Víkurfréttir - 23.02.1989, Síða 18
\)iKun
18 Fimmtudagur 23. febrúar 1989
| ftitiU
B-lið
UIVBFN
tapaði
Draumur margra Njarðvík-
inga um að tvö lið þeirra yrðu í
úrslitum bikarkeppni KKI ræt-
ist að öllum líkindum ekki.
UMFN tapaði fyrir ÍR í 4ra liða
úrslitum í Njarðvík sl. mánudag,
71:87. Seinni leikur liðanna
verður í kvöld í Seljaskóla. A
sama tíma leika lið KR og
UMFN-A í Njarðvik sinn seinni
leik.
Stjörnuleikurinn í
Keflavík á sunnudag
Stjörnuleikurinn í körfu-
bolta, sem vera átti fyrir tæp-
um tveimur vikum, verður á
sunnudag í íþróttahúsi
Keflavíkur og hefst kl. 19.15.
Njarðvík-
ingar að
slaka á?
Njarðvíkingar máttu þola
tap fyrir Valsmönnum á
Hlíðarenda í Flugleiðadeild-
inni á sunnudagskvöldið,
75:90, og voru einnig undir í
leikhléi, 40:47.
Það var fyrrum Keflvík-
ingur í liði Vals, Hreinn Þor-
kelsson, sem varprímusmót-
or Valsmanna. Hreinn skor-
aði 31 stig og var óstöðvandi.
Hittni Njarðvíkinga var með
eindæmum léleg að þessu
sinni og var helsti orsaka-
valdurinn að þessu stóra
tapi. Stigahæstur Njarðvík-
inga var Helgi Rafnsson með
18 stig.
Mile þjálfar UMFN
MILE, hinn júgóslavneski
íþrótlakennari og knattspyrnu-
þjálfari, hefur tekið við þjálfun
Njarðvíkurliðsins í knattspyrnu
sem féll i 4. deild í fyrra. M ile hef-
ur scm kunnugt er þjálfað UMFN
þrívegis áður með ágætum ár-
angri.
Firmakeppni ÍBK
Það verður mikið sparkað og
hlaupið i íþróttahúsi Keflavíkur
um helgina en þá fer fram firma-
keppni knattspyrnuráðs. Leikið
verður eftir nýju reglunum, með
Ijóra útileikmenn og markvörð.
Hvert lið má síðan nota 3 vara-
mcnn.
Góð frammistaða
ÍBK og UMFG
1. deildarlið ÍBKog 3. deildar-
lið UMFG stóðu sig vel á íslands-
mótinu í innanhússknattspyrnu.
Bæði liðin komust i 8 liða úrslit en
þá tapaði ÍBK fyrir Þrótti, 2:3,
eftir framlengingu og UMFG
fyrir Fylki, 2:3, þar sem úrslitin
réðust ekki fyrr en á síðustu sek-
úndum framlcngingar.
í undanrásum sigruðu Keflvík-
ingar m.a. Framara, sem skört-
uðu Ragnari Margeirssyni og
Grindvíkingar gerðu jafntefli við
Fram og sigruðu ÍBK siðan 1:0.
Flugleiðadeildin í körfu:
Stórleikur Axels
og Sigurðar
„Haukarnir áttu ekkert
svar við góðri vörn hjá okk-
ur. Annað sem tókst mjög
vel var skorun inní teig, þar
sem Siggi og Axel voru í
miklum ham,“ sagði Jón Kr.
Gíslason, þjálfari og leik-
maður ÍBK, eftir góðan sig-
ur liðsins á Haukum í Kella-
vík á sunnudagskvöldið,
97:86. í hálfleik var ÍBK yfir,
54:44.
Já, endurkoma Axels hef-
ur virkað vel á Keflvíkinga.
Hann skoraði 26 stig og
sýndi garnla, góða takta í
sókninni. Sigurður Ingi-
mundarson var einnig
óstöðvandi, skoraði alls 31
stig og átti einn sinn besta
leik í vetur. Ásamt þeim
tveimur var Guðjón Skúla-
son atkvæðamikill og eins
Jón Kr., þó hann hafi ekki
skorað rnikið, en hann lagði
áhcrslu á að mata lelaga sína
inní teig.
Leikurinn var aldrei veru-
lega spennandi, Keflvíking-
ar voru cinfaldlega sterkari.
Síðustu leikir Hauka eru
skylduverk, þvi þeir eiga
enga möguleika á að komast
í úrslitakeppnina.
A\el er komimi al'tur og munar um minna hjá IBK, enda grimmdin og
haráttan í fyrirrúmi hjá jöxlunum einsogsjá má hér, þarsemhanniiskr-
ar á I lelga Rafnsson.
Knattborðsstofa
Suðurnesja
í rífandi gangi
I síðasta tölublaði var sagt
frá lokun Knattborðsstofu
Keflavíkur, samkvæmt til-
kynningu í Lögbirtingablað-
inu. Nokkurs misskilnings
virðist hafa gætt hjá mörgum
urn að Knattborðsstofa Suð-
urnesja, sem staðsett er við
Grófina 8 í Keflavík, væri
hætt starfsemi, en svo er
langt í frá að vera. Málið er
að fyrir þremur árum voru
tveir eigendur að Knatt-
borðsstofu Keflavíkur og
annar þeirra var Börkur
Birgisson, sem síðar stofnaði
einn Knattborðsstofu Suður-
nesja, og lagði um leið fyrr-
nefnda nafnið niður.
Kvennakarfa:
Naumur sigur ÍBK á UMFN
Litlu munaði að Njarðvík-
ingum tækist að stela sigrin-
um frá nágrönnum sínum úr
Keflavík, er liðin áttust við í
1. deild kvenna á sunnudags-
kvöldið í Keflavík. Lokatöl-
ur urðu 49:47 fyrir ÍBK.
Keflavíkurstúlkurnar
byrjuðu vel, komust í 8:0 og
höfðu 31:20 yfir í leikhléi.
Þegar staðan var 42:30 í byrj-
un síðari hálfleiks meiddist
styrkasta stoð Keflavíkur-
liðsins, Anna María Sveins-
dóttir, og þurfti að fara af
leikvelli. Njarðvíkurstúlk-
urnar notfærðu sér þetta,
minnkuðu muninn óðfluga
og skoruðu 17 stig á móti 7 á
lokakaflanum en nær kom-
ust þær ekki. IBK hékk á
sigrinum og þarf því aðeins
sigur í tveimur leikjum í við-
bót til að tryggja sér Islands-
meistaratitilinn annað árið í
röð.
Margrét Sturlaugsdóttir ÍBK. skor-
aði 11 stig gegn UMFN.
Björg Hafsteinsdóttir og
Margrét Sturlaugsdóttir
voru atkvæðamestar Kefl-
víkinga með 13 og 11 stigog
þær Helga Friðriksdóttir og
Harpa Magnúsdóttir með 15
og 13 stig.
UMFN með annan fótinn
í bikarúrslitin
Njarðvíkingar sigruðu KR
í fyrri leik liðanna í 4ra liða
úrslitum bikarkeppni KKÍ á
þriðjudagskvöldið í Selja-
skóla, 93:70, eftir að hafa
verið undir í leikhlé 42:44. í
síðari hállleik fóru bikar-
meistararnir i gang með
Kristin Einarsson í l'arar-
broddi sem besta mann og
hreinlega ylirspiluðu KR-
inga.
Njarðvík mætir KR í
íþróttahúsi Njarðvíkur í
kvöld.
Það var sko allt í lagi hjá Kristni
Finars gegn KR, enda skoraði liann
23 stig.
ÍBK þarf einn leik
ÍBK þarf aðeins einn sigur
í viðbót til að tryggja sérelsta
sætið í B-riðli Flugleiðadeild-
arinnar, eftir sigur á Tinda-
stóli á Sauðárkróki sl. þriðju-
dag, 96:83. Keflvíkingar
virðast vera komnir á skrið
Gunnar
Sigurður
Hver fer á Wembley með
Samvinnuferðum-Landsýn?
Yfirreddarinn hjá Útgcrðar-
félaginu F.ldey hf.. Gunnat
Magnússon, gerði sér lítið fvrir
og sló skólastjóra Tónlistarskól-
ans i Njarðvik út úr keppninni er
hann lékk 6 rétta á meðan Har-
aldur Árni Haraldsson fékk að-
eins 4 rétta. Skólastjórinn náði
cngu að síður ágætum árangri,
var inni í 3skiptiogcrí 2.-3. sæti
hvað það varðar, ásamt Jóni
Halldórssyni, setn einnig náði
þreniur skiptum. Þeir tveir eru
liklegir í 4ra manna úrsiitin
ásamt topp-tipparanum Júlíusi
Baldvinssyni úr Garðinum, sem
náái 7 skiptum og verður seint
slegið. Siðan koma nokkrir með
2 skipti.
Úrslitakcppnin hefst þegarfer
að draga að lokum keppnistíma-
bilsins og varir í u.þ.b. 4 vikur.
Verðlaunin scm Cetraimaspek-
ingur Víkurfrélta /9SPhlýtureru
helgarferð til London á bikaVúr-
slitaleikinn á Wembley í maí
sem ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn gefur, svo til
mikils er að vinna.
En áfram meðsmjörið. Gunn-
ar hefur skorað á bróður sinn,
Sigurð, Magnússon, smið og
fyrrverandi knattspymumann i
Víði. Sigurður cr, eins og Gunn-
ar, mikill Liverpoolaðdáandiog
var „viss" þegarviðfengum röð-
ina hjá hotium. „Þetta verða
léttir 12 réttir,- allavega nálægt
því“ sagði Sigurður.
G. S.
Aston Villa-Charlton X 1
Derby-Everton 2 X
Millwall-Coventry 2 1
Norwich-Man.Utd. X X
Southampton-Tottenham 2 2
Wimbledon-Sheff.Wcd. X 1
Bournemouth-Portsmouth 2 1
Barnsley-Blackburn 2 X
Brighton-Watford 1 2
Oxford-lpswich X 1
Stoke-Leicester 1 1
Sunderland-Hull 1 1
eftir þjálfaraáfallið lyrir
skömmu. Guðjón Skúlason
var yfirburðamaður í liðinu
og skoraði 38 stig, þjálfar-
inn, Jón Kr., kom næstur
með 22 stig.
Létt hjá
Grindvíkingum
Grindvíkingar áttu ekki í
erfiðleikum með að afgreiða
Stúdenta í Flugleiðadeild-
inni, er liðin áttust við í
Grindavík á sunnudag.
Heimamenn skoruðu 83 stig
gegn 56 og voru yfir í leik-
hléi, 38:26. Það var aldrei
spurning hvoru megin sigur-
inn lenti. Yfirburðir Grind-
víkinga voru miklir.
Stigahæstir: Guðmundur
Bragason 20, Steinþór
Helgason 12ogRúnarÁrna-
son 11.
Úrslitaleikur
við Val
Það er ljóst að Grindvíkingar
og Valsmenn munu heyja úr-
slitaleik um 2. sætið í A-riðlinum
í Flugleiðadeildinni þann 5.
mars n.k. Seinni leikur liðanna í
riðlinum er dagsettur þá en liðin
eiga tvo leiki óleikna og ljóst að
úrslitin ráðast í þessari síðustu
viðureign.