Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.1989, Side 12

Víkurfréttir - 23.02.1989, Side 12
12 Fimmtudagur 23. febrúar 1989 TIL SÖLU MITSUBISHI SAPPARO ÁRG. ’88, ekinn 6700 km. Verð kr. 1350 þús. Skipti möguleg á nýlegum ódýrari bíl. MITSUBISHI Upplýs. gefur Benni í síma 985-25360 á daginn og 92-27271 á kvöldin. Ráðstefna haldin á Flug Hóteli, Keflavík, laugard. 25.02. 1989 Keflavíkurflugvöllur í alþjóðaleið! Gefur það möguleika til atvinnuuppbyggingar? D A G S K R Á 1. 13.30 Avarp. Guðjón Guðinundsson frkvstj. SSS. 2. 13.40 Efnahagsbandalagið. Hver verður staðan gagnvart Evrópubandalaginu í framtíðinni? Olafur Davíðsson frkvstj. Félags ísl. iðnrekenda. 3. 13.55 Fríiðnaðarsvæði. Gerð grein tyrir útkominni skýrslu um fríiðnaðarsvæði. Björn Olafsson hagfr. Byggðastofnun. 4. 14.10 Stefna stjórnvalda varðandi þátttöku erlendra aðila í atvinnulífinu. Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra. 5. 14.25 Er þörf á samstarfi sveitarfélaga hvað varðar atvinnuuppbygg. á flugvallarsvæðinu? Guðfinnur Sigurvinsson bæjarstjóri í Keflavík. 6. 14.40 Hlé - veitingar. 7. 15.05 Þróun í flutningatækni. Fulltrúi frá Samson transport DK. 8. 15.20 Útflutningur til Asíu. Nauðsynlegar markaðs- aðgerðir. Ingjaldur Hannibalsson frkvstj. útflutningsráðs. 9. 15.35 Fiskútflutningur frá Keflavíkurflugvelli. Magnús Magnússon sölustj. SH. 10. 16.50 Panelumræður. Fyrir svörum sitja: Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, Björn Theodórsson Flugleiðum, Hallgrímur Jónasson Flugfax, Karl Steinar Guðnason alþingismaður, Magnús Magnússon Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna, Olafur Davíðsson Félagi ísl. iðnrekenda, Ingjaldur Hannibalsson útflutningsráði, Jóhann Einvarðsson alþingis- maður. 11. 17.30 Ráðstefnulok. Káðstefnustjóri verður Jón Egill Unndórsson. Þátttökugjald er kr. 500. \4tiUit Fylgst með tímanum Þegar allt var orðið klárt til þess að draga Eyrúmi AR áflot frá Keflavíkurslipp íblíðviðrinu síðasta föstudag og ekkert vantaði nema flóðið, þá var lítið annað hægt að gera en að slappa af Hann Ingimundur Guðnason hjá Brunavörnum Suðurnesja var með dæluna tilbúna um borð í Ey- rúnu, ef eitthvað skyldi út af bera, en hún var tilbúin á sínum stað ogþvíekki annað að gera en aðfylgj- ast með tímanum... Ljósm.: hbb Kvörtunarbréf úr Kvíguvogum Margir íbúar í Vatnsleysu- strandarhreppi hafa að und- anförnu sett sig í samband við gub. og kvartað undan ýmsu sem þeim þykir að- finnsluvert. Slakur snjómokstur Mörgum Vogamönnum þykir snjómokstur í byggð- arlaginu hafa verið heldur slakur svo vægt sé til orða tekið. Þykir mönnum of lítið hafa verið mokað og með ómögulegu tæki. En það hef- ur verið verktakafyrirtækið Lyngholt s/f sem hefur mok- að göturnar. Ekki er þó við fyrirtækið að sakast því að sjálfsögðu stjórna ráðamenn hreppsins mokstrinum. ...og síma- og rafmagnsmál Ekki fækkar þeim sem kvarta undan símamálum í hreppnum. Bæði er djöful- legt að hringja úr hreppnum og annarstaðar frá í hrepp- inn. Af öllum þessum raf- magnsleysis-sveitarfélögum, sem hér eru á Suðurnesjum, er þó eitt sínu rafmagnslaus- ast og er það hér í Vatns- leysustrandarhreppi og hafa rafmagnsmál hér ekki verið með verra móti frá því raf- magnssögur hófust. Kenna raffróðir menn um laxeldisstöð Lindarlax við Vatnsleysu og segja að hún sjúgi til sín orku all freklega og nauðgi því dapra rafkerfi sem fyrir er í sveitinni. Bifreiðastraumur Gamlir Strandaringar glottu í kampinn dag einn í síðustu viku þegar upphófst mikill bifreiðastraumur um gamla Keflavíkurveginn sem liggur um byggðina á Vatns- Ieysuströnd. Þetta var þann dag sem áttabílaáreksturinn átti sér stað í kófinu uppá Reykjanesbraut. Astæðan fyrir fyrrnefndu glotti var sú að þegar Reykjanesbrautin var lögð hér í „den“ þá bentu spakir menn, sem bjuggu niður á Strönd, á þá staðreynd að þarna uppi í heiðinni væru veðravíti og andskotans snjóakistur. Verkfræðilærðir blýants- nagarar og ólærðir, misvitrir pólitíkusar tóku ekki mark á kotbændum og grásleppu- körlum af henni Vatnsleysu- strönd og færðu veginn frá byggðinni og uppí heiði. Daginn sem áttabíla- áreksturinn varð, var mikill skafrenningur á Reykjanes- brautinni en niðrá Strönd var orðið snjólaust af lausa- mjöll í norðangarranum fyrir löngu og komið logn um miðjan dag svo ekki bærðist hár á hundsrassi. gub. Aðalfundur Norræna félagsins Keflavíkurdeild Norræna félagssins heldur aðalfund sinn laugardaginn 25. febrúar n.k. í Fiug Hóteli kl. 14:00. Á dagskrá verða venjuleg aðal- fundarstörf. Auk þess mun Jónína Guðmundsdóttir, kennari, skýra frá reynslu sinni af kennaraskiptum milli Norðurlandanna, en hún tók þátt í slíkri kennaraviku í Hjörring í Danmörku í októ- ber s.l. Talsverð starfsemi hefur verið hjá Norræna félaginu undanfarin ár og má þar t.d. nefna vinabæjamót hér í Keflavík á s.l. sumri. Vinabæ- ir Keflavíkur á hinunt Norður- löndunum eru Hjörring í Dan- mörku, Kerava i Finnlandi, Kristiansand í Noregi og Trollháttan í Svíþjóð. Þá hefur félagið einnig tekið virkan þátt í NORDJOBB. Á milli 10 og 20 ungmenni úr Keflavík og Njarðvík hafa farið i sumar- vinnu á hinum Norðurlöndun- um á vegum NORDJOBB og álíka margir komið hingað. Norræna félagið hefur séð um að útvega þessu unga fólki at- vinnu og húsnæði. Norræna félagið í Keflavík spannar öll Suðurnes að Grindavík undanskilinpi og telur yfir 230 félaga. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn, svo og aðrir sem áhuga hafa á Norrænni samvinnu. Stjórnin

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.