Víkurfréttir - 01.06.1989, Page 17
\)iKiin
Grindavík:
Þrir farnir
til síld-
veiða í nót
Á mánudag átti Grinda-
víkurbáturinn Skarfur að
leggja af stað til síldveiða í
hringnót. Þá var þess vænst
að áður en þetta blað kæmi
fyrir augu lesenda væru tveir
Grindavíkurbátar til viðbót-
ar, Hafberg og Sigurður Þor-
leifsson, farnir til samskonar
veiða.
Mun vera ráðgert að nýta
aflann í laxafóður.
Vinnuslys í
Sandgerði
Vinnuslys varð um borð í
Sandgerðingi GK í Sand-
gerðishöfn á fimmtudag, er
verið var að hífa upp úr bátn-
um og viðkomandi híf slitn-
aði niður með þeim afleiðing-
um að kar lenti á fingri
manns.
Var viðkomandi aðili
fluttur með sjúkrabíl til
læknismeðferðar.
Muggur hf. - nýtt
útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki
Stofnsett hefur verið í
Keflavík útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki er ber nafn-
ið Muggur h.f. Stofnendur
eru aðilar á Hnífsdal, Isafirði
og í Reykjavík. Eru þetta
m.a. þeir aðilar er keyptu allt
hlutaféð í Jöfri h.f. og eign-
uðust þar með rækjutogar-
ann Jöfur KE 17.
Á ofsahraða á
Grindavíkurvegi
Lögreglan stóð á mánu-
dagskvöld ökumann að því
að aka á ofsahraða eftir
Grindavíkurvegi. Mældist
ökuhraðinn 139 km/klst.
Var ökumaðurinn sviptur
ökuréttindum á staðnum og
kallaður síðan fyrir fulltrúa
daginn eftir.
Fyrirtæki til
vinnslu á
jarðefnum
Arnar Jónsson, Njarðvík,
hefur ásamt aðilum í Kópa-
vogi og Garðabæ stofnsett í
Garðabæ fyrirtæki, er
nefnist Víkurvinnslan h.f.
Er tilgangur firmans
rekstur á jarðefnanámum,
vinnsla á jarðefnum, kaup og
sala á jarðefnum innanlands
og til útlanda.
Grindavík:
Barðanum GK
bjargað frá
strandi
Er verið var að færa Sand-
gerðisbátinn Barðann GK-375
milli bryggja í Grindavíkur-
höfn á laugardag varð vélar-
bilun í bátnum. Skipti þá
engum togum að Barðann rak
út úr höfninni og stefndi í að
hann ræki upp austan megin
í sundinu, á svipuðum slóð-
um og Skúmur GK strand-
aði á fyrir nokkrum misser-
um.
Skipverjar á tæplega tíu
tonna þilfarsbáti, Funa GK
87, sáu í hvað stefndi og
leystu þegar landfestar og
tókst að koma endum milli
bátanna í þann mund er
Barðinn sló niður hælnum.
Þó mikill stærðarmunur væri
á bátunum dró Funi Barð-.
ann að bryggju í Grindavík-
urhöfn á ný.
Funi GK er, sem fyrr seg-
ir, tæplega 10 tonna plast-
bátur, en Barðinn er 243 tonna
stálbátur. Skipstjóri á Funa
er Skúli Magnússon, en með
honum voru í þessum björg-
unarleiðangri tveir skipverj-
ar auk eins sjómanns, sem
fyrir tilviljun var staddur þar
um borð.
KAFFIKYNNIN G
I
í SAMKAUP
föstudag kl. 14-18
Gott kaffi
Gott verð
Heilverslun
Gunnars Hjaltasonar
Sumarleyfí
Sóknarprestur og starfsfólk Innri- og Ytri-
Njarðvíkursókna verða í sumarleyfi frá og
með 5. júní - 16. júlí. A meðan annast þjón-
ustuna sóknarprestur og starfsfólk Kefla-
víkurkirkju.
Sóknarprestur og sóknarnefndir
Njarðvíkurprestakalls.
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur:
IBUÐ OSKAST
Ibúð óskast fyrir kennara við skólann frá 1.
júlí nk.
Upplýsingar veitir skólastjóri eða yfirkenn-
ari í símum 14399 eða 27369.
Fimmtudagur 1. júní 1989 17
Funi GK 87 við bryggju í Grindavík.
Barðinn kominn að bryggju á ný.
Ljósm.: epj.
Ariston gæði - Ariston verð
Bökunarofnar, margar gerðir.
Hellurborð, hvít eða stál.
Helluborð, 4hellur, 2gashellurog 2rafmagnshellur.
Hellurborð, 4 hellur, 2 halogen hellur, 2 venjulegt
rafmagn.
Hvað er Halogen? Við útskýrum og sýnum.
Margt annað til að skoða. Athugaðu líka verðið og
kjörin.
Kjölur h/f, Víkurbraut 13, Keflavík, sími 12121.
Kjölur, Ármúla 30, Rvk., sími 91-678891,91-678890.
Tökum forskot á
sjómannadaginn
á Vitanum
Sérstakur sjómannadagsmat-
seðill laugardag og sunnudag.
Meðal annars:
• Rjómalöguð sjávarréttasúpa
og lambasteik, bearnaise
kr. 1.350
• Rjómalöguð sjávarréttasúpa
og gratineraður skötuselur
kr. 1.120
Borðapantanir í síma 37755.
- Kaffihlaðborð sunnudag. -
BREYTTUR OPNUNARTÍMI:
Opið virka daga til kl. 23.30.
Föstudaga og laugardaga til kl. 03.
Sunnudaga til kl. 21.
Sími 37755
20 ára aldurstakmark.
Matargestir, pantið
borð tímanlega.