Víkurfréttir - 23.02.1989, Síða 6
VIIKUK
6 Fimmtudagur 23. febrúar 1989
SALA OG ÞJÓNUSTA
Sölu- og þjónustumaður frá DNG
verður staddur í Keflavík, mánu-
daginn 27. febrúar kl. 14-17
í RAFIÐN.
Kl. 20-22 býður DNG sjómönnum
á Suðurnesjum í kaffi
á Hótel Kristínu.
ALLIR VELKOMNIR
Háseti
Háseta vantar á 15 tonna netabát,
sem rær frá Suðurnesjum. Uppl. í
síma 37558.
Stýrimann, matsvein og háseta
vantar á m/b Akurey KE 121, sem er að
hefja netaveiðar. Upplýsingar um borð í
bátnum sem liggur í Njarðvíkurhöfn og í
síma 91-41278 á kvöldin.
Iðnaðarhúsnæði
til leigu
Til leigu 170 fermetra iðnaðarhúsnæði við
Iðavelli. Upplýsingar gefur Páll í síma 91-
54355 á daginn og 91-52047 á kvöldin, og
Gestur í síma 13537.
Þ.J.-KVINTETTINN
sem undanfarnar helgar hefur troðið upp á F'lug I lóteli, og er skip-
uð ungu tónlistarfólki úr Keflavík og Njarðvík. Kvintettinn skipa
f.v.: Helgi Víkingsson, Magnea Rán Guðlaugsdóttir, Þröstur Jó-
hannesson, Helga AndrésdóttirogSverrirÁsmundsson. Ljósm.:pkei.
Hluti Léttsveitar l'ónlistarskólans á ænngu nýverið. Ljósm.: pkci.
Tónlistarskólinn í Keflavík:
Létt sveifla í Félags-
bíói n.k. laugardag
Tvær léttsveitir (big
Á laugardaginn kemur, þ.
25. febrúar, verða tónleikar
haldnir í Félagsbíói kl. 17.00
og munu þar koma fram 2 létt-
sveitir eða „Big bands“ eins og
slíkar hljómsveitir heita á
ensku. Hljómsveitirnar koma
frá tónlistarskólunum í Kefla-
vík og á Akranesi og á efnis-
skrá eru fjölmörg þekkt lög,
sem flokkast undir dægur- og
jasstónlist.
Gestirnir frá Akranesi hafa
leikið saman í tæp 2 ár og er
hljómsveitin að mestu leyti
skipuð tónlistarnemendum og
kennurum af Vesturlandi.
Stjórnandi er Mike Jaques,
enskur tónlistarkennari, sem
nú starfar í Olafsvík.
bands) koma fram
Léttsveit Tónlistarskólans í
Keflavík var stofnuð í haust og
hefur því aðeins leikið saman í
nokkra mánuði. Hún kom
fyrst fram á jólatónleikum
skólans í Keflavíkurkirkju í
desember síðastliðnum og ný-
lega kom hún fram í sjón-
varpsþættinum „Á tali hjá
Hemma Gunn“. Hljómsveitin
hefur þegar skipað sér sess í
bæjarlífinu og mun hún leika
við ýmis tækifæri nú með vor-
inu. Stjórnandi er Karen Stur-
laugsson, kennari við Tónlist-
arskólann í Keflavík.
Tónleikarnir hefjast eins og
áður segir kl. 17.00 og verða
aðgöngumiðar seldir við inn-
ganginn á kr. 300.
Karen Sturlnugsson, kennari við Tónlistarskólann í Keflavík, stjórnar Létt-
sveitinni. ______________ Ljósm.: pket.
Ný hljómsveit:
Þ.J.-kvintettinn
Þ.J. kvintett er nafn á
nýrri hljómsveit, sem skipuð
er ungu tónlistarfólki úr
Keflavík og Njarðvík.
Hljómsveitin hefur undan-
farnar helgar troðið upp í
Flug Hóteli við góðar undir-
tektir.
Forsprakki sveitarinnar er
Þröstur Jóhannesson sem
var einn af höfuðpaurum
OFRIS og sagði hann í sam-
tali við blaðið að Þ.J. kvint-
ettinn væri nokkurs konar
afsprengi úr Ofris. I nýju
sveitinni eru auk Þrastar,
sem sjálfur syngur og leikur
á gítar, Magnea Rán Guð-
laugsdóttir, saxafónn, Helga
Andrésdóttir, fiðla, Helgi
Víkingsson, trommur,
Sverrir Ásmundsson,
kontrabassi og Davíð Olafs-
son sem leikur á trompet.
Þ.J. kvintettinn leggur
áherslu á flutning eigin laga
en grípur þó í önnur vinsæl
lög. „Þetta er svona blúsuð
stemning í rólegri kantinum,
notaleg ti! hlustunar yfir
bjórglasi,“ sagði Þröstur en
vildi þó ekki beint segja að
sveitin væri „markaðssett"
fyrir komandi bjórstofur á
svæðinu.
jUUU 1
Fatafella
á herra-
kvöldi
Handknattleiksráð Kefla-
víkur mun standa fyrir
hcrrakvöldi á Glóðinni
föstudagskvöldið 24. febrú-
ar n.k. og hefst það kl. 19:30.
Þetta kvöld ætla að koma
sannir, eldri og yngri hand-
knattleiksmenn úr Keflavík
ásamt góðuni vinum og
skemmta sér eina kvöld-
stund } góðum félagsskap.
Ýmsir góðir gestir verða
þetta kvöld og til að ntynda
kemur frá Danmörku dönsk
fatafella og sýnir listir sínar.
Borðhald hefst kl. 19:30 og
lýkur herrakvöldinu fornt-
lega kl. 23:30, en þá hefst al-
mennur dansleikur sem
stendur til 03:00.
Þeir sem hafa áhuga á því
að mæta hafi samband við
Malla í síma 15258 eða
Ragnar í síma 12600. Miða-
verð á herrakvöldið er 2000
krónur.
Fyrsta söluferð Aðalvíkur:
40 tonn
fóru í
gúanó
Um Qörutíu tonn af afla
togarans Aðalvíkur voru ekki
söluhæf á ntarkaði í Þýska-
landi á dögunum. Fór þessi
afli þvi i gúanó.
Að sögn Ingólfs Falssonar,
framkvæmdastjóra Hrað-
frystihúss Keflavíkur, er
ástæðan sú að þar sem togar-
inn er kæliskip hafi komið
þarna upp byrjunarörðugleik-
ar sem algengir eru á slíkum
skipum.
Hefði því orðið of mikil
kæling í lestinni með þeini af-
leiðingum að ísinn bráðnaði
ekki og því fór svona í þetta
skiptið. Er vitað um að slíkir
erfiðleikar hafi koinið upp á
ýmsum öðrum kæliskipum er
nýjar áhafnir koma um borð.
Sigurborg
KE seld
til Eyja
Útgerðarfyrirtækið Sigur-
borg hf. í Keflavík hefur selt
Sigurborgu KE til Vest-
mannaeyja, að sögn eins eig-
enda Sigurborgar hf„ Ingi-
mundar Sigfússonar.
Er það Sæhamar hf. í Vest-
mannaeyjum, sem fimm út-
gerðir í Eyjum standa að,
sem kaupir skipið, en það
mælist rúmlega 200 tonn.
Sigurborg hf. seldi einnig
nú á dögunum Hvalsnesið,
til Brynjólfs í Njarðvík, en
áfram munu þeir eiga hinn
fræga snurvoðarbát Baldur.
Mun áhöfn Sigurborgar
KE verða áfram á skipinu,
a.m.k. um stundarsakir,
undir skipstjórn Ómars Ein-
arssonar.