Víkurfréttir - 01.06.1989, Qupperneq 6
VÍKUR
6 Fimmtudagur 1. júní 1989
\ji€ttU
BÖLIÐ ALLIR VILJA FÁ
Kæru lesendur!
Þetta er nú meiri hringavit-
leysan hjá þeim í bæjarstjórn-
inni. Ég sem hélt að framganga<
eftir síðustu kosning-
ar yrði eins staðföst og Siggi
á mínútunni forðum daga,
þegar maður spurði hann hvað
klukkan væri. Já, við þurfum
fleiri slíka öndvegismenn sem
standa fast á sínu og eru ekki
að þessu pólitíska pukri hver í
sínu horni.
Framganga þessa vínveit-
ingamáls er alveg dæmigerð
fyrir pískrandi pukrið og til
stórskammar fyrir þetta fólk,
sem viðjú kusumígóðritrúog
með góðri samvisku. Ef ein-
hvern tímann hafa runnið á
mann tvær grímur þá er það
vegna þessa máls. Ég held bara
að þær hefðu dugað til verð-
launa á gallhörðu grímuballi í
Gerðahreppi.
En hvers vegna allt þetta
pukur? Það er búið að sam-
þykkja að engin fleiri leyfi
skuli veitt á þessu ári og þau
verða bara að standa við stóru
orðin, hvaðsem tautarograul-
ar! Eitt skal yfir alla ganga
hvort sem þeir eru fagmenn
eða fúskarar í fyllerísbransan-
um. Fordæmið er slæmt, ef sú
verður raunin að fagmaður,
hvaða nafni sem hann nefnist,
fær að fylla fagurgala fríkvöld-
anna frekar en sá sem ekki hef-
ur fengist við þessa iðju. Hvað
gerist nú ef fleiri fagmenn vilja
sneið af kökunni? Þetta erorð-
ið svo flókið með öllum þess-
um ,,F-um“ að manni verður
bara flökurt!
Já, hún er orðin ærin, byrðin
á blessuðu áfengisvarnaráðinu
hér í bæ. Hvernig skyldu þeir
taka á málunum og hvaða fólk
er þetta sem veður elginn brátt
í umsóknum? Vonandi tekst
því að halda í brækur bæjar-
stjórnarmanna, sem svo
breytilega bjóða bandamönn-
um Bakkusar ogbölmenningu
bæjarlífsins byrginn.
Það munaði ekki um það!
Slysavarnakonur í Garði
með blómasölu
Slysavarnakonur í Garði
verða með blómasölu um
helgina í tilefni sjómanna-
dagsins. Munu félagskonur
ganga í hús í Garði og bjóða
blóm til sölu. Eru Garðmenn
hvattir til að taka vel á móti
sölufólkinu, enda mun
ágóði renna til þarfra mál-
efna.
Orðhvatur:
Vítaspyrnu-
vandkvæði
ÍBK-liðsins
Hvað er að ske? hugsaði
Orðhvatur, þegar hann frétti
af því að ÍBK hefði misnotað
aðra vítaspyrnu í leiknum á
móti FH á dögunum. Ykkur
að segja þá trúði ég þessu
ekki fyrr en ég sá í ríkissjón-
varpinu nokkrum dögum
síðar. En er Orðhvatur sá
umræddan filmubút rann
upp fyrir honum ljós. Tvær
megin ástæður voru fyrir því
að Frey greyinu tókst ekki að
skora:
1. Of mikið vinnuálag. Það
sést glögglega á fyrrnefndri
filmu að Freyr stendur í
ruslahreinsun á vellinum rétt
áður en hann framkvæmir
spyrnuna. Ogerþaðforkast-
anlegt af knattspyrnuráði að
láta leikmenn hreinsa völl-
inn meðan á leik stendur.
2. Ef filman er skoðuð vel
má sjá að það stendur mark-
vörður í markinu hjá FH og
ef menn skoða atvikið til
enda má sjá það að það er
þessum andskotans mark-
verði að kenna að Freyr ekki
skoraði.
Varðandi síðari liðinn
finnst Orðhvati það fárán-
legt að þessum markverði
skuli leyft að standa í mark-
inu meðan spyrnan fer fram,
því það vita allir sem vit hafa
á knattspyrnu, að markverð-
ir reyna alltaf að trufla þá
sem taka vítaspyrnur.
Orðhvatur er með tillögur
til úrbóta, því við svo búið
má ekki sitja í vítaspyrnu-
málunum. Tillögurnar eru
þessar:
1. Annar leikmaður verði
fenginn til að hreingera völl-
inn en sá sem á að fram-
kvæma vítaspyrnurnar.
2. Ókunnugum markvörð-
um verði bannað að standa í
mörkum sem ÍBK á.
3. Gísli Torfason verði
fenginn til að taka fram
skóna og hann fenginn til að
taka vítaspyrnur í sumar, því
að maður sem fer holu í
höggi (lélegu, ef marka má
fjölmiðilinn Reykjanesjhlýt-
ur að géta farið mark í skoti,
sér í lagi verði markið tómt.
Jæja, þetta hlýtur að
ganga betur næst. ,
Þó að ég sé nú ekki sá allra
stærsti stúkumaður þá efast ég
um að hann Búkki þurfi
nokkru að bæta við þetta!
Svo var það annað sem nag-
ar mína náðarsál og það er
þegar þessir tíðræddu bæjar-
stjórnarmenn eru sífellt að
sitja hjá við atkvæðagreiðslur.
Hvernig er þetta dæmi eigin-
lega, er bara hægt að sitja hjá
allan liðlangan daginn eða
fylgir þessu einhver „hjásetu-
kvóti“? Það er e.t.v. hægt að
kaupa kvóta hjá þeim, sem
alltaf eru með eða á móti? Nei,
ég gæfi sko ekki mikið í þau í
bridsinu, því þar yrði sögnin
sennilega æði oft og pirrandi
pass! Nei, það þarf víst að
kynna sér málin örlítið betur
áður en greitt er atkvæði og því
finnst mér að það ætti að
breyta þessu fyrirkomulagi
þannig, að fólkið verði látið
sitja eftir en ekki hjá, svona til
tilbreytingar! Ég er viss um að
kennarar taka undir þessa til-
lögu hjá mér (henni verður
ekki breytt) og vonandi verð-
I ur hún ekki látin sitja eftir á
I næsta fundi.
Jæja, þá er best að fara að
hætta þessu fjasi svo að maður
verði ekki kýldur á kránni eða
krotaður úr krataflokknum!
Ég held samt að ég geti ekki
setið á mér með ljóðstúfana
frekar en vant er og það verður
þá bara að píska mig fyrir
pennafárið.
Þau bjóða bara Birni einum,
barinn er hans besta fag.
Stjórnin enn í stórum meinum,
standist eigi orðalag.
Hún þráttar nú og þögul mýkist,
þykist ekki muna neitt.
Dæmalaust hún Denna líkist,
dugar svona yfirleitt.
Þá veitist að þeim varamaður,
tillögurnar vella út.
Breytist allt það bull og þvaður,
bráðlega í flöskustút.
Mér sýnist að sá stútur lendi,
stórum Birni bara hjá.
Bænum bestu kveðjur sendi,
bölið allir vilja fá.
Skál í botn!
(í bili)
Sjómannadagurinn
DAGSKRÁ
Sjómannadagsins í Keflavík-Njarðvík, sunnudaginn 4. júní
Kl. 9:00 Islenski fáninn dreginn að húni við Minnismerki sjómannaog
við höfnina.
Kl. 11:00 Sjómannamessa í Keflavíkurkirkju.
Kl. 12:30 Skemmtisigling með börn. Farið verður bæði frá Keflavíkur-
og Njarðvíkurhöfn, en aðeins komið að í Keflavík. Börn fá
ekki aðgang nema í fylgd með fullorðnum.
Kl. 14:00 Hátíðarhöld við höfnina:
1. Hátíðarræða - Fulltrúi Vélstjórafélags Suðurnesja.
2. Aldraðir sjómenn heiðraðir.
3. Aflakóngur heiðraður.
4. Björgunarsveitin Stakkur og Hjálparsveit skáta í Njarðvík
sýna björgunaratriði.
5. Kappróður.
6. Stakkasund, koddaslagur og reiptog.
7. Lúðrasveit Tónlistarskólans í Keflavík leikur milli atriða.
Kl.17:00 6. flokkur ÍBK og feður þeirra keppa í fótbolta.
KAFFIVEITINGAR: Kaffi verður selt á Glóðinni, neðri sal. Er fólk
hvatt til að nota sér staðinn. Opið verður á Glóðinni kl. 14-18.
Merki sjómannadagsins verða afhent sölubörnum á Víkinni kl. 10:00á
sjómannadaginn - Góð sölulaun.
SJÓMANNADAGSRÁÐ