Víkurfréttir - 23.02.1989, Qupperneq 5
Jón Sæmundsson, nýr
formaður Styrktarfélags
aldraðra:
Ýmislegt
spennandi
framundan
Nýr formaður Styrktarfél-
ags aldraðra Suðurnesjum
var kjörinn næstsíðasta
sunnudag, Jón Sæmunds-
son. Styrktarfélag aldraðra
er virkur félagsskapur í mál-
efnum aldraðra hér á Suður-
nesjum og því þótti við hæfi
að ræða örlítið við nýkjörinn
formann um það sem félagið
er að fást við þessa dagana og
það sem framundan er.
„Við hjá Styrktarielagi
aldraðra Suðurnesjum sjá-
um aðallega um tómstunda-
starfsemi fyrir aldrað fóik á
Suðurnesjum. Höfum við til
dæmis verið með keramik-
námskeið, föndur og
kennslu í bókbandi ogmargt
fleira. Félagið stendureinnig
fyrir leikhúsferðum ogferða-
lögum yfir sumartímann.
Eru farnar tvær til þrjár
ferðir innanlands yfir sumar-
tímann og ein utanlandsferð,
ef næg þátttaka fæst. Núna
stefnum við á vikuferð á
Strandir og Vestfirði í endað-
an júní og einnig á vikuferð
að Flúðum í ágústmánuði.
Þá er utanlandsferð á dag-
skránni á haustdögum.“
-Hvað eru margir styrkt-
armeðlimir í félaginu?
„í styrktarfélagi aldraðra
eru á milli 200 og 300 styrkt-
armeðlimir en um 50 féíagar
sem eru virkir í vinnu á veg-
um styrktarfélagsins og öll
sú vinna er unnin endur-
gjaldslaust," sagði Jón Sæm-
undsson að endingu.
Þorrablót félagsins var
síðan haldið síðasta sunnu-
dag og er því gerð betur skil á
öðrum stað í blaðinu í dag.
omRon
BÚÐA-
KASSAR
(sjóðsvélar)
frákr.19.800.-
iiíhök
Hafnargötu 54 - Sími 13066
Fimmtudagur 23. febrúar 1989 5
muMjuw
Ferðakynning
Við kynnum ferðaáætlun Útsýnar fyrir
árið 1989 í félagsheimili ÍBK við Hring-
braut, föstudaginn 24. febrúar. Við bjóð-
um ykkur að koma á milli kl. 16:00-19:00.
Við kynnum viðkomustaði, sýnum
myndbönd og veitum upplýsingar eftir
bestu getu. Einnig verður tekið á móti
pöntunum.
ÍBK-félagar sjá um kaffisölu og Lottó-
vélin verður í gangi allan tímann. - Látið
sjá ykkur.
HELGI HOLM
UMBOÐSSKRIFSTOFA
Hafnargötu 79
Keflavík - Sími 15660
Sturfsmcnn Vi'rkfneðistofu Suð-
urnesju, f.v.: Sigurður Asgrims-
son, lirla Sigurðardóttir, Brynj-
ólfur (iuðmundsson og (íuðmund-
ur Bjdrnsson. Ljósm.: Iibb.
1. flokks restaurant og bar
Meistarasteik
löslu
Laugar-
Innbakaðar nautalundir
Irish coffee ís
Kr. 2.250.-
Opið frá 18-22
Hraðflugsmatseðill
í hádeginu
Tómatsúpa
og
Saltfiskur Aióli
eða
Oststeikt grísasneið
CARBONARA
og
Kaffi/Te
750 kr.
Spönsk eggjakaka 450 kr.
Heilsusalat 450 kr.
„Mikill munur á vinnuaóstööu"
- segir Guðmundur Björnsson hjá Verkfræðistofu Suðurnesja
DTSYN
Verkfræðistofa Suður-
nesja fiutti um síðustu ára-
mót starfsemi sína frá Hafn-
argötu 32 í Keflavík upp á
aðra hæð í húsi Brunabótar.
Víkurfréttir litu inn í nýja
húsnæðið hjá Verkfræðistofu
Suðurnesja í vikunni og tóku
þar tali Guðmund Björns-
son, einn eigenda stofunnar.
Sagði Guðmundur að hús-
næðið undir stofuna hafi ver-
ið keypt af Brunabót á síð-
asta ári og var strax farið í að
innrétta það og síðan flutt
inn um síðustu áramót.
-Er þetta mikil breyting á
húsakosti fyrirtækisins?
„Hér er um helmings-
stækkun á húsakosti að ræða
en þetta pláss sem við höfum
hér er um 160 fermetrar og
hér er mikill munur á vinnu-
aðstöðu."
-Nú er Verkfræðistofa
Suðurnesja orðin rótgróið
fyrirtæki hér á Suðurnesjum,
er 9 ára um þessar mundir.
Hvað eruð þið aðailega að
„Við erum í hönnunar-
vinnu ýmiskonar og þá sjá-
um við einnig um eftiriits-
störf á framkvæmdastað.
Stærslu verkefnin hjá okkur
um þessar mundir eru
svæðisskipulag fyrir Suður-
ens og hönnunarvinna fyrir
D-álmu sjúkrahússins.
Hjá Verkfræðistofu
Suðurnesja starfa fjórir í
fullu starfi og einn í hluta-
starfi. Breytt símanúmer er
hjá fyrirtækinu, 15035.
• ARSHATIÐ
• AFMÆLI
•AÐALFUNDUR
•BRÚÐKAUP
• KYNNINGAR
Gerum tilboð
Þar sem vinir og
kunningjar hittast
Hafnargötu 57, Keflavík,
Sími 15222