Víkurfréttir - 20.07.1989, Side 9
\>iKun
8 Fimmtudágur 20. júlí 1989
Linsur leystu „flösku-
botnana' af hólmi
eftir 35 ár
„SUMIR VINIR ÞEKKJA MIG VARLA“, segir Ragnar Þórðarson,
„Það hat'a margir stoppað
mig á förnum vegi og sagt mér
að þeim fyndist eitthvað öðru-
vísi við mig, sem þeir hafi ekki
tekið eftir áður. Margir vita
hins vegar ekki hvað það er
sem hefur breyst en sjá samt
stóra breytingu. Svo á ég einn-
ig góða vini sem þekkja mig
ekki aftur.“
Þessi orð mælti Ragnar
Þórðarson, rúmlega sextugur
Keflvíkingur. En um hvað er
maðurinn að tala og hvers
vegna þekkja sumir vina hans
hann ekki aftur? Jú, eftir að
hafa þurft að nota gleraugu af
sterkustu gerð í 35 ár hefur
hann tekið þau af nefinu og er
nú kominn með augnlinsur.
Þegar Ragnar var 28 ára
varð hann fyrir sjónhimnulosi,
svo hann þurfti í aðgerðir.
Fyrst losnaði himnan af hægra
auga og hálfu ári seinna af því
vinstra. Ragnar fór í augnað-
gerðir hjá Ulfari Þórðarsyni,
sem er Suðurnesjamönnum að
góðu kunnur sem augnlæknir.
Framkvæmdir hann allar
aðgerðirnar á Ragnari, sem
urðu þrjár talsins.
Eftir aðgerðirnar þurfti
Ragnar að nota mjög sterk
gleraugu. Gleraugu sem marg-
ir kalla einu orði „flösku-
botna“. Gleraugu þessi voru
,,-15“ en gleraugu við al-
mennri nærsýni eru ,,-2“.
Skömmu áður en Ragnar
varð fyrir sjónhimnulosinu
hafði verið fundin upp lækn-
ing við því af rússneskum
augnlækni, en annars hefði
Ragnar orðið blindur ævi-
langt.
þung gleraugun af nefinu og fá
í staðinn þægilegar linsur sem
ekki sjást,“ sagði Ragnar
Þórðarson að endingu.
-Hvafl varð til þess að þú
fékkst þá hugmynd að fá þér
linsur?
„Mér hafði áður verið tjáð
að ég gæti ekki notað linsur við
þessari sjóndepru minni, en
það höfðu margir aðrir sem
nota sterk gleraugu fengið sér
linsur, svo ég ákvað að slá til
og reyna.
Augniæknir hefur skoðað
mig með þessar linsur og þær
reynast mjög vel. Ég sé jafn vel
með þeim og gleraugunum og
jafnvel enn betur. Þetta er stór
stund fyrir mig, að losna við
Kjartan Kristjánsson hjá
Gleraugnaverslun Keflavíkur,
sem útvegaði Ragnari linsurn-
ar, sagði að hér væri á ferðinni
nýjasta nýtt í augnlinsum.
Væru þetta svokallaðar mjúk-
ar linsur sem erta ekkert og
enginn möguleiki á að þær
detti af augunum.
Linsur hafa mikið verið að
ryðja sér til rúms undanfarin
ár og þróunin hefur verið ör.
Ert þú kannski með óþægileg
gleraugu á nefinu og ætlar að
skipta yfir í linsur?
Svona leit Ragnar út með gler-
augun.
Kjartan Kristjánsson hjá Gleraugnaverslun Keflavíkur aðstoðar Ragnar við að Eins og sjá má á þessari mynd, þáermikill munuráglerinu,einsog
koma linsunum fyrir. Ljósmyndir: hbb. var í gleraugum Ragnars, og litlu linsunni á löngutöng Kjartans.
Við erum í leiðinni!
• Matvara
• Nýlenduvara
• Grænmeti og
ávextir
• Öl, gos, sælgæti
• Hreinlætisvörur
• Úrval af vítamínum
VERSLUNIN
Opið alla daga til kl. 20:45. Hringbraut 99 - Sími 14553.
HORNIÐ
MiKur<
jUMt |
Fimmtudagu" 20. júlí 1989
9
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Bergur Þór
Hljómsveitin LÓTUS
Þórður Stefán Júlli Björn Sigurður
Á STÓRDANSLEIK í STAPA
FOSTUDAGINN 21. JULI KL. 23-03.
Miðaverð kr. 1200. Munið nafnskírteinin.
Svona lítur Ragnar út með
linsurnar. Hér sjiið þið ástæð-
una fyrir því að vinir hans
þekktu hann ekki.
lás hf.^^
VALLARGÖTU 14, KEFLAVlK
SlMAR 14760 OG 11760
Háþrýstiþvottur
Tek að mér allan háþrýstiþvott. Er óháður
rafmagni. Upplýsingar á kvöldin í síma
13986.
Byggðasafn Suöurnesja
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aðnr timar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
FYRIRTÆKI:
Glæsilegar, orkuríkar,
íslenskar aðals-
meyjar sf.
I framhaldi af því að Sig-
ríður Gunnarsdóttir hefur
selt Láru E. Yngvadóttur
helming í einkafyrirtæki
sínu, Snyrtivöruverslun
Sigríðar Gunnarsdóttur,
sem rekur Gloríu í Sam-
kaup, hafa verið gerðar
breytingar á fyrirtækinu.
Lagt hefur verið niður
nafn einkafyrirtækisins en í
staðinn stofnað sameignar-
fyrirtæki sem heitir Glæsileg-
ar, orkuríkar, íslenskar að-
alsmeyjar s.f Mun hið nýja
fyrirtæki reka áfram snyrti-
vöruverslunina í Samkaup-
um í Njarðvík.
Systurnar hafa selt á ný
í Lögbirtingablaðinu 30.
júní sl. birtist tilkynning um
kaup tveggja systra úr Kefla-
vík á versluninni Barnabreki
í Reykjavík. Greindum við
frá þessu í næst síðasta tölu-
blaði.
Að sögn þeirra systra hafa
þær selt verslun þessa aftur
og er hún þeim því með öllu
óviðkomandi.
Tvö fyrirtæki afskráð
Tvö fyrirtæki hafa nýlega
verið afskráð á Suðurnesjum
en hvorugt þeirra hefur haft
starfsemi nú um tíma, annað
raunar ekki frá því í sept-
ember 1986 oghittekkisíðan
í maí 1987.
Fyrirtæki þessi eru Sand-
vík s.f., Miðneshreppi, og
Talco s.f., Njarðvík.
Þú lest um það í
Víkurfréttum