálmarsson gjaldkeri, Sigfús Magnússon
formaður, Þorsteinn Jóhannsson varaformaður og (iuðni Asgeirsson ritari.
Ljósm.: hbb.
Aðalfundur Ægis:
Reksturinn
I járnum
Rekstur björgunarsveitar-
innarÆgis í Garði varí járn-
um eftir síðasta ár en sveitin
skilaði tekjuafgangi upp á
41.000 krónur.
Ægismenn tóku upp nýja
fjáröfiunarleið síðasta sum-
ar, er þeir opnuðu veitinga-
rekstur á Garðskaga og stóð
sá rekstur á núlli fyrsta árið,
þrátt fyrir mikinn tilkostnað
í upphafi. Binda Ægismenn
miklar vonir við veitinga-
reksturinn á komandi árum.
Ný stjórn var kjörin á að-
alfundinum og er hún
alfundinum og er hún skipuð
eftirfarandi mönnum: Sigfús
Magnússon formaður, Þor-
steinn Jóhannsson varafor-
maður, Ásgeir Hjálmarsson
gjaldkeri og Guðni Ásgeirs-
son ritari.