Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.1989, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 23.02.1989, Qupperneq 15
\IÍKUK 4*aa* Fjölmenni var á fundinum með heilbrigðisráðherra. Lionsklúbbur Sandgerðis: Heilbrigðisráðherra í heimsókn A fund Lionsmanna í Sand- gerði bar góðan gest að garði er Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, kom í heim- sókn. Flutti Guðmundurmjög greinargott erindi um heil- brigðis- og tryggingamál, auk þess að fara í gegnum fjárlög ráðuneyta sinna. Erindi Guð- mundar var mjög áhugavert og spunnust af því góðar og málefnalegar umræður er stóðu fram eftir kvöldi. I fundarlok færði Jónas Gests- son, formaður Lionsklúbbs Sandgerðis, Guðmundi fána klúbbsins og þakkaði honum fyrir komuna. Formaður Lionsklúbbs Sandgerðis, Jónas Gestsson, aflienti Guðmundi Bjarnasyni fána klúbbsins i þakklætisskyni. Börnin og við: Andlegar breytingar tengdar meðgöngu og fæðingu Markmið okkar hjá félaginu Börtiin og við er fyrst og fremst áhugafélag um brjóstagjöf og að veita aðstoð þeim foreldr- um er þess óska. Einnig hefur áhugi okkar á barninu og upp- eldi þess stór ítök í okkur og höfum við fengið til liðs við okkur ýmsa fyrirlesara til að gefa okkur góð ráð og auka þekkingu okkar á þessum mál- um. Hefur þetta mælst vel fyrir og áhugi fólks verið mikill. Við fengum fyrir jólin Önnu Helgadóttur, kvensjúkdóma- lækni, og fjallaði hún um fóst- urlát. Var rabbað yfir kaffi og kökum og svaraði hún spurn- ingum gestanna. Var þetta mjög áhugaverður fundur og fór maður heim margs vísari. I desember fengum við Inga Gunnlaugsson tannlækni til að minna okkur á að bursta tennurnar í börnunum og fjall- aði hann almennt um tann- hirðu barna og sykurneyslu. Á mánudaginn ætlar Sól- veig Þórðardóttir Ijósmóðir að koma og fjalla um andlegar breytingar foreldra tengt með- göngu og fæðingu og mun hún koma inn á þátt beggja for- eldranna í þessu mikilvæga hlutverki. Hvetjum við alla til að koma og hlusta á skemmti- legt umræðuefni og fá sér kaffi og kökur. Fundurinn hefst kl. 9:00 í Myllubakkaskóla. Vilj- um við svo að endingu minna á mánaðarlegu rabbfundina fyrsta mánudag í hverjum mánuði i anddyri heilsugæslu- stöðvarinnar (í Keflavík) og munum við taka upp létt rabb um eitthvað ákveðið málefni. Stjórnin Fimmtudagur 23. febrúar 1989 15 Helgi Eiríksson, Hjálmar Árnason og Ásgerður Búadóttir við listaverkið Geisladagar. Ljósm.: hbb Geisladagar í Fjölbraut Nýtt vefnaðarlistaverk, Geisladagar, eftir Ásgerði Búadóttur var formlega af- hent Fjölbrautaskóla Suður- nesja á mánudaginn að við- stöddum listamanninum, skólameistara, kennurum og nemendum FS. Helgi Eiríksson, sem á sæti í listskreytinganefnd kennara Fjölbrautaskólans, lýsti forsögu þess að ákveðið var að kaupa listaverkið og listamaðurinn Ásgerður Búadóttir lýsti verkinu, sem er úr íslenskri ull. Þá tók skólameistari, Hjálmar Árnason, formlega á móti verkinu, sem er kostað af Listskreytingasjóð ríkisins. Næturvörður Flug Hótel óskar að ráða nætur- vörð. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð liggja frammi á staðnum. A I R P o R T Hafnargötu 57 Keflavík Iðnaðarmenn athugið TIL SÖLU Loftpressa 300 L.Universale 300-40 v.l.Fasa 70 m slanga, plötu byssa, sprautu- kanna. Hjólsög 1040 V. Fræsari 400 V. Bandfræsari (pússari) Höggborvél stór. Stingsög 400V. Einnig til sölu á sama stað stjörnukíkir með fylgihlutum sem gefur möguleika að nota myndavél til að taka myndir í gegnum hann. Upplýsingar í síma 14823 eftir kl. 18.00. Bíleigendur athugið ALTERNATORAR STARTARAR ÞOKULJÓS OG MARGT FLEIRA I BILINN RAFBUÐ R.O. Hafnargötu 52 - Sími 13337

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.