Víkurfréttir - 01.06.1989, Qupperneq 14
VÍKUK
14 Fimmtudagur 1. júní 1989
ftOUt
Almenn reiðnámskeið
Hestamannafélag Mána og Keflavíkurbær
gangast fyrir reiðnámskeiðum á Mána-
grund, sem hefjast 5. júní, fyrir börn, ungl-
inga og fullorðna.
Kennt verður 1 klst. í senn. Fyrirhugað er
að halda 3ja tíma námskeið á morgnana. A
þeim námskeiðum verður kennd umhirða,
umgengni, reiðmennska. Innritun er hafin í
símum 12433 (Ollý), 15610 (Hulda), 11343
(Dadda). Kennari verður: Sigurlaug Anna
Auðunsdóttir.
Hestamanna-
félagið Máni
Firmakeppni
Hestamannafélagið Máni heldur sína ár-
legu firmakeppni laugardaginn 3. júní kl.
14 á Mánagrund.
Máni þakkar fyrirtækjum fyrir veittan
stuðning.
Fjáröflunarnefnd
Umferðarskólinn Ungir vegfarendur:
„Þátttakan framar
öllum vonum“
- segir Heiðrún Sigurðardóttir, einn umsjónarmanna
Mikil og góð þátttaka var í
umferðarskólanum Ungir
vegfarendur, sem lögreglan
og Umferðarráð stóðu fyrir
hér á Suðurnesjum og við
sögðum frá í síðasta tölu-
blaði. Alls voru boðuð 580
börn á aldrinum 5-6 ára í
umferðarskólann og þar af
mættu 565 börn og 190 full-
orðnir.
„Þátttakan í umferðar-
skólanum er framar öllum
vonum og það var ánægju-
legt að sjá svona mörg andlit
í umferðarskólanum. Þá er
gaman til þess að vita að for-
eldrar hafa mikinn áhuga á
umferðarfræðslu sinna
barna,“ sagði Heiðrún Sig-
urðardóttir, lögregluþjónn
og einn umsjónarmanna um-
'ferðarskólans, í samtali við
blaðið.
Það voru tveir Iögreglu-
þjónar, þau Guðmundur
Sæmundsson og Heiðrún
Sigurðardóttir, sem sáu um
skólahaldið í öllum stærri
byggðarlögum Suðurnesja,
ásamt fóstrunum Margréti
Gunnarsdóttur og Mariu
Finnsdóttur.
Iþrótta- og
leikjaskóli
fyrir börn
íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur fyrir börn 6-12 ára hefst 1.
júní.
Kennd verða öll helstu undirstöðuatriði ýmissa íþróttagreina
m.a. knattspyrnu, handbolta, körfubolta, blaks, frjálsra íþrótta og
ýmissa leikja, bæði úti og inni.
Kennsla fer fram í íþróttahúsinu við Sunriubrautog á íþrótta-
vallarsvæðinu.
Kennarar eru:
Einvarður Jóhannsson, íþróttakennari,
María Jóhannesdóttir, íþróttakennari,
Jón Kr. Gíslason, íþróttakennari,
Anna María Sveinsdóttir, íþróttaleiðbeinandi,
Einar Einarsson, íþróttaleiðbeinandi.
Hvert námskeið stendur yfír í 3 vikur. Þátttökugjald er kr.
1.500.
Innritun á tvö fyrstu námskeiðin, 5.-23. júní og 26. júní til 14.
júlí, fer fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut fímmtudaginn 1. júní
og föstudaginn 2. júní frá kl. 16 til 19.
ÍÞRÓTTARÁÐ KEFLAVÍKUR
Söngvakeppni í Stapa:
Lífgað upp á
dansleikja-
stemninguna
Fyrirhugað er að haldin
verði söngvarakeppni á veg-
um hljómsveitarinnar
LOTUS í samráði við félags-
heimilið STAPA. Keppnin
verður haldin samhliða
dansleikjum sem verða
föstudagana 30. júní og 21.
júlí. Úrslitakvöldið verður
svo föstudaginn 18. ágúst.
Allir verða dansleikirnir
haldnir í Stapa.
Tilgangurinn með þessu er
að gefa tækifæri, þeirn
söngvurum sem kunna að
leynast í fjöldanum en finna
ekki rétta tækifærið til að
korna fram og e.t.v. að slá í
gegn. An efa verður þetta
einnig til þess'að lífga upp á
stemninguna á böllunum í
sumar.
Keppendur geta annað
hvort komið fram 30. júní
eða 21. júlí, en síðan koma
allir fram á úrslitakvöldinu
sjálfu, 18. ágúst. Að sjálf-
sögðu eru takmörk á þátt-
takendafjölda, en reiknað er
með að keppendur verði ekki
rnikið fleiri en 8, þ.e. 4 hvort
kvöld. Verðlaunin i keppn-
inni verða helgarferð fyrir
tvo til London eða Amster-
dam, ásamt aukaverðlaun-
um.
Samfara þessari keppni
verða fleiri uppákomur ef
þátttaka fæst, s.s. keppni í
sjómanni o.fl.
Það er von aðstandenda að
fólk sitji nú ekki á leyndum
hæfileikum og þeir sem
þekkja einhvern, sem hugs-
anlega býryfirsönghæfileik-
um, ýti nú við viðkomandi
og hvetji hann/hana til að
taka þátt í keppninni. Ald-
urstakmark keppenda er
miðað við aldurstakmark
sem gildir á dansleikjum í
Stapa.
Skráning þátttakenda og
nánari upplýsingar eru í
síma 13443 (Stapi).