Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 1
yfimn
SUNDMIÐSTÖÐIN [ KEFLAVÍK
NJARDVÍK EKKI MEÐ
- Vísa málinu til S.S.S. - „Vonbrigði“, segir Guðfinnur Sigurvinsson
Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Njarðvíkur var sam-
þykkt samhljóða eftirfar-
andi ályktun, eftir miklar
umræður, bæði í bæjarráði
og bæjarstjórn:
„Keflavíkurbær stendur
nú að byggingu glæsilegrar
sundmiðstöðvar sem fyrir-
sjáanlega mun þjóna öllum
Suðurnesjamönnum. Sam-
starf sveitarfélaga á Suður-
nesjum eykst á hverju ári
sem líður og er við hæfi að
hin nýja sundmiðstöð sé
sniðin að samstarfsverkefn-
um allra sveitarfélaganna.
Bæjarstjórn Njarðvíkur
beinir því til bæjarstjórnar
Keflavíkur að málið verði
tekið upp á vettvangi SSS.
Heitir bæjarstjórnin því full-
um stuðningi.“
Á þessu er Ijóst að bæjar-
stjórn Njarðvíkur mun ekki
að svo komnu máli koma inn
í sundmiðstöðina í Kefiavík.
En hvað segir Guðfinnur
Sigurvinsson, bæjarstjóri í
Keflavík, um þá niðurstöðu?
„Þetta eru viss vonbrigði
og því vona ég að Njarðvík-
ingar skoði málið betur.
Þetta er mannvirki sem bæði
byggðarlögin þurfa á að
halda og samskipti beggja
bæjarfélaganna eru orðin
það mikil þegar fólk leitar að
þjónustu á víxl milli þeirra.“
Um það hvort Guðfinnur
teldi SSS vera réttan vett-
vang í þessu máli sagðist
hann telja það fráleitt, þar
sem Grindvíkingar og Sand-
gerðingar hefðu þegar yfir
sundlaug að ráða og Garð-
menn væru með samning um
skólasund í Sandgerði auk
þess sem sundlaug væri í
raun í smíðum í Garði.
MIKID UM
STÖTA VID
STÝRI
Eitt er það afbrot sem
mjög virðist vera að færast í
aukana, a.nt.k. í umdæmi
lögreglunnar í Keflavík. Það
er hvað stútur er oft undir
stýri. Um síðustu helgi voru
fimrn ökumenn teknir grun-
aðir um slíkt.
Það sem af er árinu hafa
alls 31 ökumaður-verið tek-
inn, á einum og hálfunt mán-
uði. Er hér um mjög hátt
hlutfall að ræða miðað við
marga aðra staði hér á landi.
Vonandi er þetta þó ekki fyr-
irboði þess sem konia skal,
þegar bjórinn byrjar að llæða
yfir landið, eins og einn lög-
reglumaður orðaði það við
blaðið.
Utilaugin
opnuð í haust
Á mánudag fóru fram
verklok Húsaness s.f. við að
gera nýju sundmiðstöðina í
Keflavík fokhelda. Hefur
orðið nokkur dráttur á þessu
sökum veðurs.
Að sögn Hafsteins Guð-
mundssonar, formanns
íþróttaráðs Keflavíkur, er
fyrirhugað að halda áfram
við framkvæmdir og er þá
stefnt að því að opna útilaug-
ina á hausti komanda sem
passar vel við 40 ára afmæli
Kefiavikurbæjar.
Þegar rætt er um útilaug er
átt við allt tilheyrandi, s.s.
útilaugina sjálfa, barnalaug,
fjóra potta, búningaklefa
fyrir bæði kynin, anddyri, af-
greiðslu og starfsmannaað-
stöðu. Sagði Hafsteinn að
framkvæmdir á kjallaranum
og innilauginni yrðu settar í
bið.
Mun þessi byggingahraði
vera óháður afstöðu bæjar-
stjórnar Njarðvíkur sem
synjað hefur erindi þessu og
vísað því til SSS. Þó sagði
Hafsteinn að ef þeir hefðu
komið inn í framkvæmdir
þessar hefði frágangur inni-
laugarinnar hugsanlega
komið fljótt á eftir útilaug-
inni.
Ilúsanesmenn Ijúka við að kla'ða þakSundmiðstöðvarinnará mánudag.
Ljósm.: hbh.
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK:
Sameiginleg vatns-
veita samþykkt
Sjö
bflar
iw
I
árekstri
Sjö bílar lentu saman í
tveimur árekstrum á Reykja-
nesbraut, nánar tiltekið á
Strandarheiði. í hádeginu á
miðvikudag í síðustu viku.
Mikið dimmviðri var sökum
snjókomu og sá því ekki út
úr augum er óhöppin'urðu.
Af þessum sökum varð að
loka brautinni fyrirumferð í
tvær klukkustundir. Engin
slys urðu á fólki en bílarnir
skemmdust mikið.'
Bæjaryfirvöld Keflavíkur
og Njarðvíkur hafa samþykkt
félagssamning um Vatnsveitu
Suðurnesja s.f. Er nú aðeins
eftir að ganga frá ýmsum
formsatriðum svo sem skrán-
ingu félagsins og boðun fyrsta
stjórnarfundar. Hefur Kefla-
víkurbær tilnefnt þá Ingólf
Falsson og Guðfinn Sigurvins-
son í bráðabirgðarstjórn en
Njarðvíkurbær þá Ragnar
Halldórsson og Odd Einars-
son.
Mun eitt af fyrstu verkefn-
unum verða það að hafa sam-
band við bæjarstjórn Grinda-
víkur og fá leyfi hennar til að
hefja framkvæmdir og nýta
vatn á melunum ofan við Sel-
tjörn, þar sem Hitaveitan fær
sitt vatn. Síðan verður ráðist í
það að semja við hönnunarað-
ila og láta fara fram útboð á
verkinu. Er stefnt að því að í
haust verði lokið borunum
fyrir vatni og lagningu stofn-
leiðslu að byggðarkjarnanum
Keflavík-Njarðvík.
í félagssamþykktinni eru
ákvæði um að kynna skuli hin-
um sveitarfélögunum máliðog
ef eitthvert þeirra hafi áhuga
fyrir aðild skuli af því verða.
Þá er gert ráð fyrir því að síðar
meir verði farið út í samninga
um sameiningu núverandi
vatnsveita bæjarfélaganna
beggja.
Á þriðja
hundrað
umsóknir
Alls bárust 205 umsóknir
urn störf hjá þeim Hilmari
Sölvasyni og Sigurbirni
Björnssyni, sem taka við
þjónustuhlutverki hjá Flug-
ieiðum í Leifsstöð nú um
mánaðamótin.
Að sögn Sigurbjörns verð-
ur meirihlutinn af þeim sem
störfuðu þarna áður, eða um
50 manns úr þeim hópi, end-
urráðinn. Eru þaðnánast all-
ir sem voru í hlaðdeildinni og
síðan hluti starfsfólks úr
ræstingadeild Hilmars
Sölvasonar og eins úr ræst-
ingadeild Ingva Þorgeirsson-
ar.
Til viðbótar ofantöldum
hópi voru tólf ráðnir til við-
bótar en Sigurbjörn átti síð-
an von á að enn fleiri yrðu
ráðnir í aprílmánuði.