Víkurfréttir - 01.06.1989, Qupperneq 1
yfíKUR
KEFLAVÍKURHÖFN:
Alvarleg skemmd
á hafnargarðinum
22. tbL 10. árg. Fimmtudagur 1. júní 19P9
Mjög alvarlegar skemmd-
ir eru á hafnargarðinum í
Keflavík. Að sögn Péturs Jó-
hannssonar, hafnarstjóra
Landshafnar Keflavíkur-
Njarðvíkur, eru liðið áfjórða
ár síðan fyrst varð vart við
skemmdirnar. Koma þær
best fram á dekki hafnar-
garðsins, sem hefur sigið all
mikið á smá kafla. Fyrir
nokkrum árum var komið
mikið sig á þessum kafla og
þá var malbik fyllt í holuna
en nú er það komið aftur í
sama horf.
Sagði Pétur að ástæðan
fyrir sigi þessu væri að gat
væri komið á garðinn sjálfan
á samskeytum, með þeim af-
leiðingum að fyllingarefni
hefur lekið út. Eins virðist
brimið eiga auðvelda leið í
gegnum garðinn á umrædd-
um kafla.
Er nú svo komið að mjög
brýnt er að gert verði við
garðinn og síðan að grjótfyll-
ing verði sett utan á hafnar-
garðinn til að verja hann til
frambúðar. Að sögn Péturs
hafa ýmsir ráðamenn skoðað
skemmdirnar, en þó væri
ekki séð fram á að fjármunir
fengjust í bráð til að endur-
nýja og laga umræddan kafla
í hafnargarðinum. Verði
ekkert gert í bráð gæti notk-
un á þeim hluta hafnargarðs-
ins, sem stór skip nota, orðið
vandkvæðum bundin.
BLÁA LÓNIB:
Stórbættar var-
úðarráðstafanir?
í kjölfar slyss, sem varð í
Bláa lóninu síðasta laugar-
dag, verða gerðar miklar var-
úðarráðstafanir, að sögn
Guðmundar Guðbjörnsson-
ar, eins forráðamanna bað-
hússins. Sagði haún slys
þetta einstætt, en leiddi þótil
þess að menn tækju nú á mál-
um.
Umrætt slys varð með
þeim hætti að 10 ára gömul
stúlka úr Reykjavík hlaut 2.
stigs bruna á bringunni er
hún féll af vindsæng nálægt
öryggisnetinu. En sökum
þess að stúlkan var á vind-
sænginni varð hún þess ekki
vör að mjög heitur straumur
var á þeim stað sem hún var
á. Hafði annað fólk, sem var
í lóninu á umræddum tíma, -
forðast hitastraum þennan.
Sagði Guðmundur að síð-
an baðhúsið kom til sögunn-
ar hefðu um 80 þúsund
manns komið í lónið. Fyrir
utan þau dauðsföll sem orðið
hefðu og vart mætti rekja til
lónsins, væri slys sent þetta
nýtt fyrir þeim. Engu að síð-
ur yrðu rnenn nú að taka hart
á málum til að koma í veg
fyrir að slíkt gæti endurtekið
sig.
Hefðbundin
hátíðarhöld
á sjómanna-
daginn
Dagskrá sjómannadags-
ins verður með hefðbundn-
um hætti á Suðurnesjum. Er
víða í blaðinu greint frá því
hvernig hátíðarhöldin fara
fram á hverjum staðfyrir sig,
auk þess sem á síðu 6 er aug-
lýsing varðandi sjómanna-
daginn í Keflavík.
Helsta nýjungin varðandi
hátíðarhöldin í Keflavík er
aukinn þáttur björgunarat-
riða. Þá mun einnig koma
nýr liður, sem er knattspyrna
milli 6. fíokks ÍBK og feðra
piltanna.
GÁRURNAR SKOÐAÐAR
Þessi ungi sveinn tók því rólega um borð í Baldri frá Keflavík og fylgdist með sólinni speglast í gár-
unum á sjónum. Hvað drengurinn var að hugsa vitum við ekki, en myndin var tekin nýlega í Sand-
gerðishöfn. Ljósm.: hbb.
170 milljónir
til Suðurnesja
Byggðastofnun veitti 170
milljónum króna til fram-
kvxmda á Suðurnesjum á síð-
asta ári. Rúmlega 100 milljónir
fórú til fimm byggðarlaga hér á
Suðurnesjum til ýmissa verk-
efna og rúmlega 50 milijónir í
lán til að auka verkefni inn-
lendra skipasmíðastöðva. Þá
veitti stofnunin 18 milljónum til
kaupa á R.A. Péturssyni hf. í
Njarðvík.
Meðal stærstu verkefna, sem
Byggðastofnun veitir fjármagni
til, er Eldey hf., 15 milljónir til
kaupa á fiskiskipum, Utgerðar-
félagið Jarl hf. vegna raðsmíða-
skipsins Jarls KE, 11 milljónir,
og 10 milljónir króna til Drátt-
arbrautar Keflavíkur til endur-
byggingar á upptökuaðstöðu og
raflögnum. Þá var Birgi Her-
mannssyni, Reykjavík, veitt 18
milljón króna lán til kaupa á
R.A. Péturssyni hf. af Byggða-
stofnun, eins og áður kemur
fram.
Útgerðarfélagið Njörður hf.
fékk rúmlega 15 milljór 'rkróna
til nýsmíði og var jafnframt
hæst þeirra aðila sem fengu lán
til aukningar verkefna í inn-
lendum skipasmíðas.öðvum.
Vegna gjaldþrotaúrskurða
keypti Byggðastofnun fjögur
fyrirtæki á nauðungaruppboð-
um á síðasta ári.Þaraf voru tvö
Suðurnesjafyrirtæki, R.A. Pét-
ursson í Njarðvíkog Hafnir hf. í
Höfnum. Um áramót hafði
Byggðastofnun tekist að selja
annað fyrirtækið en átti enn
Hafnir hf. Þá afskrifaði stofn-
unin hluta láns R.A. Pétursson-
ar hf. á síðasta ári, eina milljón
og fjögur hundruð þúsund.
Handteknir eftir
innbrotstilraun
* %
í síðustu viku varð skóla-
stjóri Myllubakkaskóla var
við grunsamlegar manna-
ferðir við skólann er hann
var þar við vinnu kvöld eitt.
Reyndust þar vera á ferðinni
fjórir strákar með skrúfjárn
vlð innbrotstilraun.
Lét hann lögregluna þegar
vita, en þrátt fyrir að þeir
væru á bak og burt, er lög-
reglan kom á staðinn, tókst
þegar um kvöldið að hand-
taka tvo þeirra, sem síðan
leiddi til þess að hinir tveir
voru handteknir morguninn
eftir.
Játuðu þeir við yfirheyrsl-
ur að hafa ætlað sér inn í
skólann. Ekkert bendir til að
þeir hafi verið aðilar að inn-
brotinu í vikunni þar áður.
Er það mál því enn óupplýst.
Mjög hátt
fiskverð
Mjög hátt meðalverð var á
fiski á Fiskmarkaði Suður-
nesja í síðustu viku, það
hæsta í langan tíma.
Meðalverð á þorski var
56,50 krónur, á ýsu 66,02
krónur, á ufsa 33 krónur og
meðalverð á karfa var 31
króna'. Að sögn Eyjólfs Þórs
Guðlaugssonar hjá Fisk-
markaði Suðurnesja, þá hafa
togarar verið á grálúðu og
því lítið um fisk á markaðn-
um. Frystihúsin eru fisklítil
og kaupa því þann fisk sem í
boði er.
„Það er lítið sem berst á
land og því má búast við háu
fiskverði í sumar,“ sagði Eyj-
ólfur Þór Guðlaugsson að
endingu.